Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 2
Hvernig Ufiim við liíiimV Eftir því sem maður eldist kemst maður síður hjá því að velta fyrir sér endalokum jarðneskrar tilveru, dauðanum sjálfum, um leið og maður horfir aftur á langa ævi og til þess hvað tekur við eftir dauðann. Við sem kristin erum lifum eins og aðrir í óvissu um hvað gerist nákvæmlega við dauðann. Eins lifum við í óvissu um það hvernig eilífa lífið verður nákvæmlega. En við lifum ekki í óvissu heldur í lifandi von um að Jesús Kristur lifir og tekur við okkur og að eilífa lífið er líf í nærveru hans. í ár eru 150 ár frá fæðingu séra Friðriks Friðrikssonar og full ástæða er til að lífa aftur til lífs hans og einlægrar trúar sem var uppspretta þjónustu hans í Guðs ríki. f ár eru einnig 100árfráfæðingu BillysGraham, sem lést nú ífebrúar 99 ára að aldri. Þar fór maður sem naut virðingar og var trúr allt til dauða, mætti einnig víða mótstöðu enda eindreginn boðberi fagnaðarerindisins um Jesú Krist - og að það er ekkert og enginn sem hefur opnað okkur leiðina að faðmi Guðs föður annað en Jesús. Væntanlega beinir Bjarmi sjónum að ævi Grahams síðar á árinu. Líf séra Friðriks og Billys Graham er okkur góð fyrirmynd um það hvernig við getum lifað lífinu í nærveru Drottins og þjónustu við hann. Þetta tölublað geymir margvíslegar greinar, minningar um séra Friðrik, fræðslu um ofsóknir á hendur kristnu fólki í löndum múslíma, fróðleiksmola um Kirkjuturninn, umfjöllun um náðarmeðölin og náðar- gjafirnar hjá Lúther, frásögu af ferð á samveru Blessunarhreyfingar, umfjöllun um bók sem fjallar um tilfinningalega heilbrigða kirkju, fróðleik um hvað er líkt og hvað ólíkt í austrænni og kristinni bænahefð. Þar fyrir utan er grein um kvíða, biblíufræðsla tengd daglegum önnum, fréttamolar, Bjarmabros og fleira. Má segja að þetta snerti mjög mörg svið trúarlífsins, daglegs lífs og þjónustu við Drottin. Án efa eru þar greinar sem hjálpa okkur einnig til að lifa lífinu í takt við vilja Guðs með okkur hvert og eitt. Þetta er m.a. undirstrikað í greininni um tilfinningalega heilbrigða kirkju. Þjónusta við Drottin sem á sér ekki uppsprettu i nánu samfélagi við frelsarann frá degi til dags verður auðveldlega lítið annað en mannlegt strit. Lifum lífinu með Jesú! Stundum er haft samband við undir- ritaðan vegna þess sem birtist í Bjarma, bæði til þess að þakka og hrósa eða koma með ábendingar, jafnvel aðfinnslur og gagnrýni. Við tökum gjarnan við viðbrögðum í blaðið, svo framarlega sem um málefnalega umræðu er að ræða og innan ákveðins orðafjölda. Hafa má samband við undirritaðan með tölvupósti á ragnar@sik.is. Ragnar Gunnarsson SOLSKOGARhf S. Waage ehf. Gardabæ GA SMÍÐAJÁRN HÓPFERÐIR 5544466 <2^ Hjálparstarf \J\J kirkjunnar Bjarmi í. tbl. 112. árgangur, apríl 2018. ISSN 1026-5244 Utgefandi: Salt ehf í samstarfi við Samband íslenskra kristniboðsfélaga Ritstjórn: Ragnar Gunnarsson, Vigfus Ingvar Ingvarsson og Haraldur Jóhannsson Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson og Vigíus Ingvar Ingvarsson. Afgreiðsla: Háaleitisbraut 58-60,108 Reykjavík, sími 533 4900, fax 533 4909. Kennitala Salts: 600678 0789, reikningsnúmer 0117 26 017476, IBAN: IS18 0117 2601 7476 6006 7807 89, SWIFT: NBIIISRE Vefslóðir: www.bjarmi.is,www.sik.is og www.saltforlag.is. Netpóstur: ragnar@sik.is Árgjald kr.4.950 (þrjú tölublöð), kr. 5.950 til útlanda. Gjalddagi 1. júni. Verð í Iausasölu kr. 1.750. Forsíðumynd: Lightstock Umbrot og hönnun: Emil Hreiðar Björnsson Prentun: Litróf bjarmi.is

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.