Bændablaðið - 02.12.2021, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021
LÍF&STARF
Íslenska tæknifyrirtækið Alor
ehf. var stofnað í þeim tilgangi
að vinna að þróun og síðar fram-
leiðslu á sjálfbærum álrafhlöðum
sem er ætlað að hraða orkuskipt-
um m.a. í samgöngum, sjávarút-
vegi, landbúnaði og fjölbreyttum
iðnaði.
Alor ehf. er í samstarfi við
Háskóla Íslands og spænska fyrir-
tækið Albufera Energy Storage sem
er leið andi í þróun á álrafhlöðum
í Evrópu og hefur unnið að þróun
tækn innar síðustu átta ár.
Um 95% endurvinnanlegar og
engin eld- eða sprengihætta
Álrafhlöður Alor verða um 95%
endurvinnanlegar, af þeim stafar
hvorki eld- né sprengihætta auk þess
sem þær eru hagkvæmar og hafa
mikla afkastagetu. Þá eru notkunar-
möguleikar álrafhlaðna fjölþættir,
s.s. sem varaafl í ýmsum iðnaði og
aflgjafar sem ganga fyrir endurnýj-
anlegri orku. Einnig getur tæknin
nýst í farartæki í stað blýsýrugeyma.
Þá vinnur Alor einnig að þróun og
framleiðslu stórra orkugeymslna
úr áli sem verður unnt að nýta til
þess að geyma umfram framleidda
raforku og stuðla að bættri nýtingu
hennar. Þá mun tæknin stuðla að
auknu afhendingaröryggi raforku
þegar til þess kemur að flutnings-
leiðir rofna, t.d. sökum óveðurs,
eldgosa eða annarra náttúruhamfara.
Umhverfisvæn tækni í stað
mengandi orkugjafa
Linda Fanney Valgeirsdóttir,
tók nýverið við starfi sem fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins og segir
hún spennandi verkefni fram undan
enda ljóst að ákall eftir grænum
lausnum hefur aldrei verið háværara.
Markmið Íslands er að ná kolefn-
ishlutleysi árið 2040 og að landið
verði óháð jarðefnaeldsneyti fyrir
árið 2050. Sjálfbærar lausnir líkt og
álrafhlöður munu spila stórt hlut-
verk á þeirri vegferð. Hún segir að
tækifærin á markaði séu gríðarleg
og áhugi fyrirtækja og stjórnvalda
sé mikill.
Þá bendir Linda Fanney á að mik-
ilvægt sé að framleiðsla rafhlaðna
Alor ehf. er umhverfisvæn og unnt
er að endurvinna um 95% hverrar
álrafhlöðu. Hún segir að leiðarstef
Alor sé að innleiða umhverfisvæna
tækni sem leysir af hólmi mengandi
orkugjafa.
Samstarfsaðilar
Samstarfsaðili Alor er Albufera
Energy Storage sem er með
höfuðstöðvar í Madrid á Spáni.
Fyrirtækið hefur um árabil unnið
að rannsóknum og þróun á
álrafhlöðutækninni og fengið öflugan
stuðning úr Evrópusjóðum.
Rannsóknar- og þróunarfasa tækn-
innar er að ljúka auk þess sem hún
hefur farið í gegnum prófanir við
erlenda háskóla. Unnið er að því að
yfirfæra tækniþekkingu frá spænska
fyrirtækinu til Íslands.
Alor er í samstarfi við Háskóla
Íslands um að taka við tækninni og
vinna að undirbúningi framleiðslu
álrafhlaðna á Íslandi.
Linda Fanney segir að mikill
áhugi sé á því að framleiðslu Alor
verði hraðað og í því sambandi er
unnið að samningum við nokkur
öflug fyrirtæki sem munu koma að
kostun frumgerðar álrafhlaðna. Slíkir
samningar eru mikilvægir til þess
að flýta ferlinu í því skyni að mæta
þörfum fyrirtækjanna. Sem dæmi um
þýðingarmikið samstarf má nefna
samstarf Alor og Landsnets sem
leggur áherslu á aukið afhendingar-
öryggi raforku sem hin nýja tækni
mun stuðla að.
Frumgerð í apríl 2022
Fyrirhugað er að frumgerð
álrafhlaðna verði tilbúin í apríl 2022.
Í framhaldinu fara fram prófanir á
tækninni í samstarfi við Háskóla
Íslands og framtíðarviðskiptavini
Alor, m.a. á sviði sjávarútvegs og
landbúnaðar. Á árinu 2023 er áætlað
að tilraunaframleiðsla hefjist og
framleiðslan verði aðlöguð að þörfum
markaðarins.
Ætlað að gegna lykilhlutverki
í orkuskiptunum
Valgeir Þorvaldsson er einn af
stofnendum Alor ehf. Meðstofnendur
hans í fyrirtækinu eru Joaquín
Chacón, forstjóri Albufera Energy
Storage á Spáni, Kanadamaðurinn
og frumkvöðullinn Robert
C.A Frederickson sem á fjölda
einkaleyfa af margvíslegum toga,
m.a. í líftækni og Salvör Jónsdóttir
skipulagsfræðingur.
Valgeir segir að álrafhlöður Alor
verði umhverfisvænar og muni gegna
lykilhlutverki í orkuskiptunum. Þá
segir hann að framleiðsla þeirra muni
leiða til aukinnar verðmætasköpunar,
fjölda starfa og nýrrar tækniþekkingar
hér á landi.
Verksmiðja í undirbúningi
– Hvar er fyrirhugað að hefja
framleiðslu?
„Um þessar mundir er verið að
skoða ákjósanlegan stað fyrir álraf-
hlöðuverksmiðju Alor hér á landi.
Um verður að ræða verksmiðju sem
mun ekki valda mengun í andrúms-
lofti eða hafa skaðleg áhrif á náttúru.
Fyrirhugað er að verksmiðja verði
tilbúin á árinu 2025 og framleiðsla
geti hafist í kjölfarið,“ segir Valgeir.
Framleiðsla á álrafhlöðum
Alor verður því mjög ólík því sem
þekkist við framleiðslu Lithium-
Ion rafhlaðna sem eru þekktar
í margvíslegum raftækjum og
rafbílum. Til umfjöllunar hefur
verið í erlendum fjölmiðlum eins
og BBC að Lithium-Ion rafhlöður
innihalda margvísleg eiturefni eins
og þungmálmana liþíum, kóbalt,
mangan og nikkel, sem auk þess
finnast aðeins í mjög takmörkuðu
magni á jörðinni. Ál, eða aluminium,
er aftur á móti þriðja algengasta
frumefnið á jörðinni á eftir súrefni
og kísil og er sagt tólfta algengasta
frumefnið í alheiminum.
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Álrafhlöðuframleiðsla
Svona sjá menn fyrir sér mögulega orkugeymslusamstæðu álrafhlaðna. Fyrirhugað er að frumgerð álrafhlaðna verði
tilbúin í apríl 2022. Í framhaldinu fara fram prófanir á tækninni í samstarfi við Háskóla Íslands og framtíðarviðskiptavini
Alor, m.a. á sviði sjávarútvegs og landbúnaðar. Mynd / ALOR
Valgeir Þorvaldsson, einn af stofnendum ALOR, og Linda Fanney Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri. Um þessar mundir er verið að skoða ákjósanlegan
stað fyrir álrafhlöðuverksmiðju fyrirtækisins hér á landi sem á að geta hafið starfsemi á árinu 2025. Mynd / HKr.
Álrafgeymar í færanlegum gámum geta nýst sem varaafl. Tækninni er m.a. ætlað að tryggja aukið afhendingaröryggi
raforku þegar til þess kemur að flutningsleiðir rofna, t.d. sökum óveðurs, eldgosa eða annarra náttúruhamfara.
Slíkar raforkugeymslur eiga að vera auðflytjanlegar og af þeim stafar hvorki eld- né sprengihætta. Mynd / ALOR
Joaquín Chacón, forstjóri Albufera
Energy Storage á Spáni. Hann er einn
af meðstofnendum ALOR.