Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 4
Sigurður Þorri hefur
nóg að gera. Það aftrar
honum hins vegar ekki frá
því að fara í góðar veislur.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR
Fabrikkusmáréttir
í fermingarveisluna
HEITaR lundir
Heitar kjúklingalundir (1 kg.)
Bornar frammeð gráðostasósu
og hotwings sósu.
BBQ lundir
BBQ kjúklingalundir (1 kg.)
Bornar frammeð hvítlaukssósu
og BBQ sósu.
S
igurður Þorri Gunnarsson eða
Siggi Gunnars, fjölmiðlamaður og
skemmtikraftur með meiru, er á
því að fermingartímabilið sé ein-
staklega skemmtilegt, enda aldr-
ei hægt að fara í of margar góðar veislur
yfir ævina.
„Það er sama hvað er mikið að gera hjá
mér, ég sleppi ekki góðum veislum. Ég er í
mikilli törn í vinnunni núna, með tvo dag-
lega þætti í útvarpinu á K100 ásamt því að
stýra stöðinni. Svo er ég með bingóþætti
mbl.is einu sinni í viku en það klárast núna
um miðjan mars. Ég er farinn að renna
hýru auga til frís sem ég er búinn að panta
mér. Ég ætla í tvær vikur til Tenerife og
ferðast einn, það er nokkuð sem mig langar
að prófa og er spenntur fyrir. Það gengur
vel í leik og starfi og ég er á fullu í líkams-
rækt hjá frábærum einkaþjálfara og stunda
sjósund af miklum móð nokkrum sinnum í
viku.“
Fermdist í brakandi blíðu árið 2003
Sigurður fermdist hinn 8. júní 2003 í
brakandi blíðu á Akueyri þar sem hann er
fæddur og uppalinn.
„Ég verð nú að viðurkenna að ég man
mjög lítið eftir fermingunni, annað en að
hún fór fram í Akureyrarkirkju,
hvítu kyrtlarnir voru á sínum
stað og eflaust trúarjátningin
líka, sem ég verð einnig að
viðurkenna að ég man
ekki í dag!“
Sigurður man tölu-
vert betur eftir veisl-
unni. „Við héldum
garðveislu enda var
veðrið ekta sum-
arveður á Akureyri,
með logni, sól og hita.
Mamma mín er einstök
þegar veislur eru annars vegar. Hún gerir
geggjaðar kökur og heita rétti og það var
sko nóg í boði í fermingunni þar sem saman
var komið fullt af frábæru fólki sem mér
þykir vænt um.
Einum veislugestanna, frænku minni frá
Texas, datt í hug að ég ætti að opna gjafir
og lesa af kortum meðan á veislunni stæði.
Mér leist ekkert á það en gerði það svo
og það var rosalega notaleg stund. Við sát-
um saman, ég las upp kortin og tók utan af
gjöfunum og þakkaði svo fólkinu beint fyr-
ir. Þetta var virkilga góður dagur í minn-
ingunni.“
Glaður að tíska fermingarbarna skuli
hafa breyst í gegnum árin
Sigurður er alltaf vel til fara og ber að
margra mati af öðrum mönnum í klæða-
burði. Hann er óviss um að sú hafi verið
raunin á fermingardaginn hér um árið.
„Jesús. Þarna var þjóðbúningurinn þeirra í
17 sem er enn vinsæll á herrum og það var
sko leigður þjóðbúningur á mig. Mig minnir
að þessi búningur hafi verið hannaður síðla
á 10. áratugnum og hann ber þess sterk
merki. Það voru allir í þessu þá og algengt
að menn giftu sig eða fermdust í þessu
dressi, í vesti með tölunum og með hvítt
slifsi.
Maður sér þennan búning sjaldan í dag,
enda eldist hann kannski ekki vel, en það
er gaman að eiga svona fína tískumynd af
sér frá þessum tíma.“
Var góð tónlist eða skemmtiatriði í ferm-
ingunni?
„Tónlist hefur alltaf skipt mig mjög
miklu máli. Ég var því búinn að gera laga-
lista og brenna hann á disk sem síðan
„mallaði“ undir í hátalara sem ég hafði sér-
staklega tengt við míkrófón, sem ég ætlaði
að tala í þegar ég byði fólk velkomið. Svo
var ég svo feiminn að ég hætti við það!“
Er enn þá að nota fermingargjöfina
Það fallegasta sem Sigurður fékk í ferm-
ingargjöf var hljómborð sem foreldrar hans
gáfu honum.
„Ég glamraði á það í mörg ár og á það
enn.“
Hvað getur þú sagt okkur frá fermingar-
myndatökunni?
„Það var Finnbogi Marinósson ljósmynd-
ari sem tók myndirnar en hann hefur tekið
myndir af ófáum rokksveitum. Því var smá
rokksveitarstemning á myndunum.“
Áttu gott ráð fyrir þá sem eru að fermast
í dag?
„Já, að njóta dagsins með fólki sem þeim
þykir vænt um og gott að vera í kringum.“
Til að veislan verði skemmtileg er Sig-
urður á því að boðslistinn skipti mestu máli.
„Ég mæli með að bjóða þeim sem þig
langar virkilega að bjóða og hafa í kringum
þig. Með góðu fólki, í góðum anda er allt
skemmtilegra.“
Það ættu allir að fermast
eins og þeir vilja
Sigurður var vinmargur sem barn og
margt skemmtilegt brallað á fermingartím-
anum.
„Við vinirnir vorum mikið í útilegum og í
því að tjalda í görðum hver annars á sumr-
in á þessum árum. Mig minnir einmitt að
við höfum gist saman í tjaldi í einhverjum
garði nóttina fyrir ferminguna.“
Ástæður þess að við fermumst geta verið
misjafnar að hans mati.
„Við ættum því ekkert að vera að velta
fyrir okkur hvernig næsti maður gerir
þetta og á hvaða forsendum. Eins vil ég
segja við þá sem eru í vafa um hvort þeir
eigi að fermast að hafa ekki áhyggjur af því
að vera öðruvísi en aðrir. Gerðu þetta bara
nákvæmlega eins og þú vilt hafa þetta. Þig
þarf raunverulega að langa til að fermast
og að halda veislu til þess að njóta þess.“
Glaður að fermingartískan
hefur breystmeð árunum
Sigurður Þorri
Gunnarsson er á því að
hver og einn eigi að hafa
ferminguna eftir sínu
höfði. Hann klæddist ís-
lenska hátíðabúningnum
sem var vinsæll þegar
hann fermdist.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Sigurður Þorri Gunnarsson elskar
góðan fatnað og gleðst með ferm-
ingarbörnum í dag að ekki skuli vera
í tísku lengur að vera í þjóðbúningi
eins og þegar hann fermdist á sínum
tíma. Glæsilegur var hann þó!
Sigurður ásamt bróður sín-
um, Daníel. Eins og sjá má
voru bræðurnir í stíl í ferm-
ingu þess fyrrnefnda.