Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Nýafstaðið er málþing sem bar
yfirskriftina „Lífræn ræktun
í framkvæmd“ en undanfari
þess var að RML fékk nýverið
ráðunaut í garðyrkju, Richard
de Visser frá Danmörku, til að
skoða aðstæður hér á landi í
samstarfi við VOR. Richard
de Visser miðlaði í framhaldi
þekkingu sinni á málþingi á
Selfossi en hann hefur um árabil
starfað hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Horti Advice DK.
Jafnframt töluðu þau Eiríkur
Loftsson, ráðunautur RML, um
nýtingu búfjáráburðar og Þórey
Gylfadóttir, sömuleiðis ráðunautur
hjá RML, um nýtingu belgjurta í
akuryrkju.
Ekki verða praktísk atriði
rakin hér í löngu máli en koma
ráðgjafa líkt og de Visser er viss
speglun á íslenskar aðstæður, stöðu
ræktunar hér á landi og þá þróun
sem er að eiga sér stað í lífrænni
matjurtaræktun í heiminum. Um
það langar mig að fjalla í þessari
grein.
Nýjasta tækni og vísindi
De Visser var með fróðlega yfirferð
yfir nýjustu tækni sem ræktendur
þar í landi nýta sér í viðhaldi rækt-
unarlands s.s. illgresiseyðingu. Sá
nákvæmnisbúskapur sem þar er nú
stundaður í lífrænni ræktun með
aðstoð háþróaðra tæknilausna er
að því er virðist að færa lífræna
matjurtaræktun í Danmörku upp
á annað stig. Nú eru t.a.m. komin
fram tæki sem vinna skv gps
staðsetningartækni, s.s. sjálfvirkir
róbótar knúðir áfram af sólarraf-
hlöðum. Slík tæki sá fræinu og skrá
staðsetningu þess, viðhalda síðan
ræktunarsvæðinu reglulega með
því að fjarlægja illgresi í allt að
1 cm fjarlægð frá plöntunni skv
minni.
Um þessar mundir eru Danir að
ná þeirri stöðu að verða útflytjandi
til landa hvaðan þeir hafa hing-
að til flutt inn afurðir. Danir hafa
náð miklum slagkrafti í lífrænum
landbúnaði en nú eru rúm 11%
af öllu ræktarlandi þeirra vott-
að lífrænt og 35% af útiræktuðu
grænmeti er lífrænt vottað og eru
þau gæði nú að verða ráðandi í
mörgum vöruflokkum. Nær 60%
af öllum dönskum rauðrófum eru
nú lífrænar og nær helmingur
af öllum gulrótum, nær 50% af
spergilkáli, 70% af sellerí og rúm
80% af öllum næpum framleidd-
ar í DK eru nú lífrænar. Lífræn
framleiðsla stefnir því í mörgum
flokkum að vera meginstraums
gæði þegar kemur að grænmeti.
Aðföng og þjónusta við lífræna
framleiðendur
Mikil þróun er auk þess að eiga sér
stað í framleiðslu á lífrænum áburði
og standa framleiðendur í Danmörku
frammi fyrir vali um kornaáburð,
perlur, fljótandi áburð, hálffljótandi
og slóg s.s. frá lífeldsneytisverk-
smiðjum. Fjöldi valkosta af áburði
sem getur hvort sem er verið úr jurta-
eða dýraríkinu.
Auk þess er mikil áhersla lögð
á ræktun belgjurta sem draga á úr
áburðarþörf og þá sér í lagi köfnun-
arefni. Danir stefna
að markmiði langt
undir viðmiðum
sem núverandi
reglur í lífrænum
landbúnaði miða
við (100 kg af N á
ha í stað 170 kg) á
næstu árum. Þessi
þróun er studd með
miklu rannsóknar-
starfi og ráðgjöf
undanfarna áratugi.
Frá því að fyrsta
aðgerðaáætlunin
fyrir lífræna fram-
leiðslu var sett í
Danmörku árið
1995 hafa ræktend-
ur notið stuðnings
í formi ýmissar
sérþekkingar s.s.
við nýsköpun og
vöruþróun. Í aðgerðaráætlun hefur
sérstök áhersla verið lögð á að auka
framleiðslugetu ræktenda eftir því
sem eftirspurn hefur aukist.
Stuðningsumhverfið
Formlegt stuðningsumhverfi fram-
leiðenda í Danmörku er byggt upp
á rausnarlegum jarðræktarstyrkjum
fyrir hvern ha vottaðs lands. Alfarið
hefur verið horfið frá framleiðslu-
styrkjum sem binda stuðninginn við
ákveðnar fæðutegundir. Lífrænir
framleiðendur fá 20-25% meiri
jarðræktarstuðning á ha frá Evrópu-
sambandinu, um 33.000 kr. á ha
á núverandi gengi, auk þess sem
danska ríkið bætir við viðbótar-
stuðningi fyrir lífrænt vottað land
sem nemur 18.000 íslenskum
krónum á ha.
Vottunarkerfið er rekið af hinu
opinbera og framleiðendur greiða
ekki fyrir vottunina líkt og raunin
er hér á landi. Tækjastuðningur
er auk þess 45% af skilgreindum
tækjakaupum sem eru á óskalista
yfirvalda á hverjum tíma.
Stefnumótun – rannsóknir
og þróun
De Visser fjallaði vissulega um
Organic Denmark verkefnið sem
er margþætt, opinbert verkefni sem
hefur haft það hlutverk að byggja
upp markað fyrir lífræna framleiðslu
þar í landi. Á vegum Organic
Denmark fer fram margvíslegt
kynningar- og fræðslustarf fyrir
lífrænar afurðir, á þeirra vegum
eru keyrð útflutningsverkefni og
danskar, vottaðar vörur (ferskar sem
unnar) eru áberandi á vörusýningum
erlendis undir hatti Organic
Denmark.
Danir hafa sett lífrænan landbún-
að á dagskrá sem sérstakt markmið
í landbúnaðarstefnu sinni og gegnir
geirinn þar mikilvægu hlutverki í
að bæta framlag landbúnaðarins til
umhverfis- og loftslagsmála. Um
þessar mundir eru 300.000 ha lands í
lífrænni ræktun en stefnan er tekin á
500.000 ha árið 2030. Talið er að sú
aukning muni draga úr losun CO2 frá
dönskum landbúnaði um 500.000
tonn á ári.
Ísland 1 – Danmörk 11
Hér á landi er hlutfall ræktaðs
lands í lífrænni ræktun 1-2% en
í Danmörku er það rúm 11%.
Upphafsstef beggja landa var í raun
það sama þótt Danir hafi byrjað um
10 árum fyrr með sitt regluverk.
Í báðum löndum settust nokkrir
framleiðendur að borði (sjö í tilfelli
Íslands, 15 í tilfelli Danmerkur)
og bjuggu til félagsskap (á Íslandi
heitir það VOR) sem knúðu
á um mótun reglna og tilurð
vottunarkerfis. Danir hafa með
opnu hugarfari og samtali, opinberu
vottunarkerfi, þróunarstarfi og
samstarfi ýmissa ólíkra aðila, tekist
að búa til atvinnugrein sem fyrir
löngu er komin með slagkraft og
skapar landbúnaðinum efnahagsleg
tækifæri um leið og hún leggur
eitthvað til bætts umhverfis og betra
loftslags.
Fullt tilefni er til
aðgerðaráætlunar á þessu sviði hér
á landi, líkt og nú er kveðið á um í
nýjum stjórnarsáttmála. Tækifærin
í lífrænni ræktun matjurta liggja
víða, í landnæði sem nýta þarf
betur, köldum gróðurhúsum sem
öðrum, í allri akuryrkju og í hvers
kyns fullvinnslu. Aukin útbreiðsla
lífræns landbúnaðar og aukin
framleiðsla blasir því við sem
viðfangsefni sem stuðla beri að.
Eygló Björk Ólafsdóttir,
formaður Verndun og ræktun
– VOR, félag framleiðenda
í lífrænum búskap
LESENDARÝNI
Danir hafa háleit markmið í lífrænni ræktun
Danmörk - Lífrænar gulrætur svo langt sem augað eygir.
Nákvæmnisbúskapur – sjálfvirkur, sólarrafhlöðuknúinn róbóti sér um að reyta illgresi
samkvæmt gps tækni.
Easy Swing gripaburstar
fyrir velferð dýranna
Í samstarfi við Finneasy í
Finnlandi býður BYKO nú upp
á Easy Swing gripabursta af
ýmsum stærðum án mótora.
Burstarnir henta gripum allt frá
ungum kálfum upp í fullorðin
naut. Burstarnir eru smíðaðir
með mikið álag í huga. Easy
Swing gripaburstarnir eru
auðveldir í uppsetningu og kosta
mun minna en rafmagnsdrifnir
kúaburstar.
Hafðu samband:
bondi@byko.is
byko.is
GRIPABURSTAR
Til á lager
25% afsláttur til 9. des