Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
FRÉTTIR
Þau leiðu mistök urðu þegar sagt var frá degi sauðkindarinnar í
Rangárvallasýslu í síðasta Bændablaði að litfegursta lamb sýningarinnar
hefði komið frá Kaldbak. Hið rétta er að það kom frá Hólum og er
eigandinn Kolbrá Edda Haraldsdóttir. /smh
Kolbrá Edda Haraldsdóttir og pabbinn, Haraldur Gísli Kristjánsson frá Hólum.
Við aðstoðum
fólk sem býr við
kröpp kjör
Þú getur hjálpað með því að
greiða valgreiðslu í
heimabanka fyrir jólin.
Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar
Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks
og Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs var kynntur í gær.
Í kaflanum um landbúnað er
kveðið á um að við endurskoðun
búvörusamninga verði lögð
áhersla á að tryggja fæðuöryggi
á Íslandi. Efla á stuðning við
innlenda grænmetisframleiðslu með
niðurgreiðslu á raforku til ylræktar
og sérstakan stuðning við útiræktun
í gegnum búvörusamninga.
Leggja á tillögu um
landbúnaðarstefnu fyrir Ísland fram á
Alþingi á fyrri hluta kjörtímabilsins,
þar verður byggt á grunni vinnu
verkefnastjórnar um landbúnaðarstefnu
sem þegar hefur verið kynnt undir
heitinu „Ræktum Ísland“.
Tryggja fæðuöryggi og auka
matvælaöryggi
Auka á hlutfall hollra og
næringarríkra innlendra matvæla
með metnaðarfullum markmiðum,
til að treysta fæðuöryggi, en einnig
á að stuðla að auknu matvælaöryggi
og heilnæmi matvara með öflugri
innlendri matvælaframleiðslu. Það muni
viðhalda góðri stöðu Íslands varðandi
sýklalyfjaónæmi. Í sáttmálanum
kemur fram að tryggja þurfi framhald
aðgerðaáætlunar um matvælaöryggi og
vernd búfjárstofna.
Þá er þar skýrt ákvæði um að við
endurskoðun búvörusamninga verði
lögð áhersla á að tryggja fæðuöryggi
á Íslandi, með því að efla innlenda
landbúnaðarframleiðslu. Endurskoðun
búvörusamninga er næst fyrirhuguð
á árinu 2023. Stefnt er að því að
stuðningur hins opinbera verði
samhæfður með það að markmiði að
styrkja og fjölga stoðum landbúnaðar
á grunni sjálfbærrar nýtingar í
þágu loftslagsmála, umhverfis- og
náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun.
Aukin grænmetisframleiðsla
Með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á
raforkuverði til ylræktar og sérstökum
stuðningi við útiræktun í gegnum
búvörusamninga á að auka framleiðslu
á íslensku grænmeti.
Móta á heildstæða, tímasetta
aðgerðaáætlun til eflingar lífrænnar
framleiðslu og akuryrkju.
Í sáttmálanum er lögð áhersla á
að efla þurfi landgræðslu, skógrækt
og endurheimt votlendis til að
mæta skuldbindingum Íslands í
loftslagsmálum. Útfæra á ramma um
framleiðslu vottaðra kolefniseininga
í landbúnaði og annarri tengdri
landnotkun.
Endurskoða á viðskiptasamning við
Evrópusambandið
Ljúka á við endurskoðun viðskipta-
samnings við Evrópu sambandið um
landbúnaðarafurðir á kjörtímabilinu
og efla á skilvirkni og afköst
við tollaeftirlit, með innleiðingu
stafrænna lausna.Fyrirhuguð er
endurskipulagning á fyrirkomulagi
matvæla- og heilbrigðiseftirlits á Íslandi,
en markmið þeirrar vinnu verður að
tryggja samræmt einfalt og skilvirkt
eftirlit í þágu atvinnulífs og almennings.
Fram kemur að huga þurfi einnig
sérstaklega að regluverki í kringum
matvælaframleiðslu svo það hamli ekki
nýsköpun og framþróun, svo sem sölu
afurða beint frá býli á neytendamarkað.
Mikilvægi öflugra skóla
Loks er lögð áhersla á að mikilvægt
sé að starfsmennta- og háskólar í
landbúnaði séu öflugir og í fararbroddi
í rannsóknum á sviði landbúnaðar
og umhverfismála, svo sem í þágu
loftslagsmála, náttúruverndar, landgæða
og nýsköpunar í framleiðslu. Ýta þurfi
undir framtak og frumkvæði bænda með
fræðslu, ráðgjöf, þróun og nýsköpun.
/smh
Með föstu niðurgreiðsluhlutfalli á raforkuverði til ylræktar og sérstökum
stuðningi við útiræktun í gegnum búvörusamninga á að auka framleiðslu
á íslensku grænmeti. Mynd / Odd Stefán
Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar:
Tryggja á fæðuöryggi á Íslandi með
endurskoðun búvörusamninga
Leiðrétting í umfjöllun um dag
sauðkindarinnar í Rangárvallasýslu
Skógræktin og landgræðslan
undir landbúnaðarráðuneytið
Málefni skógræktar og land
græðslu færast til landbúnað
arráðuneytis frá umhverfisráðu
neytinu, samkvæmt forsetaúr
skurði um skiptingu stjórnar
málefna milli ráðuneyta. Eitt af
áherslumálum Bændasamtaka
Íslands (BÍ) fyrir síðustu alþingis
kosningar var einmitt slíkur til
flutningur, nema BÍ lögðu áherslu
á að málaflokkarnir færðust yfir í
nýtt ráðuneyti landbúnaðarmála.
Svandís Svavarsdóttir tók á
mánudaginn við stjórnartaumunum
í sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytinu af Kristjáni Þór Júlíussyni
– og tekur þar með við málefnum
skógræktar og landgræðslu.
Skógræktin sátt við tilfærsluna
Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri
segir að flutningur Skógræktarinnar
til ráðuneytis landbúnaðarmála hafi
ekki verið ákveðinn í samráði við
Skógræktina. „Það var ekki haft
samráð, ekki frekar en þegar hún
var flutt frá landbúnaðarráðuneytinu
í umhverfisráðuneytið á sínum tíma,
enda þarf ekkert slíkt samráð. Við
hjá Skógræktinni erum sátt við að
skógrækt teljist til landbúnaðarmála
rétt eins og við vorum sátt við að hún
taldist til umhverfismála. Skógrækt
er hvort tveggja og líka loftslags-
mál og efnahagsmál og félagsmál
og nýsköpunarmál og margt fleira,“
segir Þröstur.
Breytir ekki miklu fyrir
Landgræðsluna
„Ég fékk fréttirnar á sama tíma og
aðrir landsmenn. Flutningur stofn-
unarinnar í nýtt ráðuneyti var hvorki
ræddur við mig né annað starfsfólk
Landgræðslunnar,“ segir Árni
Bragason landgræðslustjóri.
„Ég sé ekki að það breyti miklu
fyrir Landgræðsluna hvar hún er
vistuð í Stjórnarráðinu. Lög um
landgræðslu eru frá 2018 og grunn-
tónn laganna er sjálfbær landnýting.
Landgræðslan vinnur samkvæmt
gildandi lögum burt séð frá því
hvar stofnunin er vistuð. Auðvitað
munu áherslur ráðherra endurspegl-
ast í fjárveitingum á næstu árum.
Svandís Svavarsdóttir þekkir til
Landgræðslunnar frá tíma sínum í
umhverfisráðuneytinu og ég á ekki
von á öðru en að hún nýti styrk
Landgræðslunnar til góðra verka,“
segir Árni.
„Við höfum átt frábært samstarf
við starfsfólk umhverfisráðuneytis-
ins og stofnuninni hefur verið trúað
fyrir stóru hlutverki í loftslagsmál-
um og öðrum brýnum verkefnum
sem lúta að sjálfbærri þróun samfé-
lagsins. Ég vona að okkur takist að
byggja upp traust og samstarf við
starfsfólk í nýju ráðuneyti,“ bætir
Árni við. /smh
Árni Bragason. Þröstur Eysteinsson.