Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 LÍF&STARF Íslenska tæknifyrirtækið Alor ehf. var stofnað í þeim tilgangi að vinna að þróun og síðar fram- leiðslu á sjálfbærum álrafhlöðum sem er ætlað að hraða orkuskipt- um m.a. í samgöngum, sjávarút- vegi, landbúnaði og fjölbreyttum iðnaði. Alor ehf. er í samstarfi við Háskóla Íslands og spænska fyrir- tækið Albufera Energy Storage sem er leið andi í þróun á álrafhlöðum í Evrópu og hefur unnið að þróun tækn innar síðustu átta ár. Um 95% endurvinnanlegar og engin eld- eða sprengihætta Álrafhlöður Alor verða um 95% endurvinnanlegar, af þeim stafar hvorki eld- né sprengihætta auk þess sem þær eru hagkvæmar og hafa mikla afkastagetu. Þá eru notkunar- möguleikar álrafhlaðna fjölþættir, s.s. sem varaafl í ýmsum iðnaði og aflgjafar sem ganga fyrir endurnýj- anlegri orku. Einnig getur tæknin nýst í farartæki í stað blýsýrugeyma. Þá vinnur Alor einnig að þróun og framleiðslu stórra orkugeymslna úr áli sem verður unnt að nýta til þess að geyma umfram framleidda raforku og stuðla að bættri nýtingu hennar. Þá mun tæknin stuðla að auknu afhendingaröryggi raforku þegar til þess kemur að flutnings- leiðir rofna, t.d. sökum óveðurs, eldgosa eða annarra náttúruhamfara. Umhverfisvæn tækni í stað mengandi orkugjafa Linda Fanney Valgeirsdóttir, tók nýverið við starfi sem fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins og segir hún spennandi verkefni fram undan enda ljóst að ákall eftir grænum lausnum hefur aldrei verið háværara. Markmið Íslands er að ná kolefn- ishlutleysi árið 2040 og að landið verði óháð jarðefnaeldsneyti fyrir árið 2050. Sjálfbærar lausnir líkt og álrafhlöður munu spila stórt hlut- verk á þeirri vegferð. Hún segir að tækifærin á markaði séu gríðarleg og áhugi fyrirtækja og stjórnvalda sé mikill. Þá bendir Linda Fanney á að mik- ilvægt sé að framleiðsla rafhlaðna Alor ehf. er umhverfisvæn og unnt er að endurvinna um 95% hverrar álrafhlöðu. Hún segir að leiðarstef Alor sé að innleiða umhverfisvæna tækni sem leysir af hólmi mengandi orkugjafa. Samstarfsaðilar Samstarfsaðili Alor er Albufera Energy Storage sem er með höfuðstöðvar í Madrid á Spáni. Fyrirtækið hefur um árabil unnið að rannsóknum og þróun á álrafhlöðutækninni og fengið öflugan stuðning úr Evrópusjóðum. Rannsóknar- og þróunarfasa tækn- innar er að ljúka auk þess sem hún hefur farið í gegnum prófanir við erlenda háskóla. Unnið er að því að yfirfæra tækniþekkingu frá spænska fyrirtækinu til Íslands. Alor er í samstarfi við Háskóla Íslands um að taka við tækninni og vinna að undirbúningi framleiðslu álrafhlaðna á Íslandi. Linda Fanney segir að mikill áhugi sé á því að framleiðslu Alor verði hraðað og í því sambandi er unnið að samningum við nokkur öflug fyrirtæki sem munu koma að kostun frumgerðar álrafhlaðna. Slíkir samningar eru mikilvægir til þess að flýta ferlinu í því skyni að mæta þörfum fyrirtækjanna. Sem dæmi um þýðingarmikið samstarf má nefna samstarf Alor og Landsnets sem leggur áherslu á aukið afhendingar- öryggi raforku sem hin nýja tækni mun stuðla að. Frumgerð í apríl 2022 Fyrirhugað er að frumgerð álrafhlaðna verði tilbúin í apríl 2022. Í framhaldinu fara fram prófanir á tækninni í samstarfi við Háskóla Íslands og framtíðarviðskiptavini Alor, m.a. á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar. Á árinu 2023 er áætlað að tilraunaframleiðsla hefjist og framleiðslan verði aðlöguð að þörfum markaðarins. Ætlað að gegna lykilhlutverki í orkuskiptunum Valgeir Þorvaldsson er einn af stofnendum Alor ehf. Meðstofnendur hans í fyrirtækinu eru Joaquín Chacón, forstjóri Albufera Energy Storage á Spáni, Kanadamaðurinn og frumkvöðullinn Robert C.A Frederickson sem á fjölda einkaleyfa af margvíslegum toga, m.a. í líftækni og Salvör Jónsdóttir skipulagsfræðingur. Valgeir segir að álrafhlöður Alor verði umhverfisvænar og muni gegna lykilhlutverki í orkuskiptunum. Þá segir hann að framleiðsla þeirra muni leiða til aukinnar verðmætasköpunar, fjölda starfa og nýrrar tækniþekkingar hér á landi. Verksmiðja í undirbúningi – Hvar er fyrirhugað að hefja framleiðslu? „Um þessar mundir er verið að skoða ákjósanlegan stað fyrir álraf- hlöðuverksmiðju Alor hér á landi. Um verður að ræða verksmiðju sem mun ekki valda mengun í andrúms- lofti eða hafa skaðleg áhrif á náttúru. Fyrirhugað er að verksmiðja verði tilbúin á árinu 2025 og framleiðsla geti hafist í kjölfarið,“ segir Valgeir. Framleiðsla á álrafhlöðum Alor verður því mjög ólík því sem þekkist við framleiðslu Lithium- Ion rafhlaðna sem eru þekktar í margvíslegum raftækjum og rafbílum. Til umfjöllunar hefur verið í erlendum fjölmiðlum eins og BBC að Lithium-Ion rafhlöður innihalda margvísleg eiturefni eins og þungmálmana liþíum, kóbalt, mangan og nikkel, sem auk þess finnast aðeins í mjög takmörkuðu magni á jörðinni. Ál, eða aluminium, er aftur á móti þriðja algengasta frumefnið á jörðinni á eftir súrefni og kísil og er sagt tólfta algengasta frumefnið í alheiminum. Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Álrafhlöðuframleiðsla Svona sjá menn fyrir sér mögulega orkugeymslusamstæðu álrafhlaðna. Fyrirhugað er að frumgerð álrafhlaðna verði tilbúin í apríl 2022. Í framhaldinu fara fram prófanir á tækninni í samstarfi við Háskóla Íslands og framtíðarviðskiptavini Alor, m.a. á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar. Mynd / ALOR Valgeir Þorvaldsson, einn af stofnendum ALOR, og Linda Fanney Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri. Um þessar mundir er verið að skoða ákjósanlegan stað fyrir álrafhlöðuverksmiðju fyrirtækisins hér á landi sem á að geta hafið starfsemi á árinu 2025. Mynd / HKr. Álrafgeymar í færanlegum gámum geta nýst sem varaafl. Tækninni er m.a. ætlað að tryggja aukið afhendingaröryggi raforku þegar til þess kemur að flutningsleiðir rofna, t.d. sökum óveðurs, eldgosa eða annarra náttúruhamfara. Slíkar raforkugeymslur eiga að vera auðflytjanlegar og af þeim stafar hvorki eld- né sprengihætta. Mynd / ALOR Joaquín Chacón, forstjóri Albufera Energy Storage á Spáni. Hann er einn af meðstofnendum ALOR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.