Bændablaðið - 02.12.2021, Blaðsíða 23
23Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
STÓRVIRKI
UM BÍLA
320 síðna bílabók eftir Örn Sigurðsson með 1200
ljósmyndum sem margar hafa hvergi sést áður.
Hér eru bílar almennings, lög -
reglu og slökkvi liðs; trukkar
jafnt sem eðal vagnar, jeppar,
vörubílar og húsbílar.
Fjallað er um fjölmargt tengt bílum,
svo sem bensín- og smurstöðvar,
verkstæði, hjólhýsi og leikföng, að
ógleymdri vega- og gatnagerð.
ÓMISSANDI FYRIR ALLT BÍLAÁHUGAFÓLK!
UTAN ÚR HEIMI
Samkvæmt vefsíðu hemptoday.net,
einni fremstu vefsíðu með upplýs-
ingar hampvarnings, hefur þýski
pappírsframleiðandinn Hahnemühle
nýverið þróað pappír úr hampi.
Hugmyndin fór í vinnslu vegna
útgáfu bókarinnar „Mikil verðmæti eru
fólgin í ræktun og
úrvinnslu iðnað-
arhamps á Íslandi“
eftir ljósmyndar-
ann og umhverfis-
verndarsinnann
Maren Krings –
en áætluð útgáfa
þeirrar bókar
er næsta vor.
„Þetta er fyrsti pappírinn sem fram-
leiddur er úr sjálfbærum hamptrefjum
sem ræktaðar eru í Evrópu – einmitt
ætluðum við gerð umhverfisvænna
prentvara,“ segir Heidemarie Hinger,
vöru- og viðskiptaþróunarstjóri hjá
Hahnemühle.
Fyrirtæki Hahnemühle, sem
var stofnað árið 1584, er leiðandi á
heimsmarkaði hvað varðar hágæða-
pappír og prentun, en fyrirtækið
stýrir dótturfyrirtækjum sínum í
Bretlandi, Frakklandi, Singapúr og
Kína. Hahnemühle, sem er eitt virtasta
fyrirtæki þessa geira, hefur alla tíð
verið framarlega í umhverfisvænu
framleiðsluferli enda vart hægt að
framleiða hágæða vörur ef svo væri
ekki. Árið 2008 þróaði Hahnemühle
pappír úr bambus og undanfarin ár
hefur heil vörulína verið gerð í kring-
um bambusinn sem er undir hatti
sjálfbærra tegunda. Í kjölfarið kynnti
Hahnemühle „Green Rooster“ verk-
efnið sem styður ræktun skóglendis,
velferð dýra auk umhverfisfræðslu.
Nú árið 2021, samkvæmt frétta-
tilkynningu, hefur framleiðsla
hamppappírs hafist en um er að ræða
stafrænan prentpappír, vegan og
sýrufrían og helst því vel yfir margra
ára skeið. Hreint lindarvatn er notað
við gerð pappírsins og streymir það
frá nærliggjandi á í gegnum lokað
vinnslukerfi sem er laust við hreinsi-
og rotvarnarefni. Einnig kemur orkan
sem notuð er við framleiðsluna ein-
göngu frá 100% endurnýjanlegum
orkugjöfum.
Pappírinn er hægt að fá bæði í
kápu- og blaðaþykkt bóka og kemur
hann á ríflega metra rúllum, en mikið
er lagt upp úr gæðum, þó með tilliti
til umhverfisverndar. /SP
Hahnemühle:
Frumkvöðull í
pappírsgerð
Iðnaðarhampur hefur margvíslegt
notagildi og býður lögleiðing á ræktun
hans upp á mikla verðmætasköpun,
bæði á Íslandi og annars staðar.
Í október síðastliðnum á eyjunni
Oahu fékk röskur göngugarpur að
upplifa draum sumra er leið hans lá
meðfram lítilli á í dalnum Waipiʻo.
Fínasta bjórilm lagði af ánni og
við frekari eftirgrennslan kom í ljós
að þarna hafði frárennsli frá fyrirtæki
Paradise Beverages Inc., einum helsta
dreifingaraðila áfengis á Havaí
komist í náttúrulegt lindarvatn sem
áfram streymdi svo að strandlengju
Honolulu.
Áin, þótt lítil sé, rennur í höfn
Pearl Harbor á suðurhluta eyjunnar
Oahu og þótt hugtakið bjór-á sé
draumur sumra verður að líta til þess
að mikil mengun stafar af sem getur
raskað nærliggjandi lífríki bæði dýra
og gróðurs.
Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem
bjórmagn blandast ánni enda hafa
íbúar eyjunnar tekið eftir ilm árinnar
í áraraðir en látið sér fátt um finnast.
Þó hefur verið um tvenns konar lykt
að ræða, þá bjórlykt, en einnig af
ávaxtapúnsi.
Samkvæmt umfjöllun þarlendu
frétta stofunnar, HawaiiNewsNow,
var skýringin sú að þegar lykt
ávaxtapúnsins fannst þá hefði 0,4%
sykurmagn fundist í vatni árinnar. Í
kjölfar þess sem á undan var gengið
setti göngugarpurinn sig í samband
við Caroll Cox, umhverfisverndar-
sinna og yfirmann sjálfseignarstofn-
unarinnar EnviroWatch, sem meðal
annars er þekkt fyrir baráttu sína gegn
umhverfisspjöllum. EnviroWatch
kom þeim niðurstöðum á framfæri
við embættismenn 8. nóvember síð-
astliðinn að mengunarvaldurinn væri
Paradise Beverages, stærsti birgir rík-
isins á áfengum drykkjum.
„Núna höfum við verið í beinu
sambandi við bæði samgöngu- og
heilbrigðisráðuneytin, fulltrúar
þeirra eru væntanlegir á staðinn og
við ætlum að athuga málin,“ sagði
Anthony Rowe, rekstrarstjóri Paradise
Beverages, sem telur mögulegt að
bjór og sykurstreymið gæti verið að
koma frá þeim og því vilji þeir koma
því á framfæri að þeir séu að vinna
með réttum yfirvöldum.
Caroll Cox lét hins vegar hafa
eftir sér að þótt margir væru hrifnir af
fyrirtækinu Paradise Beverages Inc.
þá væri þetta fyrir honum bara enn
einn hræðilegur, hræðilegur dagur í
paradís. /SP
Havaíska eyjan Oahu:
Þar sem (bjór)áin rennur í rólegheitunum niður að sjó
Áfengismagn árinnar er ekki nema
1,2% en þó ættu einhverjir að geta
fengið sér þar í aðra tána. Spurning
um að vaða yfir? Mynd / Carrol Cox