Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 29

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 29
„ENGINN GETUR KOMISTINNIGUÐS RI'KI NEMAHANN FÆÐIST AFVATNIOG ANDA." (JÓH. 3:3,5) hægri hönd föðurins. Þeir eiga að vera fætur hans og fara með boð hans. Enn fremur eiga þeir að vera munnur hans og tala orð hans. Þegar þeir flytja friðarkveðju er það í rauninni Jesús sem talar (sbr. Lúk. 10:5nn). Þegar þeir segja: „Barnið mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar", þá eru það orð Jesú sem hljóma. Marteinn Lúther lýsir þessum versum þannig: „[Hér] felur hann þeim prédikunarembættið og gefur þeim vald og myndugleika til að fyrirgefa og tilreikna syndir. Þettasýnirhvað prédikunarembættið er, það er embætti sem líf okkar og sáluhjálp veltur á.“ (LW 69:352/WA 28:466). í samræmi við þetta má lesa í fimmtu grein Ágsborgarjátningarinnar: „Til þess að vér öðlumst trú, er stofnað embætti til að kenna fagnaðarerindið og úthluta sakramentunum, því að fyrir tilstilli orðsins og sakramentanna eins og tækja er gefinn heilagur andi, sem kemur til leiðar trúnni, þar sem og þegar Guði þóknast, í þeim sem heyrafagnaðarerindið". SKÍRNIN í tveimur tilvikum sjáum við að orð Guðs og fyrirheit eru tengd ákveðnum áþreifanlegum efnum. Þetta á bæði við um heilaga kvöldmáltíð og skírn. Við köllum þau gjarnan sakramenti. Efesusbréfið 5:26 segir um skírnina „helga hana með orðinu og hreinsa hana með vatnslauginni." Þess vegna er talað um skírnina í Fræðunum minni sem „vatnið umvafið boði Guðs og samtengt orði Guðs.“ Innsetningarorðin fyrir skírnina er að finna í lok Matteusarguðspjalls: Skírið þá, kennið þeim og sjá, „ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“ (Matt 28:16-20) Skírnin er gefin tyrir orð og skipun Jesú og þess vegna er rangt að segja að hún sé í andstöðu við Guðs orð. Þar sem Jesús stofnsetti skírnina og lofaði að vera nálægur þá starfar hann í skírninni. Það er hann sem skírir. Aftur minnumst við orðanna: „Sá sem á yður hlýðir hlýðir á mig.“ En það er líka minnst á skírnina áður en hún var stofnsett. Þegar faríseinn Nikódemus kemur til Jesú segir Jesús í byrjun: „Enginn getur séð Guðs ríki nema hann fæðist að nýju.“ Hann svarar síðan mótbárum Nikódemusar: „Enginn getur komist inn í Guðs ríki nema hann fæðist af vatni og anda.“ (Jóh. 3:3,5) Jesús segir ekki eingöngu að endurfæðing sé nauðsynleg. Hann útskýrir einnig hvernig mannsbarn getur vitað að hann eða hún hafi fæðst á ný, það er í skírninni. Um þessi orð skrifar Marteinn Lúther að „þess vegna er vatn í þessu tilviki ekki tákn um baráttu þess sem iðrast (norska: anfektelse) heldur algjörlega eðlilegt vatn sem flytur með sér Guðs orð. Fyrir heilagan anda, eða þrenninguna alla, verður það sannarlega andlegt bað." (LW 22:283A/VA 47:11) Mörg önnur vers sem fjalla um skírnina sýna það sama. í Títusarbréfi 3:5 er talað um skírnina sem laug endurfæðingarinnar og endurnýjunar heilags anda. í hvítasunnuræðu sinni boðar postulinn Pétur að syndin veiti ekki eingöngu fyrirgefningu syndanna heldur einnig gjöf heilags anda (Post. 2:38) í Rómverjabréfinu 6:1-11 er skírninni lýst sem sameiningu við Krist í dauða hans og upprisu. Gamli maðurinn deyr og er grafinn með Kristi og nýr maður rís upp í og með upprisu Krists. Endurfæðingunni er þannig lýst á talsvert nákvæmari hátt en Títusarbréfi en áhrifin eru þau sömu. Það sem Jesús ávann með dauða sínum og upprisu hlotnast þeim sem eru skírðir í hans nafni. Hverju kemur skírnin þá til vegar? Hún veitir „fyrirgefningu syndanna, frelsar frá dauðanum og djöflinum og gefur eilífa sáluhjálp öllum, sem trúa því, eins og orð Guðs og fyrirheit hljóða.“ „Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða. (Fræðin minni - Mark. 16:16) KVÖLDMÁLTÍÐIN Á sama hátt og við höfum séð um skírnina er Guðs orð einnig tengt efnunum í kvöldmáltíðinni. Jesús tók brauðið og sagði: „Takið og etið. Þetta er líkami minn sem fyrir yður er gefinn." Sömuleiðis tók hann líka kaleikinn og sagði: „Takið þetta bjarmi | apríl 2018 | 29

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.