Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Samantekt: Hulda Brynjólfsdóttir
Efni:
Huldusokkar 250 m ca. 140 gr
(Dvergasokkar 200 m ca 200 gr)
Sokkaprjónar nr 3,5 eða 4,0 mm
(Sokkaprjónar nr 5,0)
Uppskrift:
Fitjið upp 40 lykkjur á prjóna nr 4,0 (36 lykkjur á
prjóna nr 5,0)
Bætið við 4 lykkjum fyrir herrastærð og fækkið eftir
þörfum fyrir barnastærðir.
Tengið í hring og prjónið stroff 2 sl, 2 br. allan
hringinn.
Prjónið þar til stroffið er orðið eins langt og óskað
er eftir. Magnið í pakkningunum dugar í um 20 cm
stroff.
Prjónið 10 umferðir slétt.
Prjónið nú hæl.
Halldóruhæll:
Skiptið lykkjunum í tvennt og prjónið annan
helminginn fram og til baka 14-18 umferðir. (12 -
16) Matsatriði er hvort prjónað er slétt í báðar áttir
og þannig búið til garðaprjón, eða slétt á réttunni og
brugðið á röngunni og þannig verður hællinn sléttur.
Þegar hæll er nógu langur: (þumalputtaregla er
að prjóna u.þ.b. jafnmargar umferðir og lykkjurnar
eru á prjóninum ef lykkjur eru 20, prjónið 16-20
umferðir), er tekið saman á eftirfarandi hátt: Prjónið
þar til 6 lykkjur eru eftir, prj. 2 sl. saman, snúið
við, prjónið br þar til 6 lykkjur eru eftir prj. 2 br.
saman, snúið við. Prjónið fram og til baka og
takið alltaf saman 2 lykkjur áður en snúið er við
þar til einungis miðjulykkjurnar 10 (8) eru eftir.
Þá er hællinn kominn.
Takið upp lykkjurnar í hliðunum og prjónið í hring.
Heppilegt er að taka upp um 10 - 13 lykkjur hvoru
megin.
Prjónið eina umferð í hring.
Athugið: Nú er ristin tekin niður þannig: Prjónið
saman tvær lykkjur við ristina hvoru megin í hverri
umferð, þar til aftur er sami lykkjufjöldi samtals á
prjónunum og þið byrjuðuð með fyrir ofan hæl.
Þannig að á prjónunum eru nú 40 (36) lykkjur.
Fallegra er að taka tvær lykkjur saman hægra
megin á sokknum og vinstra megin að taka eina
óprjónaða lykkju fram af, prjóna næstu og steypa
þeirri óprjónuðu framyfir.
Prjónið framleistann. Góð regla er að „mæla á“
sem kallað er, en það er að prjóna stytta umferð á
ilinni, það gerir betra lag á sokkinn. Stytt umferð
er þegar snúið er við í hliðinni og ilin prjónuð fram
og til baka einu sinni og svo prjónað áfram í hring.
Góðar útskýringar má finna fyrir það á youtube
með því að slá German short rows í leitarglugg-
ann. (þegar komið er að ristinni er snúið við.
Fyrsta lykkjan tekin óprjónuð fram af, bandið sett
fram fyrir og togað í þar til lykkjan verður tvöföld,
prjónað brugðið að hinni hlið ilarinnar og snúið við að
nýju. Fyrsta lykkjan tekin óprjónuð fram af, bandið
tekið fram fyrir prjóninn og togað í þar til lykkjan
verður tvöföld. Þá er prjónað áfram í hring og þessar
tvær lykkjur sem eru tvöfaldar prjónaðar sem ein.
Affelling:
Þegar litla táin er að hverfa í sokkinn, er passlegt
að byrja að fella af.
Góð regla er að fella af með því að í hvorri hlið
eru teknar 2 l saman; Fyrstu 2 þannig; takið eina
óprjónaða fram af, prjónið næstu, steypið óprjónuðu
lykkjunni yfir, prjónið að hinni hliðinni slétt þar til 2
lykkur eru eftir, prjónið 2 l sl saman, prjónið 2 lykkjur
saman eins og í byrjun og prjónið síðan að fyrri jaðri
og prjónið þar líka saman 2 l sl. Nú hefur lykkjunum
fækkað samtals um 4 því þið takið af í byrjun og enda
hliðar báðum megin. Prjónið 2 umferðir án úrtöku
og endurtakið síðan úrtökuna.
Prjónið 1 umf. án úrtöku og takið svo úr aftur eins
og áður og endurtakið þetta tvisvar.
Síðan er tekið úr í hverri umferð, þar til 8 lykkjur
eru eftir, Klippið þá frá og dragið í gegnum allar
lykkjurnar og gangið frá lausum endum.
Skolið og leggið til þerris.
Dvergasokkar eru þykkari og slitsterkari
en huldusokkar, en báðar tegundirnar eru
100% íslensk ull og ekki blandaðar með plasti
(nyloni) eins og algengt er með sokkagarn til
að styrkja það. Íslenska ullin hefur náttúrulega
styrkingu í löngu og öflugu togi og það er nýtt
til að gera sokkagarnið svona slitsterkt.
Ullarsokkar Huldu Brynjólfsdóttur
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
2 8 9 7
1 6 2 4 9
5 7 6 3
9 4 1 2 5
2 6 9 1 7
1 8 3 2 4
1 5 6 7
3 7 4 6 9
4 9 2 8
Þyngst
1 7 9 5 8 6
4 6 1 3
6 8 7
1 6 2
9 4 7 5
8 3 9
4 1 3
9 5 2 8
5 1 2 4 7 9
9 3 7
2 4
1 5
9 1 5
2 1 4 8 9
6 8 7
3 8
7 6
9 4 2
7
7 5 1
2 8 1
3 4 1
6 3 1 4
8 2 9
6 2 8
6 5 4
9
Íslandsmeistari í golfi
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Brynhildur Ylfa er 9 ára
Mosfellingur. Hún á tvo eldri
bræður og labradorhund sem
heitir Dimma. Hún er mikil
keppnismanneskja og æfir golf og
fimleika af fullum krafti.
Henni þykir mjög skemmtilegt
að fara á skíði og í vetur ætlar hún
að prófa snjóbretti líka.
Nafn: Brynhildur Ylfa Þór odds
dóttir.
Aldur: 9 ára.
Stjörnumerki: Tvíburi.
Búseta: Mosfellsbær.
Skóli: Krikaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast
í skólanum? Smiðjur, íþróttir og
stærðfræði.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundur. Ég á labrador sem er að
verða 5 ára og heitir Dimma.
Uppáhaldsmatur: Sushi.
Uppáhaldshljómsveit: Veit ekki.
Uppáhaldskvikmynd:
Engin sérstök.
Fyrsta minning þín? Þegar ég og
frænka mín, Sara Hlín, vorum í
hláturskasti.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Æfi golf og fimleika.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Hárgreiðslukona eða
Íslandsmeistari í golfi.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Hoppað í sjóinn af
bryggjunni á Bíldudal.
Hvað ætlarðu að gera skemmtilegt
um jólin? Hafa kósí með fjöskyldunni
minni.
Næst » Ég skora á Söru Hlín
Sigurðardóttur að svara næst.
Hlýtt, mjúkt
og slitsterkt
ullargarn í sokka.
Dvergasokkar eru 100 m/100 gr
Huldusokkar eru 250m/ca 145gr
Hægt er að panta sokkagarn
með því að senda póst á
hulda@uppspuni.is eða hringja í
s. 846-7199
Uppskriftin að sokkunum hér til
hliðar er ekki háð höfundarrétti.
Hún er tekin saman úr mörgum
uppskriftum og hefur reynst vel við að prjóna ullarsokka.
Oft notast fólk við þumalputtareglur þegar það prjónar mörgum sinnum það sama.
Í þessari samantekt má finna þumalputtareglur frá ýmsum - oftast mæðrum eða ömmum.
Nota má aðrar uppskriftir til að prjóna ullarsokka úr þessu garni, en best er að nota þá án þess að vera í
öðrum innanundir - þannig nýtist íslenska ullin best til að veita yl og vellíðan.
Dvergasokkar eru góðir í útivinnu og slark. Huldusokkar eru yndislegar innan dyra og undir sæng á
köldum vetrarnóttum.
Sokkana skal þvo í höndum og gott að þvo þá öðru hvoru - ef þið tímið að fara úr þeim.