Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 44

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 44
ÞARSEM HEILBRIGÐI RÆÐUR, FELUR FÓLK EKKI VEIKLEIKA SINN HELDUR ER ÞAÐÓHRÆTT VIÐAÐ VERABER- SKJALDAÐ Það er unnt að vera upptekinn af sjálfum sér án þess að vera meðvitaður um sjálfan sig. Næsta stig er að spyrja sig: Hvers vegna? Hvað gengur á? í samskiptum sínum við samversku konuna (Jóh. 4) bar Jesús upp spurningar sem náðu undir yfirborðið. Hún reyndi aftur á móti að draga umræðuna annað þegar Jesús fór að beina sjónum að þorsta hennar eftir kærleika og ást. í samskiptum við aðra gengu spurningar hans lengra, þegar hann spurði „hvers vegna?" Við getum eins spurt okkur sjálf: „Hvers vegna er þessi asi á mér? Hvers vegna er ég svona óþolinmóður eða kvíðinn? Hvers vegna forðast ég að taka upp óþægileg mál?“ og annað í þeim dúr. Þarnæsta stig er að tengja fagnaðarerindið tilfinningalegri heilsu. Hvers vegna reynum við að fela veikleika okkar og bresti í stað þess að vera heiðarleg og styðja þar með hvert annað? Við erum laus undan kröfu lögmálsins, getum verið við sjálf í samskiptum hvert við annað og viðurkennt mistök og veikleika okkar. Mörgum reynist, því miður, erfitt að segja „Ég gerði mistök, ég hafði á röngu að standa, fyrirgefðu mér.“ Við lifum öll á og undir náð Guðs frá degi til dags. Þetta er leiðin til að leysa okkur undan óbeinni og ómeðvitaðri kröfu um að allt sé fágað og fínt, heilt og óbrotið hjá okkur. ÖNNUR REGLA: BRJÓTUM VALD FORTÍÐAR f tilfinningalega heilbrigðum samfélögum skilur fólk hvernig fortíðin hefur áhrif á getu þess til að elska Jesú Krist og aðra. Lífið sjálft og Ritningin kenna okkur að bein og óbein tengsl eru milli þess hver við erum í dag og fortíðar okkar. Margir ytri þættir hafa áhrif á okkur, en fjölskyldan okkar sem við ólumst upp hjá er í flestum tilvikum sá þáttur sem mótað hefur okkur mest. Það er eins og farangur eða óafgreidd mál sem við berum með okkur inn í hjónaband okkar og fjölskyldu, á vinnustað og það kristilega starf sem við erum virk í. Það er síðan engan veginn sjálfgefið að Jesús Kristur fái að móta samskipti okkar við makann eða aðra sem við umgöngumst. Höfundur tekur dæmi úr Gamla testamentinu um óheilbrigð tilfinningatengsl sem höfðu slæm áhrif. Við þurfum því að gera okkur grein fyrir hvernig fjölskyldan hefur mótað okkur og hvað annað hefur haft djúpstæð áhrif á okkur. Þá fyrst er komin forsenda fyrir því að við viljum og munum taka breytingum. í því efni þarf traust okkar að vera á Guði. Heilbrigt kristið samfélag getur átt mikinn þátt í bata og breytingum auk þeirra einstaklinga sem hafa þekkingu og gjöf til að leiðbeina okkur. Höfundur bendir einnig á að á fundi þar sem 7 manns eru samankomnir eru einstaklingar með mjög ólíkan persónuleika, ólíkt uppeldi, ólíka reynslu og tilfinningatengsl, þannig að áhrifavaldar við borðið eru mun fleiri en þeir sjö sem sýnilegir eru. Loks bendir hann á að þessi vinna að líta aftur og skoða áhrifavalda í lífi sínu, þ.e. hvernig maður er mótaður, er í raun ævilangt verkefni. ÞRIÐJA REGLA: LIFUM í BREYSKLEIKA OKKAR OG BERSKJÖLDUÐ Þar sem feilbrig^i ræður, felur fólk ekki veikleika sinn heldur er það óhrætt við að vera berskjaldað. Lögmál Guðs ríkis eru önnur en heimsins, ekki að stjórna og ráðskast með aðra, heldur að leiða aðra á forsendum mistaka, þjáningar, baráttu og spurninga - og þora að sleppa takinu á aðstæðum. Því miður er þetta ekki alls staðar reyndin í kirkjulegu samhengi. Þegar áföll verða og stormurinn verður stríður þarf traust okkar að vera á Drottni sem miskunnar, ekki á eigin styrkleika. Adam og Eva fengu þau skilaboð að syndafallið hefði áhrif á samband okkar við aðra (1. Mós. 3.16) og vinnu okkar (v. 17-18). Samskipti mótast þess vegna af þjáningu og misskilningi. Það á einnig við um hjónabönd. Við verðum fyrir vonbrigðum með fólk, okkar nánustu, fólkið í kirkjunni, vinnustaðnum og víðar. Vinnan mun heldur ekki fullnægja sál okkar og við alltaf finna fyrir eirðarleysi og ófullkomleika. Þetta er dómur Guðs, en um leið hjálp hans til að við sjáum þörf okkar fyrir frelsara og leitum 44 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.