Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 31
Blessaðw* staðnr
— Ffald Y Urenin í
Wales
RÓSA ÓLÖF ÓLAFÍUDÓTTIR
Síðastliðið sumar aðstoðaði séra Vigfús
Ingvar Ingvarsson mig við yfirferð á texta
handritsins að bókinni Kæra nafna sem út
kom í október 2017.
Eftir að Vigfús hafði bent mér á það
sem betur mátti fara í texta handritsins,
barst tal okkar að stað með undarlegu
nafni, Ffald Y Brenin [pald uh brenín] í
Wales, en um þennan stað hafði hann
raunar aðeins lesið sem einn af hinum
svokölluðu „þunnu stöðum“. En þannig er,
samkvæmt keltneskri hefð, talað um staði
þar sem mikið og lengi hefur verið beðið
með þeim afleiðingum að fólk upplifir
gjarnan að „skilin milli himins og jarðar"
séu þar „þynnri" en annars staðar.
Frásögn hans vakti svo sannarlega
forvitni mína, sem gerði það að verkum,
að þegar heim kom leitaði ég staðinn uppi
á netinu. Þegar ég fann slóðina http://
www.ffald-y-brenin.org/ opnaðist afar
áhugaverð síða með yfirskriftinni: „Ffald
Y Brenin. Christian Retreat Centre and
House of Prayer,“ (Kristilegt kyrrðar- og
bænahús). Staðurinn ber nafn með rentu
því þetta velska nafn merkir Sauðabyrgi
konungsins. Ég grandskoðaði vefsíðuna
og sá að í nóvember 2017 yrði haldin
ráðstefna í Ffald Y Brenin undir yfirskriftinni
Kingdom Power and Glory Conference
(KPG) sem útleggst á íslensku: „Ráðstefna
um kraft og dýrð guðsríkisins." Ég bókaði
mig á ráðstefnuna og pantaði hótel, flug
og lestarferð og fyrr en varði var ég komin
til Fishguard en það er lítið sveitaþorp í
Pembroke-skíri á vesturströnd Wales.
í LEIGUBÍL ÚR LESTINNI
Þegar ég steig út úr lestinni var orðið
dimmt og það rigndi, enda klukkan orðin
sjö. Á lestarstöðinni beið mín leigubíll.
Það var ákaflega ræðinn og glaðlegur
bílstjóri sem ók sem leið lá til Ffald Y
Brenin. Við höfðum ekki ekið langt þegar
hann hóf samræður. í Ijós kom að vinur
hans hafði unnið í fiski á íslandi. Sá fór
fögrum orðum um land og þjóð að sögn
leigubílstjórans. Regnið buldi á rúðunum
og þurrkurnar höfðu varla við að fjarlægja
það af framrúðunni. Ég spurði bílstjórann
hve langt væri til Ffald Y Brenin. „Það er
tæplega klukkustundar akstur,“ svaraði
hann „sérstaklega í svona slagviðri."
Eftir stutta þögn spurði hann og horfði á
mig í bílstjóraspeglinum: „Ertu trúrækin
(religious)?“ Ég hristi höfuðið. „Hvaða
erindi áttu þá til Ffald Y Brenin?“ „Sko, ég
er ekki trúrækin hins vegar er ég kristin,
hvað varðar trúrækni mína gæti ég kannski
sagt að þar þyrfti ég að bæta mig.“
bjarmi | apríl 2018 | 31