Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 32

Bjarmi - 01.04.2018, Blaðsíða 32
Hann horfði brosandi á mig í speglinum og sagði svo: „Ég er hræsnari." „Já, er það?“ spurði ég og beið í ofvæni eftir frekari skýringu á þessari yfirlýsingu hans. „Jú, mér dettur nefnilega aldrei í hug að hugsa eða biðja til Guðs, nema þegar ég er í alvarlegri klípu. Og satt best skal segja þá lendi ég nú ekki oft í þeim.“ „Já, svoleiðis," svaraði ég. Það varð aftur þögn í bílnum þangað til ég bætti við: „Ég er reyndar hræsnari líka!“ „Nú?“ Hann horfði spyrjandi á mig. „Jú, stundum tekst mér ekki að gera það góða sem ég vil og sit uppi með að gera það vonda sem ég ekki vil. Kannski tekst mér betur upp þegar ég hef lokið þátttöku á ráðstefnunni í Ffald Y Brenin. Hún fjallar um kraft og dýrð guðsríkis, ég bið þess að ég öðlist meira af slíku hið innra." „Já, ég gæti vel trúað að það gæti gerst“- sagði hann uppörvandi. „Ég keyrði konu frá lestarstöðinni í Fishguard til Ffald Y Brenin síðastliðið vor. Hún var óvenju þögul og niðurdregin. Ég gat varla dregið upp úr henni orð þessar 40 mínútur sem það tók mig að aka henni upp eftir. Nú, viku seinna pantar þessi sama kona bíl hjá mér til baka til lestastöðvarinnar í Fishguard. Þegar hún kom inn í bílinn þekkti ég hana varla fyrir sömu manneskjuna. Hún var svo glöð og hamingjusöm og við ræddum saman alla leiðina til baka. Hún sagði mér að hún starfaði sem félagsráðgjafi í London og álagið í starfinu hefði orðið henni ofviða og hún lagst í þunglyndi. Hún sagðist hreinlega hafa öðlast nýjan kraft þessa viku í Ffald Y Brenin, auk þess hvarf þunglyndið frá henni. Svei mér þá, ég hef sjaldan séð eins magnaða breytingu á einni konu!!“ „Þér hefur ekki sjálfum dottið í hug að prófa þennan stað?“ spurði ég og gat varla varist hlátri. „Jú, veistu það að ég hef oft hugsað um það. Kannski læt ég verða af því í vetur, þegar lítið er að gera við aksturinn." Það sem vakti kátínu mína voru kringumstæðurnar. Þarna var maður sem sagðist vera óguðlegur hræsnari að vitna fyrir mér, kristinni konu. Mér komu í hug orð Jesú þegar hann sagði: „Ef þessir þegja, munu steinarnir hrópa“ (Lúk. 19:40). í FFALD Y BRENIN ( Ffald y Brenin er lögð mikil áhersla á að mæta þeim sem þangað sækja með blessun, hvernig sem gestirnir eru annars á vegi staddir. Þessi einfalda blessun hefur oft breytt miklu til góðs fyrir marga - „orðið til blessunar". Þessi áhersla minnir á starf hollenska guðfræðingsins Téo van der Weele sem nýlega kom í eina af sínum mörgu íslandsheimsóknum. Ráðstefnuhelgin leið hjá á örskots- stundu. Ég kynntist alveg einstöku fólki og dagskráin var yndisleg með samblandi af fræðslu og lofgjörð. Við komum saman í gamalli hvítmálaðri kirkju sem stóð í útjaðri Ffald Y Brenin, í um það bil 40 mínútna göngufjarlægð. Við heimsóttum staðinn seinni hluta laugardagsins. Eins og fyrr er getið hefur Ffald Y Brenin þann tilgang að þjóna sem athvarf og bænahús. Margir hafa leitað þangað til að endurnýjast á anda, sál og líkama, með frábærum árangri. Húsakynnin eru gömul steinhlaðin hús sem hefur verið mjög vel viðhaldið. Jörðin sjálf er í fjallshlíðum Penbroke- skíris með gífurlega fallegt útsýni yfir héraðið. Hjónin Roy og Daphne Godwin leiða þetta starf. Roy er bæði rithöfundur og stjórnarformaður Ffald Y Brenin stofnunarinnar. Hann hefur gefið út tvær bækur, sú fyrri er metsölubókin Grace Outpouring (Útdeiling náðar) og sú síðari, The Way of Blessing (Leið blessunar), kom nýlega út. Báðar þessar bækur lýsa verki Drottins í Ffald Y Brenin og útskýra hvernig Guðs Andi starfar þar. Báðar hafa þær átt þátt í að efla þá alþjóðlegu hreyfingu sem breiðst hefur út fyrir verk Drottins á staðnum. STOFNUÐ BÆNAHÚS Á sunnudagsmorgninum, lokadegi ráð- stefnunnar var fyrirlestur sem Roy Godwin hélt með aðstoð konu sinnar Daphne. Yfirskrift fyrirlestrarins var „Local House of Prayer“ (Staðbundin bænahús). f upphafi máls síns sagði Roy frá því hvernig hugmyndin að bænahúsinu kviknaði: Fyrir nokkrum árum fannst okkur Guð vera að biðja okkur um að setja á stofn bænahús í Ffald Y Brenin. Það runnu satt að segja á mig tvær grímur, bæði vegna þess að við þekktum fáa hérna í héraðinu og ég satt að segja taldi mig ekki verðugan þess að standa að slíku verki. í raun var ég persónulega ekkert sérstaklega hrifinn af þessari hugmynd. Við báðum þó fyrir þessu og deildum hugmyndinni með þeim sem voru hérna í Ffald Y Brenin. Niðurstaðan varð sú að við öðluðumst fullvissu um að þetta væri vilji Guðs. Innan tveggja mánaða höfðum við myndað bænavegg og síðar myndað bænakeðju með fólki sem hafði áhuga á hugmyndinni. Við báðum óslitið í 12 mánuði, tíu tíma á dag. í kjölfarið urðum við vitni að yndislegum bænasvörum sem sameinaði okkur sem mynduðu bænakeðjuna. Að þessum tíma liðnum buðum við þessu fólki hingað til Ffald Y Brenin. Þar tilkynntum við Daphne að við myndum. ekki halda áfram. Við Daphne höfðum hins vegar skuldbundið okkur til að biðja fyrir Wales á hverjum degi ævina á enda og buðum þeim sem áhuga höfðu að taka þátt í því að vera með okkur. Þrjátíu manns þáðu boðið en báðu jafnframt um að fá ákveðinn ramma til að byggja bænina á. Roy varð við þeirri ósk og samdi svokallaða Kaleb bæn (sbr. 4Mós. 13.30). Kaleb-bænin Konungur himinsins, lít í náð til tands okkar. Vek upp söfnuð þinn; send þinn Heilaga anda vegna barna þinna. Lát ríki þitt koma til lands okkar. í nafni Jesú Krísts. Amen Fjórum mánuðum síðar höfðu 1000 manns skuldbundið sig til þátttöku í daglegri bæn fyrir Wales á þennan hátt. 32 | bjarmi | apríl 2018

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.