Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 18
Fólki í Emmanuel mótmælenda- kirkjunni og St. Péturskirkjunni í Teheran í íran var bannað í febrúar 2012 að tala farsi á samkomum á föstudögum, en farsi er aðaltungumál írans.(2) 2. Múgur múslíma ræðst á kirkjur, skemmir og eyðileggur þær og innbú vegna brota á skilyrðum Omars og af öðrum ástæðum. Ástæðurnar eru oft ekki merkilegar svo sem að setja upp kirkjuklukkur, krossa eða að einhver kristinn einstaklingur hafi brotið gegn skilyrðum Omars. Árásirnar eru oft að undirlagi imama sem eru andlegir leiðtogar múslíma og prédika hatur gegn kristnu fólki. Múgurinn ræðst ekki bara á kirkjur heldur einnig á kirkjugesti sem þeir berja, misþyrma, myrða og nauðga konum. Þessar árásir eru mjög algengar í mörgum löndum múslíma svo sem í Pakistan, írak, Indónesíu, Egyptalandi, Afganistan, Nígeríu og fleiri löndum og hafa staðið yfir árum saman. Fréttir af þessum árásum birtast yfirleitt aldrei í fjölmiðlum Vesturlanda og múslímar sem taka þátt í þessum aðgerðum eru aldrei dregnir fyrir dóm. Hirðingjar af Fulani-ættbálknum eru múslímar og af ættbálki Muhammadu Buhari forseta í Nígeríu. Þeir réðust í september 2017 á þorp kristinna og myrtu 20 manns, þar á meðal þriggja mánaða gamalt barn og átta önnur börn. Slíkar árásir Fulani-ættbálksins hafa staðið yfir í mörg ár og hafa þeir myrt hundruð ef ekki þúsundir kristinna manna, brennt til ösku hundruð kirkna og heimili kristins fólks.(3) 3. Árásir á kirkjur og kristna sem jihad eru mun betur skipulagðar, hrottalegri og banvænni en aðrar árásir. Árásirnar eru oftast gerðar af öfgahópum múslíma svo sem ISIS, Al Qaeda, Boko Haram, Al-shabaab eða öðrum öfgasamtökum múslíma og oft gerðar á helgidögum kristninnar þegar flestir eru í kirkju. Á pálmasunnudag var gerð sjálfs- morðs árás á tvær kirkjur í Egyptalandi 9. apríl 2014. 44 voru drepnir og um 125 særðir. Þótt ISIS hafi hrósað sér af ódæðinu, þá eru fleiri en öfgahópar múslíma sem standa fyrir slíkum árásum. (4) Innan við mánuð frá því að Muhamed Morsi varð forseti Egyptalands í júní 2012 var búið að brenna 87 kirkjur til ösku. Enn er verið að brenna kirkjur og ráðast á kirkjugesti í Egyptalandi og öðrum löndum múslíma. BOÐUN KRISTINNAR TRÚAR BÖNNUÐ Bannað að reyna að fá múslíma til að skipta um trú. Krossar, Biblíur og aðrar kristilegar bækur eru bannaðar og mega ekki vera sýnilegar múslímum. í maí 2017 voru tveir kristnir Kínverjar myrtir í Islamabad í Pakistan fyrir að prédika kristna trú. (5) Reiðir múslímar réðust inn í kirkju, börðu kirkjugesti til óbóta og nauðguðu 15 konum ÍÚganda þann 15. jan. 2017 vegna boðunar á kristinni trú.(6) MÚSLÍMUM BANNAÐ AÐ GERAST KRISTNIR OG AÐRAR TAKMARKANIR Samkvæmt Kóraninum og skilyrðum Omars, þá er múslími sem snýst til kristinnar trúar réttdræpur. Á undanförum árum hafa mjög margir múslímar gerst kristnir og margir þeirra verið myrtir. Sextíu og áttatrúskiptingar voru drepnir í sjálfsmorðsárás í frak 7. ág. 2017.(7) Bannað að koma í veg fyrir að kristinn einstaklingur snúist til íslamskrar trúar.Þeir sem skipta um trú og gerast múslímar fá yfirráðarétt yfir börnum og eignum fjölskyldunnar. Guðlast er bannað. Guðlast er mjög lauslega túlkað. Gagnrýni eða móðgun gagnvart íslam, spámanninum eða jafnvel gagnvart múslímum almennt er skilgreint sem guðlast. Viðurlög eru yfirleitt dauðadómur. Tveir múslímar geta farið til imams eða yfirvalda í ríkjum íslams og ásakað kristna menn um guðlast. Þeim er trúað, 18 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.