Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 77
Hvítsúkkulaðiostakaka í
eftirréttarglösum er góð-
ur réttur á veisluborðið í
fermingunni.
Þessi uppskrift er fyrir átta til tíu glös.
Botn
Lu-kex mulið og sett í botninn á glösunum.
Vanillu- og hvítsúkkulaðiostaköku mús
200 g hvítt súkkulaði
400 g rjómaostur
400 ml þeyttur rjómi
Fræ úr einni vanillustöng
Bræðið hvíta súkkulaðið í vatnsbaði og
blandið vanillu fræjunum við.
Þeytið rjómaostinn og hellið súkkulaðinu
varlega við á meðan. Best er að hafa rjóma-
ostinn við stofuhita.
Blandið ostablöndunni síðan varlega við
þeytta rjómann.
Sprautið músinni í glösin og skreytið að
vild.
Ég skreytti glösin með jarðarberjum og
hvítum kexperlum.
Hvítsúkkulaðivanilluostakaka í
eftirréttarglösum
Það er huggulegt að bjóða upp á litla
eftirrétti sem líta út eins og blóm að
sumri. Hér gefur að líta sítrónutarta
sem skreyttir eru líkt og sólblóm.
FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 MORGUNBLAÐIÐ 77
Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
FERMING FRAMUNDAN
Fáið fagleg ráð og mælingu fyrir stóra daginn
bært úrval af vörum fyrir fermingardaginn á móður og dóttur.Frá
FERMINGARHAPPDRÆTT I
Þú gætir unnið gjafabréf að verðmæti 20.000,-
Kæru mæður!
Ef fermingarundirfötin hennar eru versluð hjá okkur fylgir
gjafapoki með í kaupbæti ásamt happanúmeri
Dregið verður í happdrættinu 20. apríl
Þessi uppskrift er fyrir 12 litla íspinna.
Hvít súkkulaðimús
100 ml rjómi
200 g hvítt súkkulaði (ég notaði hvíta súkku-
laðið frá Callebaut sem fæst í Hagkaup)
200 ml léttþeyttur rjómi
1 g af matarlími
Frosin hindber
Hvítur súkkulaðihjúpur
400 g hvítt súkkulaði
70 ml olía (ég notaði Isio 4)
Leggið matarlím í bleyti í eina til tvær mín-
útur.
Sjóðið upp á rjómanum og bætið matarlím-
inu við.
Hellið rjómanum yfir súkkulaðið og hrærið
þangað til að það er alveg bráðið.
Ef það er ekki bráðið þá getið þið sett
súkkulaðið inn í örbylgju ofn í 20 sekúndur
eða í vatnsbað og klárað að bræða það
þannig.
Þegar súkkulaðiblandan er tilbúin þá er
blandað henni varlega við léttþeyttan
rjómann.
Ég mæli með að nota sleikju í staðin fyrir
písk til að missa ekki loftið úr músinni.
Músinni er síðan sprautað í íspinna sílikon-
form (ég fékk mín í Allt í köku) með trépinn-
anum.
Raðið frosnum hindberjum í ís formin,
smyrjið súkkulaðimúsinni yfir svo að hún hylji
hindberin.
Setjið í frystinn yfir nótt.
Bræðið hvíta súkkulaðið í vatnsbaði, bætið
síðan olíunni við og hrærið þar til súkkulaðið
er alveg blandað saman við olíuna.
Takið íspinnana úr formunum og dýfið ísn-
um ofan í súkkulaðihjúpinn. Gott er að vinna
hratt svo að ísinn bráðni ekki.
Ég skreytti íspinnana með vanillukremi og
þurrkuðum hindberjum.
Hvítir súkkulaði/hindberja íspinnar
Girnilegir eftirréttaíspinnar
með hvítri súkkulaðimús
og hindberjum.