Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
LÍF&STARF
„Hesturinn er að mínu mati ígildi
hins fullkomna íþróttamanns, er
magnaður, ekki bara krafturinn
heldur einnig geta hestsins til
að bera knapa og um leið hafa
getu til að sýna ótrúlega fimi og
styrk,“ segir Auður Sigurðardóttir
hestanuddari.
Hún býr og starfar á Blönduósi og
er búin að vera með í smíðum undan-
farna mánuði lita- og verkefnabók
um líkama hestsins. Nú stendur yfir
söfnun á Karolina fund til að aðstoða
Auði við útgáfu bókarinnar.
Efni bókarinnar er, eins og nafnið
gefur til kynna, um líkama hestsins,
fróðleikur um vöðva, staðsetningu
þeirra, beinagrindina, hlutverk þeirra
og ýmis annar fróðleikur. Bókin er
samsett af fróðleik sem Auður hefur
sett upp á einfaldan hátt, myndum
sem má lita og skrifa inn á og svo
spurningar og púsl sem lesandinn
getur unnið með. Allt efni bókarinnar
hefur hún unnið sjálf, myndir, texta
og verkefnin. Bókin er hugsuð fyrir
allt hestaáhugafólk, á öllum aldri,
börn og fullorðna. Blaðamaður settist
niður með Auði til að spyrja hana út í
bókina, hestanuddið og áhuga hennar
á íslenska hestinum.
Áhuginn er klárlega til staðar
– Um hvað snýst verkefnið sem er í
gangi hjá þér núna með bókina og
hver er tilgangur og markmið bók-
arinnar?
„Hugmyndin kviknaði aðallega
þegar ég byrjaði að búa til netnám-
skeið þar sem notandinn getur keypt
aðgang að námsgrunni þar sem hann
hefur aðgang að ýmsu efni, til dæmis
hvernig á að byrja að þjálfa hest með
brokkspírum, hvernig það á að bera
sig að við teygjuæfingar fyrir hestinn
og ýmislegt fleira. Þá áttaði ég mig á
því að efni af þessu tagi er af mjög
skornum skammti á íslensku. Einnig
byrjaði ég að halda námskeið fyrir
hestamannafélögin og fann að það var
einmitt sama vandamálið og oft spurð
hvar fólk gæti fundið upplýsingar á
íslensku.
Það er vaxandi áhugi á því að læra
meira um líkama hestsins, vöðva-
byggingu, hvernig hann hreyfir sig
og þess háttar. Oft er það í tengslum
við vandamál sem upp geta komið
hjá hestinum annaðhvort í þjálfun
eða hjá hinum almenna hestamanni
sem nýtur þess að ríða út. Flestir vilja
að hestinum líði eins og best verði
á kosið og fólk vill læra meira um
hvernig það getur búið þannig um.
Einnig hélt ég nokkur námskeið fyrir
börn og ungmenni og komst að því
að á hefðbundnum reiðnámskeiðum
er ekki lögð mikil áhersla á þennan
þátt og kannski er það bæði vegna
þess að efnið er af skornum skammti
og kannski vegna þess að þau eru
ekki þannig uppsett. En áhuginn er
klárlega til staðar,“ segir Auður.
Kemur út í desember
Bókin á að ná til breiðs aldurshóps og
því valdi Auður að hafa hana í formi
lita- og verkefnabókar. Hún segir að
bókin muni snerta á mörgum þáttum
og upplýsingarnar verði aðgengi-
legar, auðskiljanlegar og vonandi
kveikja meiri áhuga hjá lesendum
að vita meira og læra meira um lík-
ama hestsins. Bókin er á lokametr-
unum og kemur væntanlega út nú í
desember.
Þakklát fyrir stuðninginn
– Það er dýrt að gefa út svona bók og
þú hefur verið að safna fyrir henni
á Karolina fund, hvernig hefur það
gengið og er enn hægt að styrkja þig
þar?
„Staðan er vonum framar, þetta
er alveg að hafast. Fresturinn til að
styrkja verkefnið fer að renna út en þá
ætti ég að geta byrjað ferlið og senda
bókina í prentun. Ég er afar þakklát
öllum þeim sem lögðu hönd á plóg-
inn og hjálpuðu mér og hestafólki
almennt á Íslandi að gera þetta að
veruleika. Ég er afar spennt að heyra
hvað fólki finnst og ef allt gengur
upp er aldrei að vita nema ég fari í
frekari bóka/efnisútgáfur af þessu
tagi, það væri allavega draumurinn,“
segir Auður hlæjandi.
– Þú hefur mikinn áhuga á hestum
og starfar m.a. sem hestanuddari. Af
hverju hefur þú svona mikinn áhuga
á hestum og hvað er svona heillandi
við íslenska hestinn?
„Já, þegar stórt er spurt. Áhugi
minn á hestum hefur verið til staðar
síðan ég man eftir mér. Ég var svo
heppin að geta fengið að vera í sveit
sem stelpa og ást á dýrum og náttúr-
unni fékk svo sannarlega byr undir
báða vængi við þá lífsreynslu. Ég
fékk mér þó ekki minn eigin hest
fyrr en á fullorðinsaldri þegar ég
kynntist manninum mínum og við
sameinuðumst í áhuga okkar á hest-
um og reiðmennsku. Hestamennska
getur þó birst í svo ótal myndum.
Ég elska að fara á hestbak og fara
í ferðir með góðu fólki en ég uni mér
afar vel að stússast í kringum hestana,
spá í hegðun, hreyfingar, eðli þeirra
og persónuleika hvers og eins. Þegar
við fluttum til Noregs 2015, maður-
inn minn var að temja þar, vissi ég
Auður Sigurðardóttir, hestanuddari á Blönduósi:
Gefur út lita- og verkefnabók
um líkama hestsins
Skemmtileg mynd af Auði og hestum á góðri stundu. Myndir / Úr einkasafni.
Auður hefur haft meira en nóg að gera í hestanuddinu og náð góðum árangri í starfi sínu.