Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 60
H
elena Lapas lýsir sér sem hressri fótbolta-
stelpu sem bráðlega fer að fermast.
„Ég er ekki komin langt með sjálfan ferm-
ingarundirbúninginn en ég ætla bara að reyna
að hafa gaman og hafa alla í stuði. Ferming-
arveislan verður haldin hérna heima, alveg eins og ferm-
ingarveisla stóru systur minnar, og reyndar líka á sama
stað og fermingarveislan hennar mömmu var haldin, en
hún bjó hér í þessu húsi þegar hún fermdist. Ég ætla bara
að fá sem flesta úr fjölskyldunni og kannski einhverjar
vinkonur og hafa skemmtilega veislu, þar sem verður
borðaður góður matur og ég verð í stuði.“
Hvaða þýðingu leggur þú í ferminguna?
„Það er góð spurning. Mér finnst fermingardagurinn
svona eins og að fara upp á næsta stig í lífinu. Svona við-
burður þar sem maður getur talað um fyrir og eftir ferm-
ingu. Maður er auðvitað ekkert orðinn fullorðinn en þetta
er svona ákveðið millistig.“
Er komin á að vera í klassískum fermingarkjól
Ertu búin að finna fermingarkjólinn og hvernig verður
hárið?
„Ég er búin að fara svolítið fram og til baka með kjól-
inn. Fyrst var ég að spá í að vera í svona venjulegum
sparikjól. Svo fann ég engan sem mér fannst nógu ferm-
ingarlegur, svo ég er eiginlega komin á það að vera í
klassískum fermingarkjól, svona hvítum blúndukjól sem
ég sá í búð sem heitir Kjólar og konfekt á Laugaveginum.“
Þegar kemur að hárinu langar Helenu að gera smávægi-
legar breytingar.
„Ég er að spá í að fá mér smávegis strípur í fyrsta
skiptið í hárið á mér og láta aðeins klippa það.
Ég er ekki búin að ákveða alveg hvernig hárgreiðslan
sjálf verður. Ég held ég vilji vera með krullur og síðan
finnst mér mjög þægilegt að hafa hárið aðeins frá andlit-
inu, svo ég held ég taki svona fremsta partinn frá.“
Ágætur boðskapur að vera góður við náungann
Hvernig hefur fermingarfræðslan verið og hvað hefur
þú helst lært?
„Fermingarfræðslan hefur verið skemmtileg, enda höf-
um við vinirnir verið saman í henni. Ég þekkti auðvitað
ekkert allar þessar sögur af Jesú en hef heyrt þær núna.
Síðan finnst mér boðskapurinn í fermingarfræðslunni bara
sannfærandi; það er almennt ágætisboðskapur að vera
góður við náungann.“
Helena er óviss um hvað hana langar í í fermingargjöf.
„Það kemur mér eiginlega á óvart hvað það er erfitt að
svara þessari spurningu. Mig langar í ferðalag og er sólar-
landaferð með fjölskyldunni langefst á blaði. En svo veit
ég ekki hvað mig langar í fleira. Ný tölva væri auðvitað al-
ger snilld en svo má ég kannski búast við því að fá ein-
hvern pening og get þá keypt svona hluti sem mig vant-
ar.“
Óttast að pabbi fari að syngja í veislunni
Helena er opin og skemmtileg og ætlar að halda litla
ræðu þegar gestirnir eru mættir í veisluna.
„Ég mun kannski segja þeim líka hvað verður boðið upp
á og svoleiðis. Ég er svo sem ekki að fara að vera með
neitt uppistand heldur býst ég við að hafa þetta nægilega
stutt til þess að mamma fari ekki að gráta! Ég er samt
ekkert sérstaklega feimin að standa upp og tala. Ég hélt
meira að segja ræðu í fermingu stóru systur minnar fyrir
sex árum, þá var ég sjö ára að aldri. Sú ræða snerist
meira og minna um það hvað hún væri frábær systir. Ég
reikna að sjálfsögðu með að hún borgi mér það til baka í
minni veislu.
Mamma og pabbi verða örugglega með einhverja
væmna ræðu. Samt hræðist ég mest að pabbi syngi í veisl-
unni eða nái í ukulele og glamri eitthvað á það. Hann er
mjög slakur söngvari og enn verri ukulele-leikari, og hann
veit það best sjálfur, en hann söng samt í fermingu eldri
systur minnar. Bara til að vera fyndinn held ég eða það
vona ég.“
„Ég er svo sem ekki að fara
að verameð neitt uppistand“
Það eru margir sem muna eftir Helenu
Lapas úr Stundinni okkar þar sem hún
stýrir, ásamt fleirum, smáseríum sem
snúast um girnilega matargerð, glymj-
andi rokktónlist og ævintýralegar bæk-
ur svo eitthvað sé nefnt. Nú er hún að
fara að fermast og er orðin mjög
spennt fyrir því.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Helena Lapas er ekki að fara að
vera með uppistand í fermingunni
sinni, en á von á því að pabbi
hennar fari í smá stuð í veislunni.
60 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022