Morgunblaðið - 27.01.2022, Blaðsíða 49
DÆGRADVÖL 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JANÚAR 2022
www.danco.is
Heildsöludreifing
Fyrirtæki og verslanir
Vinsælu leikföngin fást hjá okkur
Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is
Hlaupahjól
SPIDER-MAN
Hlaupahjól
Frozen
Kolkrabbi
Reversable
40 cm
Forest friends
Reversable
20 cm
Plop up fidget
Dino/Hvalur
Plop up fidget
Rainbow/Ice
Stressbolti
Multi - 7 cm
Squeezy Skrímsli
10 cm
Squidgy Monster
Emoji boltar
6 teg. 15 cm
Stressbolti
10 cm
MUGGUR OFURSEPPI – OG
UPPVAKNINGUR SEM HANN HITTI Í
HUNDAGERÐINU.
„HANN ER ENN ÓSTÖÐUGUR“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að stressa sig ekki
yfir því að tómir
kaffibollar rati ekki
alltaf í eldhúsið aftur.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
GRETTIR… ÉG VIL
STYÐJA ÞIG Í
MEGRUNINNI
ÉG
HATA
ÞIG
SVO ÉG KEYPTI
NÝJAN ÍSSKÁP
HELGA! EINHVER
BÉVÍTANS ÞRJÓTUR
HEFUR STOLIÐ
HANDKLÆÐI AF
ÞVOTTASNÚRUNNI!
HVAÐA
HAND-
KLÆÐI?
ÞVÍ SEM ÉG RÆNDI
SÍÐAST ÞEGAR ÉG
LAGÐIST Í VÍKING!
EM, er samt ekki eins æstur og frú-
in, líklega fer æsingurinn meira í
enska boltann. Ég er mikill aðdáandi
enska knattspyrnufélagsins Totten-
ham Hotspur. Hef haldið með þeim
síðan 1971, en þá mættu þeir Kefla-
vík, og mætt tvisvar á leik með þeim.
Sumir segja að lífið sé of stutt til að
halda með Tottenham en ég er ekki
sammála og mun því gleðin verða
þeim mun meiri þegar titillinn verð-
ur okkar.
Síðan eru alltaf einhver verkefni
heima við, sérstaklega á sumrin eins
og palla- og skjólgirðingarsmíði
ásamt annarri viðhaldsvinnu.“
Fjölskylda
Eiginkona Ársæls er Nína Björk
Þórsdóttir, f. 6.5. 1975, matvæla-
fræðingur og MBA, starfar sem sér-
fræðingur á gæðasviði Alvotech. Þau
búa í Salahverfi í Kópavogi. For-
eldrar Nínu Bjarkar eru hjónin
Hafdís Guðjónsdóttir, f. 1952, pró-
fessor við menntavísindasvið HÍ, og
Þór Bragason, f. 1951, rafvirki og
verslunarmaður. Þau eru búsett í
Hafnarfirði.
Börn Ársæls og Nínu Bjarkar
eru: 1) Karen Sif, f. 26.10. 1999, nemi
í sjúkraþjálfun, búsett í Óðinsvéum;
2) Sigríður Sól, f. 27.5. 2003, nemi í
Kvennaskólanum í Reykjavík; 3)
Bjarki Þór, f. 18. 8. 2010, nemi í Sala-
skóla í Kópavogi.
Systkini Ársæls eru Guðbjörg
skólameistari, f. 7.6. 1957, Einar
smiður, f. 18.3. 1960, og Brynja leik-
skólastjóri, f. 11.3. 1968.
Foreldrar Ársæls eru hjónin
Aðalbergur Þórarinsson, f. 30.11.
1934, fv. bifreiðarstjóri og púttari,
og Ólafía S. Einarsdóttir, f. 13.1.
1935, fv. starfsmaður Varnarliðsins.
Þau eru búsett í Keflavík.
Ársæll
Aðalbergsson
Katrín Bjarnadóttir
húsfreyja í Hörgsholti
Guðmundur Jónsson
bóndi í Hörgsholti í
Hrunamannahreppi
Kristín Guðmundsdóttir
húsfreyja í Keflavík
Einar Ólafsson
lengst af verkstjóri í Keflavík
Ólafía Sigríður Einarsdóttir
fv. starfsmaður Varnarliðsins,
býr í Keflavík
Elín Einarsdóttir
húsfreyja í Nýjabæ
Ólafur Helgason
sjómaður í Nýjabæ á Eyrarbakka
Margrét Ísleifsdóttir
húsfreyja í Bakkagerði
Guðjón Þórarinsson
bóndi í Bakkagerði í
Jökulsárhlíð
Guðbjörg Guðjónsdóttir
húsfreyja á Seyðisfirði og í Hafnarfirði
Þórarinn Björnsson
útgerðarmaður á Seyðisfirði og í Hafnarfirði
Ólöf Jóhannsdóttir
húsfreyja í Álftavík og á
Dalllandsparti
Björn Sveinsson
bóndi í Álftavík og á Dallandsparti í Húsavík eystra
Ætt Ársæls Aðalbergssonar
Aðalbergur Þórarinsson
fv. bifreiðarstjóri í Keflavík
Guðjón Jónasson sendi mér póst.
Þar segir, að Karvel Ög-
mundsson hafi verið útvegsbóndi
og athafnamaður í Njarðvíkum ætt-
aður af Snæfellsnesi. Hagyrðingur
góður og vel það. Hann var við-
skiptavinur á rakarastofu í Veltu-
sundi í Reykjavík hjá sveitunga sín-
um Sigurjóni Sigurgeirssyni. Þeir
voru glaðsinna báðir og töluðu
gjarnan saman í bundnu máli. Í
bæjarferðum kom hann í rakstur
og klippingu til Sigurjóns. Ein-
hverju sinni hafði raksturinn hækk-
að í verði, hafði kostað krónur 12
en ný verðskrá komið í hús þá um
daginn og kostaði nú krónur 15.
Eftir raksturinn kastar Karvel
fram stöku:
Bar í hendi bitra egg
bráður vopnið skók hann.
Fimmtán krónur fyrir skegg
frekur af mér tók hann.
„Þorrinn“ eftir Sigtrygg Jóns-
son:
Núna lífið líkar mér,
lostætı́ er á borðum.
Hákarl, mör og magáll er
munnbitı́ eins og forðum.
Hrútspungar og hangikjöt,
hákarl, rófustappa.
Svigna borð við fögur föt
og flot auk sviðalappa.
Lifrarpylsa, lundabaggi
lætur vel í maga.
Hangikjötið vænt mér vaggi.
Vænan kjamma naga.
Með öllu þessu ölið þjóra
og eðaldrykkinn brennivín.
Mína hem ég hugaróra
á heimleið minnı́ er birtan dvín.
Ingólfur Ómar Ármannsson yrk-
ir:
Held ég fast í fornan sið
fyllist hugur kæti.
Blóta Þorra, kýli kvið
og kverkar mínar væti.
Nú rifjast upp limra Jóhanns S.
Hannessonar:
Þegar hvergi fæst salt, kæst né sigið,
né sést upp við bæjarvegg migið,
þegar öll fæða er dóssett
og alls staðar klósett
þá er örlagavíxlsporið stigið.
Ekki er það gott! Bjarni Sig-
tryggsson yrkir:
Loks þegar lyktinni af skötu
er lokið og komið næði,
þá gýs upp úr fullri fötu
fnykur af þorrafæði.
Egill Jónsson orti til hjúkr-
unarkonu:
Brosin öll ég þakka þér,
þeirra verður saknað.
Ellin hefur horfið mér
en hormónarnir vaknað.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af útgerðarmanni og rakara