Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Fiskiker merkt Umbúðamiðlun
eru eign félagsins og einungis
ætluð undir ferskan fisk og ís.
555 6677 | umb.is | Korngörðum 5, Reykjavík
EIGNUM ANNARRA
SITUR ÞÚ Á
Öll önnur notkun varðar sektum!
Hægt er að skila kerjum á næsta fisk-
markað, vöruflutningastöð eða til okkar
að Korngörðum 5. Einnig er hægt að
senda upplýsingar á brynjar@umb.is
• Á alifuglabúum verður einnig
að skrá allar hreyfingar fólks
inn og út úr alifuglabúum, ef
þörf verður á smitrakningu.
• Þá verður að búa til smitgildrur
og ganga úr skugga um að sótt
hreinsiefni séu notuð við alla
innganga og útganga.
• Ganga verður úr skugga um
að fólk sem kemur í eða yfir
gefur búið hafi uppi nauðsyn
legar smitvarnir til að forðast
útbreiðslu fuglaflensu.
• Meðhöndla skal alla dauða
alifugla og aðra fugla sem
eru í haldi í samræmi við
ráðleggingar norska matvæla
eftirlitsins.
Þá segir í leiðbeiningum stjórnvalda
að hafa eigi tafarlaust samband við
Matvælaeftirlit Noregs ef einkenni
fuglaflensu koma upp. Einkenni
fuglaflensu geta verið:
• Fuglar sem deyja skyndilega.
• Fuglar verpa færri eggjum
en venjulega.
• Fuglar éta og drekka minna en
venjulega.
• Almenn breyting er á hegðun
í hjörðinni.
Á áhættusvæðinu gilda strangar
bannreglur:
• Bannað er að flytja af svæð
inu alifugla, aðra fugla í haldi,
útungunaregg, egg til neyslu
eða alifuglaskrokka. Bannið
gildir ekki um egg sem keypt
eru í verslun eða þess háttar.
• Bannaður er flutningur ali
fuglakjöts eða á vörum sem
innihalda slíkt kjöt frá slátur
húsum, úr kælum eða frystum,
nema kjötið eða vörurnar séu:
a) Framleitt úr alifuglum sem
eru upprunnar utan áhættu
svæðisins og geymdir og
fluttir aðskildir frá kjöti af
alifuglum upprunnin á svæð
inu.
b) Framleitt að minnsta kosti 21
degi áður en líklegt er að smit
hafi borist í búfé á áhættu
svæði og geymt og flutt
aðskilið frá alifuglakjöti sem
framleitt er eftir þann tíma.
c) Meðhöndlað þannig að veirur
drepist og séu geymdar og flutt
ar aðskildar frá kjöti sem getur
innihaldið veirur.
Reglur Matvælaeftirlits Noregs eru
mjög ítarlegar. Þar er þó tekið fram
að bannið nái ekki til húsdýra af
spendýraflokki sem eru eingöngu
haldin í íbúðarhúsum og komast
ekki í snertingu við alifugla.
Eða aðra fugla í haldi og hafa
ekki aðgang að svæðum þar sem
þeir eru haldnir. Þá segir að:
• Bannað sé að flytja eða dreifa
úrgangi eða áburði frá búfé hjá
alifuglum eða öðrum fuglum
í haldi.
• Bannað sé að skipuleggja mark
aði, sýningar, keppnir eða aðrar
samkomur þar sem alifuglar
eða aðrir fuglar eru hafðir í
haldi.
• Setja eigi út fuglagildur.
Bann við flutningum á vörum frá
sýktum búum gildir þó ekki um
flutninga sem þurfa að fara í gegnum
hættusvæði án þessa að stoppa.
Hægt er að sækja um undanþágu
frá bönnunum til matvælaeftirlitsins
á staðnum.
Þá gilda einnig sérstakar og ítar
legar reglur um varúðarsvæði sem
lýst hefur verið í kringum skilgreint
hættusvæði.
Þar er m.a skylt að ganga úr
skugga um að fólk sem kemur að,
eða yfirgefur bú, sé með nauðsyn
legar smitvarnir til að forðast
útbreiðslu fuglaflensu.
Dánartíðni vegna
fuglaflensusmits hjá mönnum
sögð vera yfir 50%
Miðstöð sjúkdómavarna í Banda
ríkjunum hefur einnig brugðist við
aukinni útbreiðslu fuglaflensunnar
og hefur varað fólk við að snerta
smitaða fugla. H5N6 afbrigði
fuglaflensuvírussins geti þegar borist
í menn í Kína. Er fuglaflensa sem
smitast í menn sögð sérlega hættuleg
þar sem dánartíðni smitaðra er sögð
vera yfir 50%.
Til samanburðar er dánartíðni
vegna Covid19 samkvæmt tölum
Johns Hopkins háskóla „einungis“ um
0,2% á Íslandi þar sem hún er lægst
ásamt Burundi og Laos og upp í 19,4%
í Yemen þar sem dánartíðin er langt
yfir því sem þekkist annars staðar.
Þá hefur dánartíðin vegna Covid
19 verið um 0,4% í Noregi, 0,6% í
Danmörku, 0,7% í Finnlandi, 1,3% í
Svíþjóð, 1,6% í Bandaríkjunum, 1,6%
í Bretlandi og 1,9% í Þýskalandi.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
(World Health Organization WHO)
hefur af þessu miklar áhyggjur og
kallar eftir frekari rannsóknum. Enn
sem komið er hefur þó ekki verið
upplýst um nein tilfelli þar sem
fuglaflensuafbrigðið H5N6 hafi borist
á milli manna.
Berst með farfuglum
Faraldur af þessu tagi kemur yfirleitt
upp á haustin og berst þá gjarnan með
farfuglum á milli landa. Belgíska
ríkisstjórnin lýsti yfir hættustigi
vegna fuglaflensu og fyrirskipaði að
alifuglum yrði haldið innandyra frá og
með mánudeginum 15. nóvember eftir
að mjög sjúkdómsvaldandi afbrigði
fuglaflensu greindist í villigæs nálægt
Antwerpen. Þetta kom í kjölfar
svipaðrar uppákomu í nágrannaríkinu
Frakklandi fyrr í mánuðinum og í
Hollandi í október.
Útbreiðsla fuglaflensu hefur oft
leitt til viðskiptatakmarkana, bæði
innanlands þar sem hún hefur komið
upp og í milliríkjaviðskiptum.
60 ára kona í lífshættu
Síðasta tilvikið sem greint var frá
í Kína tengdist 60 ára konu sem
var komin í lífshættu þegar hún var
lögð inn á sjúkrahús í Hunanhéraði
13. október.
„Fjölgun smittilfella í fólki í Kína
á þessu ári er áhyggjuefni. Þetta er
vírus sem veldur hárri dánartíðni,“
sagði Thijs Kuiken, prófessor
í samanburðarmeinafræði við
Erasmus University Medical Center
í Rotterdam, í samtali við Reuters.
Fuglaflensa er samt ekki talin
geta borist á milli manna við neyslu
á alifuglaafurðum. Er þá væntanlega
reiknað með að afurðirnar séu vel
eldaðar.
SuðurKórea greindi frá faraldri
á bæ með um 770.000 alifugla í
Chungcheongbukdo, samkvæmt
upplýsingum OIE 15. nóvember.
Er þar vitnað í skýrslu frá suður
kóreskum yfirvöldum. Var öllum
fuglunum slátrað.
Þá var í fyrsta sinn á þessu
hausti tilkynnti um smit í Japan.
Var það í alifuglabúi í norðaustur
hluta landsins og var það staðfest
af landbúnaðarráðuneyti Japans.
Var það veiruafbrigðið H5N8.
Kort FAO af útbreiðslu hinna ýmsu afbrigða fuglaflensuveirunnar.