Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
var súpa eða gums með fyllingu sem
á að gleypa um leið og bitið er gat á
pokann. Ekki skemmir fyrir að pipra
bögglana fyrir neyslu.
Af öðrum vinsælum réttum er
lobio, sem er að stofni til nýrnabaunir
með lauk, chili og ediki og góður
prumpumatur. Mtsvadi er aftur á
móti kjöt sem er steikt á prjóni.
Vín í Georgíu
Almennt er viðurkennt að víngerð
í Georgíu sé ein sú elsta í heimi og
er hefðbundin víngerð í landinu
á Heimsminjaskrá UNESCO
um sameiginlegan óefnislegan
menningararf alls mannkyns.
Vegna hagstæðs veðurfars þrífst
vínviður vel víða í landinu og talið
að hann hafi verið ræktaður og berin
notuð til víngerðar allt frá því 6000
fyrir Krist. Í dag finnast meira en 500
ólík vínberjayrki í landinu og er allt
georgískt vín unnið úr innlendum
yrkjum.
Annað sem gerir georgísk
vín, bæði hvít og rauð, góð í
framleiðslu er gerjunaraðferðin.
Ólík vínum frá Suður-Evrópu sem
eru látin gerjast í viðartunnum eru
vín í Kákasuslöndunum gerjuð í
belgmiklum leirkrúsum sem grafin
eru í jörð. Gerjunaraðferðin veldur því
að vínið heldur áfram að gerjast þar
til allur sykur er horfinn úr því. Vínin
eru því öll þurr og alkóhólprósentan
stundum hærri en í hefðbundnum
léttvínum.
Algengt er að leirkrukkur sem not-
aðar hafa verið til að gerja vín finnist
við fornleifarannsóknir og jarðvinnslu
í landinu og þykir það sýna að víngerð
hefur verið almenn þar lengi.
Rósabyltingin
Landfræðileg staðsetning Georgíu
hefur verið landinu bæði blessun
og bölvun í gegnum aldirnar. Vegna
landkosta hafa Georgíumenn mátt
þola innrásir og yfirráð stórvelda
bæði úr austri og vestri og landið
var lengi leppríki rússneska
keisaraveldisins og síðar hluti af
Sovétríkjunum.
Skömmu fyrir fall Sovét-
ríkjanna lýsti Georgía yfir
sjálfstæði landsins. Í kjölfarið óx
pólitískur órói í Georgíu og um
tíma geisaði borgarastyrjöld í hluta
landsins.
Spilling fór vaxandi og endaði
með miklum mótmælum árið 2003
sem stóðu í tuttugu daga og því sem
kallað hefur verið rósabyltingin
vegna þess hversu friðsamleg
mótmælin voru.
Upp á margt að bjóða
Miklar framfarir hafa átt sér stað í
Georgíu undanfarin ár og áratugi.
Auk innviðauppbyggingar er rík
áhersla lögð á að auka vinsældir
landsins sem áfangastaðar fyrir
ferðamenn enda hefur landið upp
á margt að bjóða, eins og mikla
náttúrufegurð, góðan mat og vín
og mikla gestrisni.
Hópurinn sem ég ferðaðist
með heimsótti landið í september
síðastliðnum og því fremur fáir
ferðamenn þar á ferð. Móttökurnar
í landinu voru í alla staði góðar og
þjónustan til fyrirmyndar. Georgía
er eini staðurinn í heimi þar sem
landamæravörðurinn við brott-
fararhliðið úr landinu spurði mig
hvort heimsóknin hafi ekki verið
ánægjuleg og bauð mig velkominn
aftur sem fyrst.
Fararstjóri okkar, Michaela
Krejcova, sem lærði íslensku við
Háskóla Íslands en er nú búsett í
Georgíu, var eins og himnasending
og gerði allt sem í hennar valdi
var til að gera ferðina ferðina sem
ánægjulegasta.
HÁ verslun ehf tók við umboði Husqvarna byggingavörum á
Íslandi þann 11. júní.
• Steinsagir
• Kjarnaborvélar
• Jarðvegsþjöppur
• Sagarblöð
• Kjarnaborar
Víkurhvarfi 4 - 203 Kópavogur
Opið mán. - fös. kl. 8-17.
S. 588-0028
haverslun@haverslun.is
haverslun.is
Þjónustuverkstæði og varahlutir
Husqvarna K970
15,5 cm sögunardýpt
Husqvarna K3600
Vökvasög
Sögunardýpt 27cm
Narikala-virkið í Tbilisi, höfuðborg Georgíu. Virkið var upphaflega reist á 4. öld og þaðan er gott útsýni yfir gamla hluta
borgarinnar.
Meira en 500 ólík vínberjayrki eru ræktuð í Georgíu og er allt georgískt vín
unnið úr innlendum yrkjum.
Georgísk vín eru gerjuð í stórum leirkrukkum sem grafin eru í jörðina.
Jvari-klaustrið. Bygging þess er sögð hafa hafist á 6. öld.
Georgía er í Kákasusfjöllum
og á mörkum Evrópu og Asíu.