Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.01.2022, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 29.01.2022, Qupperneq 32
Orkuskipti í sam- göngum eru hins vegar þjóðhagslega hagkvæm og tæknilega möguleg. Sigurður Friðleifsson Eigi skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum að nást þurfa orkuskiptin, samhliða breyttum ferðavenjum, að ganga mjög hratt fyrir sig.  starri@frettabladid.is Rafbílum hefur fjölgað jafnt og þétt á Íslandi undanfarin ár, sér- staklega þegar horft er til fólksbíla og segir Sigurður Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkusetursins, það vera afar jákvæða þróun. „Þessi þróun lítur vel út þegar kemur að fólksbílum en það er líka eins gott, því að til að ná skuld- bindingum okkar í loftslagsmálum þá þurfa orkuskiptin, samhliða breyttum ferðavenjum, að ganga mjög hratt fyrir sig. Í þessum mánuði voru um 75% fólksbíla sem voru nýskráðir hér á landi bílar sem stinga má í samband.“ Hann segir marga velta fyrir sér af hverju þessi þróun þurfi að ganga svona hratt fyrir sig. Svarið sé einfalt, heimurinn þurfi hrein- lega að fara í hröð orkuskipti. „Við Íslendingar erum í raun búnir með 2/3 þar sem græn orka er þegar komin að fullu í raforku- framleiðslu og húshitun. Vega- samgöngur eru því eini heimilis- notkunarflokkurinn sem er eftir. Orkuskipti í samgöngum eru hins vegar þjóðhagslega hagkvæm og tæknilega möguleg, þannig að okkur er svo sem engin vorkunn að gera þetta hratt. Orkuskiptin skila svo miklu meira af jákvæðum þáttum en bara minni losun, því þetta stuðlar líka að orkuöryggi, gjaldeyrissparnaði og minni heilsuspillandi mengun.“ Úrval rafbíla að aukast Tæknilegar forsendur eru líka mjög góðar og batna hratt, að hans sögn. „Nánast allir bílaframleiðendur bjóða nú upp a.m.k. eina tegund 100% rafbíla og úrvalið eykst mjög hratt. Úrvalið mun brátt fylla allar gerðir fólksbifreiða, allt frá stórum pallbílum niður í ódýra smábíla, þannig að forsendur fyrir 90-100% nýskráningarhlutfalli rafbíla nálgast hratt. Allt stefnir í að fram- leiðslukostnaður rafbíla lækki talsvert næsta áratuginn þannig að ívilnanaþörf á að geta minnkað í framtíðinni.“ Hingað til hafa úrval rafbíla og innviðir verið helstu hindranir varðandi útbreiðslu rafbíla hér á landi en báðir þessir þættir hafa þó breyst hratt til batnaðar. „Nýjar tegundir hrúgast inn og stöðugt er verið að bæta hraðhleðslunetið á landinu með nýjum og öflugri stöðvum. Ef skoðaðar eru áherslur og fjárfestingar bifreiðaframleið- enda og stefnu langflestra stjórn- valda á Vesturlöndum er alveg ljóst, fyrir þá sem kynna sér málið, að þetta stefnir bara í eina átt, það er að rafvæðingu bifreiða. Að reyna að streitast á móti því er harla furðulega afstaða að mínu mati.“ Hraðar breytingar Staða rafhleðslustöðva um landið fer hratt batnandi, að sögn Sigurðar. „Það eru bara örfá ár síðan að það var hreinlega ómögu- legt að ferðast um landið á rafbíl. Nú er hægt að ferðast um land allt með hjálp hleðslustöðva, en sums staðar eru flöskuhálsar þar sem rafbílaeigendur gætu þurft að bíða á háannatímum. Þetta mun líklega lagast með fleiri stöðvum. Sem dæmi má nefna að leggurinn milli Reykjavíkur og Akureyrar hafði aðeins fjórar hraðhleðslur fyrir örfáum árum. Í sumar verða þær líklega um 25 og þar að auki öflugri.“ Frábær orkunýtni Honum finnst ósanngjörn sú umræða að tengja fjölgun rafbíla við fjölgun virkjana og orkuskort. „Það má ekki gleyma því að aðal- kostur rafbíla er frábær orkunýtni. Ef allir bílar væru rafvæddir, þá þyrftum við bara þriðjung af þeirri orku sem við notum nú í bílaflot- anum í formi olíu. Við erum þjóð í vexti og allar nýbyggingar og fleira þarf raforku. Sem dæmi má nefna heita rafmagnspotta sem eru mikið í tísku um þessar mundir. Þeir þurfa talsvert rafmagn, nánast tvöfalt meira en rafbíll á ári. Það er enginn að spyrja hvar á að virkja fyrir heitu pottana.“ Rafbílar hafa líka þann kost að geta aðlagað hleðslu að aflgetu kerfisins, til dæmis með því að hlaða mest á nóttunni þegar önnur notkun er í lágmarki og fullnýta þannig betur framleiðslugetu virkjana sem fyrir eru. „Ég held að það sé vilji allra að tryggja að orkuleysi muni ekki standa almennri uppbyggingu og orkuskiptum í samgöngum fyrir þrifum. Það eru bara ekki allir sammála um leiðirnar að þessari sameiginlegu sýn.“ Verða að ganga í takt Sigurður er nokkuð bjartsýnn á að markmið stjórnvalda um 40% hlutdeild endurnýjanlegra orkugjafa fyrir árið 2030 náist. „Ég vil vera bjartsýnn en til að markmiðið náist verða stjórnvöld, fyrirtæki og neytendur að ganga í takt. Ef neytendur halda áfram að kaupa nýja bensín- og dísilbíla þá nást þessi markmið að sjálfsögðu ekki. Það væri auðvitað sorglegt ef okkur mistækist hrapallega að ná þessum markmiðum.“ ■ Orkuskipti í samgöngum eru þjóðhagslega hagkvæm Sigurður Friðleifsson, framkvæmda- stjóri Orkusetursins. Staða rafhleðslustöðva um landið fer hratt batnandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY  Straumlind er nýtt fyrir- tæki á raforkumarkaði sem hefur að leiðarljósi að bjóða heimilum, rafbílaeigendum og fyrirtækjum hagstæðasta verðið á rafmagni á Íslandi. „Við erum stolt af því að hafa tekið þátt í virkri samkeppni á raforkumarkaði og lækkað verð. Hjá okkur fær fólk sama rafmagn- ið, en borgar mun minna fyrir það. Það er kjarabót fyrir neyt- endur,“ segir Símon Einarsson, verkfræðingur og einn af stofn- endum raforkusölufyrirtækisins Straumlindar. Ódýrara rafmagn á nóttunni Straumlind hyggst fyrst íslenskra fyrirtækja bjóða upp á lægri taxta á næturnar. „Við hlökkum mikið til að kynna formlega ódýrara rafmagn á nóttunni,“ segir Símon. „Slíkt fyrirkomulag tíðkast víða erlendis, en hingað til hafa mælarnir hér á landi ekki mælt hvenær rafmagnið er notað. Því hefur slíkt kerfi ekki verið mögulegt fyrr en nú, að dreifi- veiturnar eru byrjaðar að skipta út gömlu mælunum fyrir snjall- mæla. Snjallmælirinn sendir gögn um notkun notenda fyrir hvern klukkutíma. Því verður loksins  Framtíðin er spennandi hjá Straumlind Símon Einars- son er verk- fræðingur og einn eigenda Straumlindar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR hægt að bjóða breytilega taxta, en á heildsölumarkaði er raforka ein- mitt seld í klukkutíma tímabilum fram í tímann og á fljótandi verði.“ Komandi orkuskipti þurfa snjallar lausnir „Straumlind var stofnuð til þess að gera raforkukerfið bæði snjallara og skilvirkara, og skila afrakstr- inum til heimilanna í formi lægra raforkuverðs. Í því felst að nýta allt betur,“ segir Símon. Starfsemi raforkusala snýst að stórum hluta um að áætla raf- magnsþörf notenda fyrir hvern klukkutíma mánuð fram í tímann og jafna út verðsveiflur í heildsölu. Raforkusalar eru einnig í kjör- aðstöðu til að aðstoða dreifiveitur við að draga úr álagstoppunum, sem eru ein af þekktum áskor- unum við orkuskiptin. „Málið er að ef allir fá sér raf- magnsbíl og ætla að elda kvöldmat á sama tíma og þeir setja bílinn í hleðslu að þá munu álagstoppar í raforkukerfinu aukast mjög. Ókosturinn við þessa álagstoppa er sá að til að kerfið ráði við þá þarf öflugri strengi, sem þjóna svo engum tilgangi utan háanna- tíma. Að skipta þeim út er mjög kostnaðarsamt enda þarf að grafa upp götur og slíkt. Hægt er að beita ýmsum aðferðum til að lækka álagstoppa, en ódýrara rafmagn á nóttunni getur stuðlað að því að notkun dreifist jafnar yfir sólar- hringinn. Þannig hjálpum við til við orkuskiptin og teljum okkur hafa margt fram að færa í þeim efnum,“ segir Símon. Tækifæri í nýsköpun Símon er þakklátur góðum við- tökum neytenda við Straumlind, sem nú er á sínu öðru starfsári. „Við finnum fyrir miklum áhuga hjá neytendum á ýmiss konar nýjungum sem eru kannski ekki alveg komnar, en eru svo sannar- lega væntanlegar í ekki svo fjar- lægri framtíð,“ greinir Símon frá. Það kemur sér því vel að hjá Straumlind starfa sérfræðingar með brennandi áhuga á nýsköpun. „Framtíðin er spennandi. Við erum að þróa okkar eigið tölvu- kerfi og með sjálfvirkni og gagna- vísindum má hámarka nýtingu innan raforkukerfisins, lágmarka kostnað og stuðla að afljöfnuði. Við horfum björtum augum til framtíðar,“ segir Símon. ■ Allar nánari upplýsingar á straumlind.is. 4 kynningarblað 29. janúar 2022 LAUGARDAGURORK A ÍSLANDS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.