Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 73
Marta María
Hér er einfaldur hör-
dúkur á borðinu og
blóm sett í glæra vasa
til skreytinga. Litlu
kókflöskurnar búa til
stemningu en litaþem-
að var bleikt. Heima-
gerðar kökur sem eru
gerðar í skúffu fara vel
með réttum frá Flavor.
Hægt er að kaupa pappadiska á
hæðum í Partýbúðinni og Allt í
köku. Hér er karamellupopp í
bollakökuformum, sykurpúðar í
glerkrukku og kökupinnar í pappa-
glasi. Þetta er góð hugmynd ef fólk
vill hafa veisluborðið lifandi.
þegar fyrstu gestir komu í hús því það að út-
búa heimagerða litla kjúklingaborgara tók að-
eins lengri tíma en áætlað var. Páfuglinn gat
ekki hugsað sér að þeir væru orðnir sveittir
þegar þeir væru bornir á borð og fórnaði
sturtu og fleiru svo það væri hægt. Þetta var
að sjálfsögðu allt þess virði en pirraði vinstra
heilhvelið á heimilinu dálítið því í hans huga
var þetta að stefna í algert stjórnleysi.
Það hefur til dæmis gefist vel í veislum að
panta snittur og pinnamat en bæta svo við sæt-
ndum sem útbúin eru á heimilinu. Mér finnst
til dæmis ekkert jafnast á við gamaldags snitt-
ur með rækjum, roast beef, skinku og salati.
Kransakökurnar og marsipanterturnar frá
Kökuhúsinu eru líka dýrðin ein ef fólk vill vera
visst um að kökurnar séu fullkomnar. Ef fólk
vill útbúa eitthvað sjálft þá er sniðugt að baka
sætindi í skúffum bakarofna, skera niður þeg-
ar það er orðið kalt og raða í box og geyma í
frysti í nokkrar vikur. Þetta geta verið fransk-
ar súkkulaðikökur, Rice Krispies-kökur, hrá-
kökur, Baby-Ruth-kökur eða kökupinnar.
aðilar skipuleggi, annar
með virkara hægra
heilahvel og hinn með
virkara vinstra heilahvel,
helst Ugla eða Fálki.
Hægra heilahvelið fær ómót-
stæðilegar hugmyndir, kann að
búa til stemningu og töfra,
matbúa og skipuleggja innkaup
puðra peningum út um
gluggann meðan vinstra heila-
hvelið býr til kostnaðaráætlun,
tímaáætlun og er með próf í mann-
fjöldastjórnun. Það er til dæmis
mjög gott að hafa slíkan aðila með í
ráðum þegar halda skal veislu sem
inniheldur fleiri en 100 því viðkom-
andi veit hvað þarf mörg salerni f-
yrir hópinn.
Við hjónin ákváðum eftir síðustu fermingu á
heimilinu að hann, vinstra heilahvelið, myndi
framvegis búa til tímaplan. Það var ákveðið
eftir að Páfuglinn var enn þá á nærbuxunum
Þessi glerkrukka úr
IKEA er tilvalin í
veislur. Hægt er að
setja límónaði eða
ávaxtasafa í krukk-
una.
5 SJÁ SÍÐU 74
Hér má sjá hvað speglar geta
verið sniðugir á veisluborð.
Hægt er að kaupa speglaflísar í
IKEA og búa til hækkun með
glösum eins og sést hér.
Sleikipinnar
gera alltaf
gott mót.
Þessi fæst í
Allt í köku.
Glerflöskurnar úr
IKEA eru snið-
ugar í veislur og
fallegar á borði.
FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 MORGUNBLAÐIÐ 73
Ava
Ye
Va
FÆ
Ma
RY COM
Ye