Bændablaðið - 02.12.2021, Side 50

Bændablaðið - 02.12.2021, Side 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 Nýafstaðið er málþing sem bar yfirskriftina „Lífræn ræktun í framkvæmd“ en undanfari þess var að RML fékk nýverið ráðunaut í garðyrkju, Richard de Visser frá Danmörku, til að skoða aðstæður hér á landi í samstarfi við VOR. Richard de Visser miðlaði í framhaldi þekkingu sinni á málþingi á Selfossi en hann hefur um árabil starfað hjá ráðgjafarfyrirtækinu Horti Advice DK. Jafnframt töluðu þau Eiríkur Loftsson, ráðunautur RML, um nýtingu búfjáráburðar og Þórey Gylfadóttir, sömuleiðis ráðunautur hjá RML, um nýtingu belgjurta í akuryrkju. Ekki verða praktísk atriði rakin hér í löngu máli en koma ráðgjafa líkt og de Visser er viss speglun á íslenskar aðstæður, stöðu ræktunar hér á landi og þá þróun sem er að eiga sér stað í lífrænni matjurtaræktun í heiminum. Um það langar mig að fjalla í þessari grein. Nýjasta tækni og vísindi De Visser var með fróðlega yfirferð yfir nýjustu tækni sem ræktendur þar í landi nýta sér í viðhaldi rækt- unarlands s.s. illgresiseyðingu. Sá nákvæmnisbúskapur sem þar er nú stundaður í lífrænni ræktun með aðstoð háþróaðra tæknilausna er að því er virðist að færa lífræna matjurtaræktun í Danmörku upp á annað stig. Nú eru t.a.m. komin fram tæki sem vinna skv gps staðsetningartækni, s.s. sjálfvirkir róbótar knúðir áfram af sólarraf- hlöðum. Slík tæki sá fræinu og skrá staðsetningu þess, viðhalda síðan ræktunarsvæðinu reglulega með því að fjarlægja illgresi í allt að 1 cm fjarlægð frá plöntunni skv minni. Um þessar mundir eru Danir að ná þeirri stöðu að verða útflytjandi til landa hvaðan þeir hafa hing- að til flutt inn afurðir. Danir hafa náð miklum slagkrafti í lífrænum landbúnaði en nú eru rúm 11% af öllu ræktarlandi þeirra vott- að lífrænt og 35% af útiræktuðu grænmeti er lífrænt vottað og eru þau gæði nú að verða ráðandi í mörgum vöruflokkum. Nær 60% af öllum dönskum rauðrófum eru nú lífrænar og nær helmingur af öllum gulrótum, nær 50% af spergilkáli, 70% af sellerí og rúm 80% af öllum næpum framleidd- ar í DK eru nú lífrænar. Lífræn framleiðsla stefnir því í mörgum flokkum að vera meginstraums gæði þegar kemur að grænmeti. Aðföng og þjónusta við lífræna framleiðendur Mikil þróun er auk þess að eiga sér stað í framleiðslu á lífrænum áburði og standa framleiðendur í Danmörku frammi fyrir vali um kornaáburð, perlur, fljótandi áburð, hálffljótandi og slóg s.s. frá lífeldsneytisverk- smiðjum. Fjöldi valkosta af áburði sem getur hvort sem er verið úr jurta- eða dýraríkinu. Auk þess er mikil áhersla lögð á ræktun belgjurta sem draga á úr áburðarþörf og þá sér í lagi köfnun- arefni. Danir stefna að markmiði langt undir viðmiðum sem núverandi reglur í lífrænum landbúnaði miða við (100 kg af N á ha í stað 170 kg) á næstu árum. Þessi þróun er studd með miklu rannsóknar- starfi og ráðgjöf undanfarna áratugi. Frá því að fyrsta aðgerðaáætlunin fyrir lífræna fram- leiðslu var sett í Danmörku árið 1995 hafa ræktend- ur notið stuðnings í formi ýmissar sérþekkingar s.s. við nýsköpun og vöruþróun. Í aðgerðaráætlun hefur sérstök áhersla verið lögð á að auka framleiðslugetu ræktenda eftir því sem eftirspurn hefur aukist. Stuðningsumhverfið Formlegt stuðningsumhverfi fram- leiðenda í Danmörku er byggt upp á rausnarlegum jarðræktarstyrkjum fyrir hvern ha vottaðs lands. Alfarið hefur verið horfið frá framleiðslu- styrkjum sem binda stuðninginn við ákveðnar fæðutegundir. Lífrænir framleiðendur fá 20-25% meiri jarðræktarstuðning á ha frá Evrópu- sambandinu, um 33.000 kr. á ha á núverandi gengi, auk þess sem danska ríkið bætir við viðbótar- stuðningi fyrir lífrænt vottað land sem nemur 18.000 íslenskum krónum á ha. Vottunarkerfið er rekið af hinu opinbera og framleiðendur greiða ekki fyrir vottunina líkt og raunin er hér á landi. Tækjastuðningur er auk þess 45% af skilgreindum tækjakaupum sem eru á óskalista yfirvalda á hverjum tíma. Stefnumótun – rannsóknir og þróun De Visser fjallaði vissulega um Organic Denmark verkefnið sem er margþætt, opinbert verkefni sem hefur haft það hlutverk að byggja upp markað fyrir lífræna framleiðslu þar í landi. Á vegum Organic Denmark fer fram margvíslegt kynningar- og fræðslustarf fyrir lífrænar afurðir, á þeirra vegum eru keyrð útflutningsverkefni og danskar, vottaðar vörur (ferskar sem unnar) eru áberandi á vörusýningum erlendis undir hatti Organic Denmark. Danir hafa sett lífrænan landbún- að á dagskrá sem sérstakt markmið í landbúnaðarstefnu sinni og gegnir geirinn þar mikilvægu hlutverki í að bæta framlag landbúnaðarins til umhverfis- og loftslagsmála. Um þessar mundir eru 300.000 ha lands í lífrænni ræktun en stefnan er tekin á 500.000 ha árið 2030. Talið er að sú aukning muni draga úr losun CO2 frá dönskum landbúnaði um 500.000 tonn á ári. Ísland 1 – Danmörk 11 Hér á landi er hlutfall ræktaðs lands í lífrænni ræktun 1-2% en í Danmörku er það rúm 11%. Upphafsstef beggja landa var í raun það sama þótt Danir hafi byrjað um 10 árum fyrr með sitt regluverk. Í báðum löndum settust nokkrir framleiðendur að borði (sjö í tilfelli Íslands, 15 í tilfelli Danmerkur) og bjuggu til félagsskap (á Íslandi heitir það VOR) sem knúðu á um mótun reglna og tilurð vottunarkerfis. Danir hafa með opnu hugarfari og samtali, opinberu vottunarkerfi, þróunarstarfi og samstarfi ýmissa ólíkra aðila, tekist að búa til atvinnugrein sem fyrir löngu er komin með slagkraft og skapar landbúnaðinum efnahagsleg tækifæri um leið og hún leggur eitthvað til bætts umhverfis og betra loftslags. Fullt tilefni er til aðgerðaráætlunar á þessu sviði hér á landi, líkt og nú er kveðið á um í nýjum stjórnarsáttmála. Tækifærin í lífrænni ræktun matjurta liggja víða, í landnæði sem nýta þarf betur, köldum gróðurhúsum sem öðrum, í allri akuryrkju og í hvers kyns fullvinnslu. Aukin útbreiðsla lífræns landbúnaðar og aukin framleiðsla blasir því við sem viðfangsefni sem stuðla beri að. Eygló Björk Ólafsdóttir, formaður Verndun og ræktun – VOR, félag framleiðenda í lífrænum búskap LESENDARÝNI Danir hafa háleit markmið í lífrænni ræktun Danmörk - Lífrænar gulrætur svo langt sem augað eygir. Nákvæmnisbúskapur – sjálfvirkur, sólarrafhlöðuknúinn róbóti sér um að reyta illgresi samkvæmt gps tækni. Easy Swing gripaburstar fyrir velferð dýranna Í samstarfi við Finneasy í Finnlandi býður BYKO nú upp á Easy Swing gripabursta af ýmsum stærðum án mótora. Burstarnir henta gripum allt frá ungum kálfum upp í fullorðin naut. Burstarnir eru smíðaðir með mikið álag í huga. Easy Swing gripaburstarnir eru auðveldir í uppsetningu og kosta mun minna en rafmagnsdrifnir kúaburstar. Hafðu samband: bondi@byko.is byko.is GRIPABURSTAR Til á lager 25% afsláttur til 9. des

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.