Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 31
31Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Kíktu á ms.is og skoðaðu úrvalið
- einfalt og fljótlegt.
S É RVA LD IR Í S LE N S KIR
OS TA R O G MEÐ L Æ TI
Veldu milli níu mismunandi ostakarfa
og bættu við annarri matvöru, víni eða g jafavöru.
Frábær g jöf til viðskiptavina
eða starfsmanna.
Ábyrgðin hjá umráðamönnum
Í yfirlýsingu frá Dýralæknafélagi
Íslands um málefnið hvetja þau til
gagnrýnnar umræðu um þætti er
varðar umgjörð og starfsskilyrði
greinarinnar.
Í yfirlýsingunni spyr Bára Eyfjörð
Heimisdóttir, formaður DÍ, hvort
umsvif búgreinarinnar hafi aukist
það mikið að ekki sé hægt að tryggja
ásættanlega umgjörð á búunum
og þá um leið tryggja nægjanlegt
eftirlit með greininni. Einnig veltir
hún þar fyrir sér hvort gerðar séu
nægjanlegar kröfur til eigenda
um reynslu og þekkingu þeirra
starfsmanna sem starfa á búunum
þegar kemur að umgengni við dýr
og velferð þeirra. Þá er spurt hvort
ekki sé þörf að endurskoða ramma
búgreinarinnar betur og er þar nefnt
sérstaklega fjölda dýra í hóp, fjölda
dýra sem dýralæknir getur sinnt á
hverju tímabili.
„Mikilvægi þess að hafa góðan
ramma og skýr starfsskilyrði ásamt
öflugu eftirliti af hálfu hins opin
bera er óumdeilt. Hins vegar skal
aldrei horft fram hjá ábyrgð eiganda
í slíkum málum. Ábyrgðin og sökin
er fyrst og fremst hjá þeim sem eru
umráðamenn og eigendur viðkom
andi dýra.
Ábyrgð dýralækna sem vinna
við blóðtöku úr hryssum er einnig
skýr, þeim ber skylda til að hafa
velferð dýranna í fyrirrúmi, leiðbeina
eigendum eða stöðva blóðtökuna
ef aðbúnaður og framkvæmd er
ábótavant og gera Matvælastofnun
viðvart. Dýralæknafélag Íslands
beinir því til dýralækna að sýna
ábyrgð í störfum sínum og grípa inn í
aðstæður þegar þess gerist þörf,“ segir
í yfirlýsingu Dýralæknafélagsins sem
lýkur þannig:
„Vitundarvakning og umræða
um þá óásættanlegu meðferð á
dýrum sem við sjáum í umræddu
myndskeiði er nauðsynleg.“
Úrbætur hjá Ísteka
Arnór Guðlaugsson, framkvæmda
stjóri Ísteka, segir að eftir birtingu
myndbandsins sé ljóst að alvarleg
atvik er varðar dýravelferð hafi
ekki sést í núverandi eftirliti
fyrirtækisins. Unnið sé að úrbótum
á eftirlitinu samkvæmt töflu sem
birtist hér að ofan.
Arnþór Guðlaugsson.
Þættir Aðgerðir Atriði
• Meta skapgerð hverrar merar fyrir þátttöku
• Merar sem sýna óeðlileg streituviðbrögð útilokaðar
Aðstaða Hönnun á bás og aðstöðu • Meta hvaða umbætur má gera á bás og annarri aðstöðu
• Mild meðhöndlun mera, rólegir starfsmenn
• Önnur dýr sem hugsanlega geta valdið truflun fjarlægð
• Fræðsluefni
• Formleg þjálfun, þ.m.t. á staðnum
• Námskeið og þekkingarmiðlun
• Miðla þekkingu
• Umsjón með myndarvélum
• Hefur heimild til að stöðva blóðsöfnun ef brotið er á hrossum
hvað varðar velferð þeirra
• Setja upp myndavélar og eftirlitsáætlun í samræmi við
viðeigandi lög og reglur
• Safna upplýsingum frá hverjum bæ, sem geymdar eru í
ákveðinn fjölda ára
• Upplýsingar rýndar af sérfræðingum með reglubundnum hætti,
byggt á ráðum velferðaröryggisvarða eða mótteknum kvörtunum
og ábendingum
Verklagsreglur um:
• val á merum
• tól sem notuð eru við
blóðsöfnun
• hegðun manna við
blóðsöfnun
• aðstöðu
• eftirlit
Val á merum Setja viðmið um val á
merum til þátttöku
Þættir sem snúa að
hegðun Vitundarvakning
Verklag og -ferlar • Verklagsreglur aðgengilegar á öllum bæjum, hjá dýralæknum og
öryggisvörðum velferðar
Fræðsla
Þjálfun fyrir bændur,
dýralækna og
öryggisverði velferðar
Öryggisverðir velferðar
Ný staða sem fellst í að
tryggja velferð hrossa meðan
að blóðsöfnun fer fram.
Eftirlit Myndataka og
mat á blóðsöfnun