Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 61
FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 MORGUNBLAÐIÐ 61
J
óna Björk og eiginmaður hennar Jó-
hann Kristos Lapas eiga tvær dætur
saman, þær Helenu Lapas ferming-
arbarn og Andreu Lapas sem er fædd
árið 2002.
Fjölskyldan er búsett í Fossvoginum á fal-
legu æskuheimili Jónu Bjarkar þar sem hún bjó
alla tíð og fermdist árið 1984.
„Ég hlakka til að halda ferminguna heima og
skiptir öllu máli að Helena finni að við erum að
koma saman vegna hennar. Að þetta sé dag-
urinn sem tileinkaður er henni. Svo skiptir auð-
vitað máli að öllum líði vel og að stressið nái ekki
að vera með í partýinu.“
Ertu búin að finna þér fatnað fyrir ferm-
inguna og verður hann í stíl við dóttur þína?
„Ég er ekki alveg búin að ákveða það. Mig
langar að klæðast einhverju vorlegu, litríku og
björtu. Ég á fínan kjól sem ég hef bara verið í
einu sinni, sem er litríkur og fallegur. Það gæti
vel verið að ég dragi hann fram. Markmiðið er
ekki að vera í stíl við Helenu.“
Hvar verður fermingin haldin?
„Fermingin verður í Bústaðakirkju en við
ætlum að hafa veisluna heima. Við höfum haldið
nær allar veislur heima, því okkur finnst nást
betri stemmning þannig, þótt stundum verði
þröngt á þingi.“
Vil að veislan verði í anda Helenu
Jóna Björk reiknar með því að nú fljótlega
fari listar að yfirtaka lífið hennar og fylla vas-
ana.
„Ég legg áherslu á að umgjörðin sé þannig að
fólk geti veri afslappað, að nóg sé að bíta og
brenna, og fólk geti notið þess að vera saman og
skemmta hvert öðru.“
Jóna Björk lýsir dóttur sinni sem léttum og
skemmtilegum persónuleika og ætlar hún að
hafa það í huga við skipulagningu veislunnar.
„Ég vil að veislan sé í hennar anda. Við erum
ekki beint með skemmtiatriði plönuð og ef ég
þekki mig rétt þá verð ég á síðustu stundu með
að setja saman mynband með myndbrotum af
fermingarbarninu. Ég má ekki klikka á því, þar
sem það er venjan hjá okkur. Það er af nógu að
taka þar sem Helena er þannig að hún hefur
alltaf elskað myndavélina og því eigum við ófá
skondin myndbrot af henni í gegnum árin.“
Jóna Björk býst við því að vera með smárétti
sem verða aðkeyptir í veisluna.
„Við viljum vera með eitthvað gómsætt sem
fermingarbarnið fær að velja. Svo sem litla
borgara, sushi og fleira sem hún kann vel að
meta. Eins verðum við líklegast með kransa-
köku en við ætlum ekki að bjóða upp á súkku-
laði. Helenu hefur alltaf þótt súkkulaði svaka-
lega vont og til þess fallið að eyðileggja annars
góða eftirrétti. Það verður því ekkert súkku-
laðiþema. Bleik möndlukaka frá Kristjánsbak-
arí er hennar kaka og er hún á heimilum vin-
kvenna hennar víða kölluð Helenukaka.
Kannski verður Helenukaka í fermingunni
hennar Helenu.“
Uppáhaldslitur fermingarbarnsins blár
Alveg frá því Helena var lítil hefur blár verið
uppáhaldsliturinn hennar. „Ég reikna því með
að skreytingarnar verði bláar.“
Þar sem hátt er til lofts í húsinu þeirra verður
dreginn fram stór stigi og pappírsdúllur og
fleira skraut sett í loftin.
„Svo förum við fjölskyldan í myndatöku. Ég
reikna með því að leita til Írisar Daggar Ein-
arsdóttur. Við höfum farið til hennar áður og
fengið skemmtilegar myndir.“
Helena er mjög opin og skemmtileg stelpa
sem hefur gert undirbúninginn fyrir ferm-
inguna skemmtilegan.
„Hún er bæði opin fyrir boðskapnum í ferm-
ingarfræðslunni og líka áhugasöm um að líta vel
út á fermingardaginn. Hún hefur svo skemmti-
lega ákveðnar skoðanir á því hvernig hana lang-
ar að líta út. Það má ekki ganga of langt í neinu,
hvorki snyrtingu eða hári; því hún er meira á
„less is more“-línunni, sem fellur mömmunni
mjög vel í geð.“
Jóna Björk Helgadóttir lögmaður
er farin að undirbúa fermingu Hel-
enar Lapas dóttur sinnar sem verð-
ur í Bústaðakirkju þann 3. apríl
næstkomandi. Fermingin verður
haldin á heimili fjölskyldunnar sem
er reyndar æskuheimili Jónu Bjark-
ar þar sem hún fermdist sjálf.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ég lít í anda liðna tíma
V
eislan var ótrúlega flott og mat-
urinn var alveg æðislegur en
fyndnast var þó þegar taktlausi
pabbi minn tók upp míkrófóninn
og byrjaði að syngja Lífið er yndislegt. Því
gleymi ég aldrei.“
Hvert er hlutverk þitt sem stóra systir
fermingarbarnsins?
„Ég lít á mitt hlutverk að hjálpa til við að
undirbúa veisluna og að vera til staðar með
góð ráð fyrir Helenu systur mína sem er að
fermast.“
Andrea er sannfærð um að ferming-
arfræðslan sé eitthvað sem hægt er að nota
út lífið.
„Ég hef alltaf verið frekar trúuð svo öll
fræðslan hefur fylgt mér út í lífið.“
Þegar kemur að hlutverki stóru systur í
fermingu yngri systkina segir Andrea að
hennar hlutur verði fyrst og síðast að rétta
móður sinni hjálparhönd, sér í lagi í veisl-
unni.
Besta fermingargjöfin ferðalag til London
Hún segir mikilvægt að fermingarbörn
njóti þess að vera með fólkinu sínu á ferm-
ingardaginn, því þegar upp er staðið er það
fólkið sem gerir daginn skemmtilegan.
Hvaða fermingargjöf hélstu mest upp á
sem þú fékkst?
„Ég hélt án efa mest upp á gjöfina frá
mömmu og pabba. Frá þeim fékk ég ferð til
London með mömmu og miða á West End
söngleikina Billy Elliot og Matilda en það er
mjög skemmtileg tilviljun þar sem ég átti
svo seinna meir eftir að leika í báðum þeim
sýningum í uppsetningu Borgarleikhúss-
ins.“
Ætlar að vera til
staðarmeð góð ráð
Andrea Lapas er stóra systir Helenu Lapas. Hún á margar góðar
minningar frá sinni fermingu, þá sér í lagi vegna föður hennar
sem tók upp á því að vera með skemmtiatriði fyrir gestina.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Jóna Björk Helgadóttir ásamt
dætrum sínum, fermingarbarninu
Helenu Lapas og Andreu Lapas
sem nýverið varð stúdent.