Fréttablaðið - 29.01.2022, Page 49
Forsætisráðuneytið auglýsir eftir lögfræðingi til tímabundinna starfa á skrifstofu yfirstjórnar í ráðuneytinu.
Skrifstofan fer m.a. með málefni ríkisstjórnar og ríkisráðs, lög um Stjórnarráð Íslands, samskipti við Alþingi
og forseta Íslands, alþjóðasamskipti forsætisráðherra og upplýsingagjöf til almennings og fjölmiðla.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi.
Starfið er tímabundið til 31. maí 2023 og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar nk.
Allir eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkisins og Félags
háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins. Starfshlutfall er 100%.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta
gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019.
Nánari upplýsingar veitir
Ágúst Geir Ágústsson skrifstofustjóri skrifstofu yfirstjórnar, agust.geir.agustsson@for.is
Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Helstu verkefni
• Aðkoma að undirbúningi mála fyrir
ríkisstjórnarfundi og ráðherranefndafundi,
eftirfylgni og samhæfing.
• Aðkoma að undirbúningi ríkisráðsafgreiðslna.
• Lögfræðileg ráðgjöf, einkum á sviði
stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttar.
• Svörun erinda og fyrirspurna af ýmsu tagi.
Hæfniskröfur
• Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
• Góð þekking á stjórnskipunarrétti og
stjórnsýslurétti.
• Reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar er
æskileg.
• Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til að
setja fram mál í ræðu og riti.
• Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og
þjónustulund.
Lögfræðingur á skrifstofu yfirstjórnar
Jarðvinnuverktaki í Hveragerði
Jarðvinnuverktaki í Hveragerði óskar að ráða til starfa
vanan vinnuvélastjórnanda.
Upplýsingar veitr Jóhann í síma 6933110
EMS 518325
Toyota Kauptúni
Kauptúni 6
570-5070
BÍLAMÁLARI
STARFSSVIÐ:
· Almenn störf bílamálara
HÆFNISKRÖFUR:
· Próf í bílamálun
· Starfsreynsla skilyrði
· Góð þekking á bílum
· Vandvirkni og stundvísi
· Hæfni í mannlegum samskiptum mikilvæg
Umsóknarfrestur er til og með 7.febrúar 2022.
Nánari upplýsingar veitir Fanný Bjarnadóttir á netfanginu fanny@toyota.is
Kauptúni
Erum við
að leita að þér?