Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 44

Bændablaðið - 02.12.2021, Qupperneq 44
44 Bændablaðið | Fimmtudagur 2. desember 2021 LÍF&STARF Landið Georgía liggur við austurmörk Evrópu eða vestur­ hluta Asíu í fjalllendi milli Svarta­ og Kaspíahafs sem kallast Kákasus. Landamæri Georgíu liggja að Rússlandi, Armeníu, Aserbaídsjan og Tyrklandi. Georgía er um 63.000 ferkílómetrar og svipað á stærð og Írland. Íbúafjöldi landsins er rúmlega 3,9 milljónir og þar af býr einn fjórði þjóðarinnar, rúm ein milljón, í höfuðborginni Tbilisi. Borgin er staðsett í miðju landsins og greitt þaðan til allra landshluta. Heitið Tbilisi þýðir heitur staður og vísar til þess að í borginni og umhverfis hana er mikið um heitar brennisteinslaugar. Gott útsýni er yfir gömlu borgina frá Narikala, sem er virki sem var upphaflega reist á 4. öld. Virkið var endurbyggt á 13. öld eftir að hafa brunnið til grunna og gerðar á því miklar endurbætur árið 1997. Eftir að hafa skoðað virkið, kirkjuna því tengdu og garðinn umhverfis var farið í skoðunarferð um gamla bæinn sem óneitanlega er mjög tilkomumikill. Í miðjum bænum er gil og við enda þess er fallegur foss og um gilið lítil á sem fellur í Mtkvari-ána sem rennur um Tbilisi. Jósep Stalín fæddist í borginni Gori og samstarfsmaður hans, Lavrenriy Beria, er einnig Georgíumaður og tónskáldið Aram Khachaturian fæddist í Tbilisi. Grasagarðurinn í Tbilisi Staðarleiðsögumanni til talsverðrar mæðu ákvað ég að slíta mig frá hópnum sem ég var með og var á leið að skoða helstu menningarmiðstöðvar borgarinnar, þinghúsið, óperuna, Anchiskhati-kirkjuna og íkonana þar, og fara í grasagarðinn í Tbilisi. Garðurinn er í gamla hluta Tbilisi og var upphaflega hluti af lendum Narikala-virkisins. Hans er fyrst getið í ferða- sögu Frakkans Jean Chardin frá 1625 en það var ekki fyrr en árið 1845 sem hann var formlega gerður að grasagarði. Lægsti punktur garðsins er í 417 metra hæð yfir sjávarmáli en sá hæsti í 714 metra hæð. Ganga frá aðalinnganginum í gömlu borginni um garðinn er talsvert upp á við og tekur í þegar lítill tími er í boði og ætlunin er að komast yfir sem mest, en garðurinn er í heild yfir 100 hektarar að stærð. Samkvæmt opinberum tölum er að finna um 40 þúsund plöntur í garðinum og yfir 4.500 tegundir plantna sem upprunnar eru í Kákasuslöndunum og víðar í heiminum. Á ólíkum sýningarsvæðum í garðinum er meðal annars að finna safn af sjaldgæfum plöntum í útrýmingarhættu frá Kákasus, lækninga- og nytjajurtum og safn trjáa og runna víða að úr heiminum. Í garðinum er einnig að finna sýnishorn af japönskum garði sem tákn um vináttu Japan og Georgíu og var hannaður sem samvinnuverkefni japanska sendiráðsins í Georgíu og ráðhússins í Tbilisi. Nálægð við guð Í næsta áfanga ferðarinnar var haldið frá Tbilisi og í norðaustur í átt að Jvari-klaustrinu frá 6. öld. Klaustrið er eitt af mörgum slíkum og kirkjum í Georgíu sem eru á Heimsminjaskrá UNESCO. Jvari er byggt á fjalli í 2.150 metra hæð yfir sjávarmáli og því drjúgur spölur þangað á bíl. Á leiðinni er gaman að sjá hvernig gróðurfarið breytist úr graslendi yfir í þéttar breiður af hafþyrni og svo greni og furu en aftur graslendi þar sem klaustrið stendur. Eins og flestar kirkjur og klaustur í Georgíu er Jvari hluti af trúarhefð sem kallast rétttrúnaðarkirkjan í Georgíu og er hluti af Austurkirkjunni. Yfir 80% landsmanna tilheyra rétttrúnaðarkirkjunni, tæp 11% eru múslimar, 3% tilheyra armensku postulakirkjunni, 0,5% játast kaþólsku kirkjunni og páfanum í Róm en 2,5% öðrum eða engum trúarbrögðum. Rétttrúnaðarkirkjan í Georgíu er ein af elstu kristnu trúarhreyfingum í heimi og rakin til 4. aldar eftir Krist og trúboðs heilagrar Nino, þjóðardýrlings Georgíu. Vínviðarkrossinn, sem er tákn Nino, er með eilítið slútandi þverslá. Sagan segir að Nino hafi bundið fyrsta vínviðarkrossinn saman úr greinum vínviðar og hári sínu. Ef mark er takandi á goðsögunni um staðsetningu Jvari var klaustrið reist á grunni heiðins hofs þar sem heilög Nino reisti einn af vínviðarkrossum sínum. Vesturhlið klaustursins stendur nánast á blábrún og um tveimur kílómetrum ofan við bæinn Mtskheta. Á Sovétárunum, þegar kristni og önnur trúarbrögð voru bönnuð í Sovétríkjunum, var Jvari breytt í safn. Til að auðvelda fólki aðgang að safninu var settur upp kláfur til að ferja fólk frá Mtskheta í safnið. Kláfurinn náði aldrei að uppfylla tilgang sinn þar sem bilanir í honum voru tíðar. Sagt er að heimafólk hafi aldrei sætt sig við að leiðin að klaustrinu væri auðveld og því reglulega unnið skemmdarverk á gangverki kláfsins. Leiðin að helgidóminum átti að vera píslarganga og erfið og að lokum var kláfurinn tekinn niður. Of langt mál yrði að segja frá öllum þeim fallegu, bæði að utan og innan, og sögu þeirra guðshúsa sem heimsótt voru á ferðalagi mínu um Georgíu. Staðaleiðsögumaðurinn naut þess greinilega að fræða mig og samferðafólk mitt um gildi trúarinnar í sögu landsins og hvernig hún er þjóðinni haldreipi enn í dag. Persónulega þótti guðfræðingnum í ferðinni reyndar nóg um og hugsaði stundum með sér: „Ó nei, ekki önnur kirkja,“ þegar líða tók á ferðina. Matur í Georgíu Georgíumenn eru stoltir af innlendri matarhefð og innlendum vínum og mega vera það því hvort tveggja er afskaplega gott. Landsmenn gefa sér góðan tíma til að borða enda iðulega margir réttir í boði og sjálfsagt þykir að hafa vín með öllum mat. Brauð er borið fram með nánast öllum mat og yfirleitt er það nýbakað og heitt. Réttur sem kallast khachapuri adjaruli samanstendur af bátlaga brauði, bræddum osti og eggjum. Framreiðslan er ólík eftir héruðum og sums staðar er rétturinn borinn fram með baunum, grænmeti eða kjöti. Churchkhela er búið til með því að þræða hnetur, oft valhnetur, á þráð þannig að það líkist talnabandi. Bandinu er síðan dýft í þykkan vín- berja- og vínviðarlaufslög nokkrum sinnum. Smám saman storknar lög- urinn utan á hnetubandinu og verður eins og pylsa í laginu. Útkoman er afskaplega góð og seld sem sælgæti. Kninkala svipar til þess sem almennt kallast dumplings hér heima og er vinsælt sem smáréttur í Georgíu, bæði eitt og sér eða með öðrum mat. Inni í hveitibögglunum sem rétturinn líktist í mínum augum Georgía: Perla Kákasusfjalla Kokgleypt churchkhela. Mynd / Michaela Krejcova Svipmynd frá grasagarðinum í Tbilisi og fáni Georgíu. Myndir / VH Michaela Krejcova, fararstjóri í Georgíu. Kross heilagrar Nino. Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.