Morgunblaðið - 11.03.2022, Qupperneq 61

Morgunblaðið - 11.03.2022, Qupperneq 61
FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 MORGUNBLAÐIÐ 61 J óna Björk og eiginmaður hennar Jó- hann Kristos Lapas eiga tvær dætur saman, þær Helenu Lapas ferming- arbarn og Andreu Lapas sem er fædd árið 2002. Fjölskyldan er búsett í Fossvoginum á fal- legu æskuheimili Jónu Bjarkar þar sem hún bjó alla tíð og fermdist árið 1984. „Ég hlakka til að halda ferminguna heima og skiptir öllu máli að Helena finni að við erum að koma saman vegna hennar. Að þetta sé dag- urinn sem tileinkaður er henni. Svo skiptir auð- vitað máli að öllum líði vel og að stressið nái ekki að vera með í partýinu.“ Ertu búin að finna þér fatnað fyrir ferm- inguna og verður hann í stíl við dóttur þína? „Ég er ekki alveg búin að ákveða það. Mig langar að klæðast einhverju vorlegu, litríku og björtu. Ég á fínan kjól sem ég hef bara verið í einu sinni, sem er litríkur og fallegur. Það gæti vel verið að ég dragi hann fram. Markmiðið er ekki að vera í stíl við Helenu.“ Hvar verður fermingin haldin? „Fermingin verður í Bústaðakirkju en við ætlum að hafa veisluna heima. Við höfum haldið nær allar veislur heima, því okkur finnst nást betri stemmning þannig, þótt stundum verði þröngt á þingi.“ Vil að veislan verði í anda Helenu Jóna Björk reiknar með því að nú fljótlega fari listar að yfirtaka lífið hennar og fylla vas- ana. „Ég legg áherslu á að umgjörðin sé þannig að fólk geti veri afslappað, að nóg sé að bíta og brenna, og fólk geti notið þess að vera saman og skemmta hvert öðru.“ Jóna Björk lýsir dóttur sinni sem léttum og skemmtilegum persónuleika og ætlar hún að hafa það í huga við skipulagningu veislunnar. „Ég vil að veislan sé í hennar anda. Við erum ekki beint með skemmtiatriði plönuð og ef ég þekki mig rétt þá verð ég á síðustu stundu með að setja saman mynband með myndbrotum af fermingarbarninu. Ég má ekki klikka á því, þar sem það er venjan hjá okkur. Það er af nógu að taka þar sem Helena er þannig að hún hefur alltaf elskað myndavélina og því eigum við ófá skondin myndbrot af henni í gegnum árin.“ Jóna Björk býst við því að vera með smárétti sem verða aðkeyptir í veisluna. „Við viljum vera með eitthvað gómsætt sem fermingarbarnið fær að velja. Svo sem litla borgara, sushi og fleira sem hún kann vel að meta. Eins verðum við líklegast með kransa- köku en við ætlum ekki að bjóða upp á súkku- laði. Helenu hefur alltaf þótt súkkulaði svaka- lega vont og til þess fallið að eyðileggja annars góða eftirrétti. Það verður því ekkert súkku- laðiþema. Bleik möndlukaka frá Kristjánsbak- arí er hennar kaka og er hún á heimilum vin- kvenna hennar víða kölluð Helenukaka. Kannski verður Helenukaka í fermingunni hennar Helenu.“ Uppáhaldslitur fermingarbarnsins blár Alveg frá því Helena var lítil hefur blár verið uppáhaldsliturinn hennar. „Ég reikna því með að skreytingarnar verði bláar.“ Þar sem hátt er til lofts í húsinu þeirra verður dreginn fram stór stigi og pappírsdúllur og fleira skraut sett í loftin. „Svo förum við fjölskyldan í myndatöku. Ég reikna með því að leita til Írisar Daggar Ein- arsdóttur. Við höfum farið til hennar áður og fengið skemmtilegar myndir.“ Helena er mjög opin og skemmtileg stelpa sem hefur gert undirbúninginn fyrir ferm- inguna skemmtilegan. „Hún er bæði opin fyrir boðskapnum í ferm- ingarfræðslunni og líka áhugasöm um að líta vel út á fermingardaginn. Hún hefur svo skemmti- lega ákveðnar skoðanir á því hvernig hana lang- ar að líta út. Það má ekki ganga of langt í neinu, hvorki snyrtingu eða hári; því hún er meira á „less is more“-línunni, sem fellur mömmunni mjög vel í geð.“ Jóna Björk Helgadóttir lögmaður er farin að undirbúa fermingu Hel- enar Lapas dóttur sinnar sem verð- ur í Bústaðakirkju þann 3. apríl næstkomandi. Fermingin verður haldin á heimili fjölskyldunnar sem er reyndar æskuheimili Jónu Bjark- ar þar sem hún fermdist sjálf. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Ég lít í anda liðna tíma V eislan var ótrúlega flott og mat- urinn var alveg æðislegur en fyndnast var þó þegar taktlausi pabbi minn tók upp míkrófóninn og byrjaði að syngja Lífið er yndislegt. Því gleymi ég aldrei.“ Hvert er hlutverk þitt sem stóra systir fermingarbarnsins? „Ég lít á mitt hlutverk að hjálpa til við að undirbúa veisluna og að vera til staðar með góð ráð fyrir Helenu systur mína sem er að fermast.“ Andrea er sannfærð um að ferming- arfræðslan sé eitthvað sem hægt er að nota út lífið. „Ég hef alltaf verið frekar trúuð svo öll fræðslan hefur fylgt mér út í lífið.“ Þegar kemur að hlutverki stóru systur í fermingu yngri systkina segir Andrea að hennar hlutur verði fyrst og síðast að rétta móður sinni hjálparhönd, sér í lagi í veisl- unni. Besta fermingargjöfin ferðalag til London Hún segir mikilvægt að fermingarbörn njóti þess að vera með fólkinu sínu á ferm- ingardaginn, því þegar upp er staðið er það fólkið sem gerir daginn skemmtilegan. Hvaða fermingargjöf hélstu mest upp á sem þú fékkst? „Ég hélt án efa mest upp á gjöfina frá mömmu og pabba. Frá þeim fékk ég ferð til London með mömmu og miða á West End söngleikina Billy Elliot og Matilda en það er mjög skemmtileg tilviljun þar sem ég átti svo seinna meir eftir að leika í báðum þeim sýningum í uppsetningu Borgarleikhúss- ins.“ Ætlar að vera til staðarmeð góð ráð Andrea Lapas er stóra systir Helenu Lapas. Hún á margar góðar minningar frá sinni fermingu, þá sér í lagi vegna föður hennar sem tók upp á því að vera með skemmtiatriði fyrir gestina. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Jóna Björk Helgadóttir ásamt dætrum sínum, fermingarbarninu Helenu Lapas og Andreu Lapas sem nýverið varð stúdent.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.