Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 39
SPJALLFUNDIR OG SAMKOMA
Áhugafólki um möguleika og fyrir-
komulag NSU-verkefnisins í söfnuðum
gefst kostur á að taka þátt í: Óform-
legum spjalltíma með Christian A.
Schwarz í Lindakirkju kl. 17:30-18:30.
Samkoma - öllum opin - verður
í Lindakirkju þetta kvöld, 7. júní, kl.
19:30.
Þar verður fjölbreyttur og líflegur
söngur og tónlist með Kór Lindakirkju
sem Óskar Einarsson stjórnar og
væntanlega fleira listafólki.
Frú Agnes M. Sigurðardóttir,
biskup íslands og Christian A. Schwarz
ávarpa samkomuna og sagt verður frá
reynslu af NSU verkefninu í söfnuðum
hérlendis og erlendis.
Umþessarmundirerunniðaðþessu
verkefni í þremur þjóðkirkjusöfnuðum
hérlendis.
Heimsókn Christians A. Schwarz er
merkurviðburðurogdýrmætttækifæritil
kynna við þennan þekkta brautryðjanda
á sviði safnaðaruppbyggingar.
Laugardagsmorgun 9. júní kl. 10-
12 verður spjallfundur í Lindakirkju
með Ommund Rolfsen sem oft hefur
frætt okkur hérlendis og er þaulvanur
vinnu í söfnuðum. Sérstakt tækifæri
fyrir söfnuði sem eru að vinna að
verkefninu.
Malmö United á
lúthersknm gruniii
Hvítasunnukirkjan Malmö United tók það
skref á aðalfundi kirkjunnar í byrjun febrúar
að óska eftir inngöngu í Evangeliska
Fosterlandsstiftelsen (EFS), rúmlega 150
ára gömul lúthersk kristniboðssamtök,
sem starfa nokkuð náið með sænsku
þjóðkirkjunni þó sjálfstæð séu.
Ákvörðunin á sér nokkurn aðdraganda
en Magnus Persson prestur kirkjunnar
hefur á liðnum misserum talað máli þessa
og leitt söfnuðinn í breytingunum, inn að
miðju kirkjunnar, eins og hann orðaði
það. Hann hefur lagt áherslu á traustan
grundvöll frekar en að horfa einungis
á fjöldann. Ritstjóra Bjarma þótti t.d.
merkilegt að mæta í kirkju þar í fyrsta
sinn fyrir nokkrum árum og á göngunum
voru stórar veggmyndir með tilvitnunum í
Ágústínus kirkjuföður og siðbótarmanninn
Martein Lúther. í prédikun voru nokkrar
tilvísanir í Carl Olav Rosenius, sem var
lykilmaður í vakningu í Svíþjóð um miðja
19. öld en áherslur hans og arfur hafa
verið mótandi afl innan EFS frá upphafi.
United Malmö kirkjan hefur í nokkur
ár fylgt helgisiðabók sænsku kirkjunnar
í guðsþjónustuhaldinu en annars nýtt
sér þá karismatísku tilbeiðslu- og
lofgjörðarhefð sem hefur fylgt henni frá
upphafi. Sjálfsskilningur flestra sem
studdu tillöguna um inngöngu í EFS
var sá að halda hinum karismatíska
hvttasunnuarfi á skýrum lútherskum guð-
fræðilegum grunni.
Beðið IVrir
múslímum í 30 daga
Ramadan, föstumánuður múslíma,
gengur í garð 16. maí og færist alltaf
smám saman fram á almanakinu þar
sem hann fylgir tunglmánuðunum.
Kristniboðssamtökin Operation Mobilis-
ation gefa árlega út bænadagskrá
fyrir þessa daga og þar er beðið fyrir
mismunandi hlutum hins múslímska
heims. Lesendur Bjarma eru hvattir til
að hafa í huga að biðja fyrir múslímum
þegar þeir fasta og biðja í ramadan.
Bænadagskrána má kaupa á rafrænu
formi á sænsku á vefsíðu samtakanna,
omsverige.se.
bjarmi | apríl 2018 | 39