Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
LÍF&STARF
Rafn Arnbjörnsson hefru starfað sem frjótæknir í hálfa öld, en hann hóf störf í þessu fagi haustið 1971. Hér er Rafn við höfuðstöðvar Búgarðs á Akureyri. Mynd / MÞÞ.
Fann mína í þessu starfi
„Ég er þakklátur fyrir að hafa
kynnst öllu þessu fólki í sveitun-
um, notið gestrisni þess og góðra
stunda, þeir eru ófáir kaffibollarn-
ir sem bornir hafa verið að mér um
tíðina og gaman að hafa kynnst
gömlu íslensku gestrisninni.
Allt það bændafólk sem ég hef
um árin átt samskipti við hefur sýnt
mér mikil elskulegheit, boðið upp
á mat og kaffi og sýnt mér mikla
vináttu. Mér þykir líka vænt um að
hafa verið treyst til þess að sinna
störfum fyrir bændur í Eyjafirði,“
segir Rafn Arnbjörnsson, sem fyrr í
haust fagnaði hálfrar aldar starfsaf-
mæli sínu sem frjótæknir.
Hann hóf störf haustið 1971
og er enn í fullu fjöri 50 árum
síðar. Rafn er einn af stofnendum
Frjótæknifélagsins, sem bæði er fag-
og stéttarfélag.
Fæddur og uppalinn á Dalvík
Rafn fæddist á Dalvík, ólst þar upp
og býr þar enn. Hann segir áhuga
sinn á landbúnaði hafa kviknað
snemma, en í hans uppvexti tíðkaðist
að halda nokkrar skepnur við nán-
ast hvert heimili, eina kú og nokkrar
kindur. Svo var einnig á hans heimili,
foreldrar hans voru með kú og um 20
kindur þannig að hann fór snemma
að stússast í kringum skepnur.
Fyrsta hestinn eignaðist hann 13 ára
gamall og notaði í þá fjárfestingu
sumarkaupið sitt í sinni fyrstu
vinnu. Hann á móti öðrum strák
á svipuðu reki fengu starf við að
tína upp það smágrjót sem féll af
vörubílunum þegar verið var að
koma upp syðri grjótgarðinum við
Dalvíkurhöfn.
„Ég fékk 2.500 krónur fyrir
þetta sumarstarf og þær nægðu til
að kaupa hest,“ segir hann.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Með góðum félögum að halda upp á 50 ára starfsamælið. Mynd / Úr einkasafni
Andri Már Sigurðsson, formaður Frjótæknfélagsins, veitir Rafni viðurkenningu
fyrir störf sín á aðalfundi félagsins.
„Það hefur einkennt störf Rafns að þau eru leyst af samviskusemi
og nákvæmni. Það er mikið lán að hafa starfsmann sem er tilbúinn að
ganga í öll þau störf sem á þarf að halda hverju sinni.
Meðal þess sem honum hefur verið falið má nefna bókhald og frágang
á skattaskýrslum, ómskoðun á lömbum, vinna við kynbótasýningar
hrossa auk jarðvegs- og heysýnatöku. Í hans aðalstarfi er árangur eins
og best gerist á landinu og oft verið markmið þeirra sem á eftir hafa
komið að ná sambærilegu fanghlutfalli við sæðingar og Rabbi. Það er
einstakt lán fyrir eyfirskra bændur að hafa fengið að njóta starfskrafta
Rafns Arnbjörnssonar í hálfa öld.“ Þetta segir Sigurgeir Hreinsson,
framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar, um starfsfélaga sinn,
Rafn Arinbjörnsson.
Reyna að ná sambærilegu fang-
hlutfalli við sæðingar og Rabbi