Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 56
D
agbjört Lilja býr með fjölskyldu
sinni á Akureyri og gengur þar í
Brekkuskóla. Hinn 11. júní mun
hún fermast frá Akureyr-
arkirkju. „Fermingin er í grunn-
inn fremur hefðbundin, en með okkar
áherslum. Dagbjört Lilja hefur verið viðloð-
andi ýmiskonar kristilegt starf frá því hún var
barn, svo sem sumarbúðir og barnastarf kirkj-
unar yfir vetrartímann. Hún hafði snemma af-
ar sterkar skoðanir á trúnni sem hún hefur út-
fært og komist að sínum niðurstöðum án
nokkurrar aðkomu okkar foreldranna. Hún
hefur alla tíð verið bæði forvitin og gagnrýnin
og eftir að hafa hugsað málið valdi hún að
staðfesta skírn sína,“ segir Brynja Björg Vil-
hjálmsdóttir, móðir Dagbjartar Lilju.
Var aldrei í vafa með ferminguna
Dagbjört Lilja fór snemma að sýna biblíu-
sögunum áhuga. „Ég man þegar ég var lítil,
þá hlustaði ég á sögurnar um Guð og sumar
fannst mér skrýtnar. Svo voru okkur sagðar
dæmisögur af Jesú og ég man að ég spurði
mömmu hvort þær hefdu gerst í alvöru, en
mamma sagðist ekki vera viss, en spurði mig á
móti hvernig mér liði við að hlusta á þær. Þá
man ég að mér fannst svo gott að hugsa til
þess að það væri eitthvað gott í kringum okk-
ur sem við myndum kannski ekki sjá en þó
finna og gætum með því haft áhrif á það
hvernig við komum fram við aðra. Ég man svo
vel að mamma og pabbi voru alltaf að spyrja
mig: Hvað heldur þú? Mér mátti bara finnast
það og þurfti ekkert að segja af hverju. Svo í
fyrra þegar mamma spurði hvort ég ætlaði að
fermast fannst mér það svo skrýtin spurning
því mér fannst það aldrei spurning. Ég hef
einhvern veginn alltaf ætlað að gera það,“ seg-
ir Dagbjört Lilja, sem hlakkar eðlilega mikið
til stóra dagsins og er alveg með forgangs-
atriðin varðandi hann á hreinu: „Ég er eig-
inlega spenntust fyrir að hitta alla fjölskyld-
una mína saman, en ég er svo glöð því þau búa
ekki öll á Akureyri og frændur mínir sem búa
í útlöndum ætla að koma. Svo koma vonandi
líka einhverjar vinkonur mínar frá Neskaup-
stað. Mér finnst líka svo gott að mamma mín
og stjúppabbi og svo pabbi minn og stjúp-
mamma eru að gera veisluna mína saman. Ég
er svo spennt að eiga daginn með þeim öllum,“
segir Dagbjört Lilja.
Nammibar með öllu uppáhaldsnamminu
síðan í æsku
Fermingarveislan verður haldin í sal
Brekkuskóla og segja má að boðið verði upp á
nokkuð óvenjulegar veitingar. „Dagbjört Lilja
er mikill aðdáandi „samloku og djús“-
veitinganna sem hafa verið í sölu hjá Ísbúð
Akureyrar og myndi helst vilja bjóða öllum
gestum upp á stórt „combo“-tilboð. Hún er
mikil íþróttakona með sterkar skoðanir og
þetta er eitthvað það besta sem hún fær og
ákváðum við foreldrarnir að reyna með ein-
hverjum hætti að útfæra hennar ósk með okk-
ar útgáfu af samlokum og djúsi. Amma Dag-
bjartar Lilju mun svo baka hina víðfrægu
marenstertu, auk þess sem við verðum með
heimatilbúinn nammibar þar sem allt uppá-
haldsnammi fermingarstúlkunnar síðan hún
var lítil verður á boðstólum, en hún átti það til
að verða mjög nammisvöng,“ segir Brynja
Björg og hlær.
Litaþemað er svart, hvítt og rósgyllt
Fermingarundirbúningurinn hófst fyrir ári
með því að velja dagsetningu og bóka sal. „Við
mæðgur höfum svo rætt það reglulega hvern-
ig hún sér daginn fyrir sér, hvað séu raunhæf-
ir kostir og komum okkur þaðan á sameig-
inlegan grundvöll. Undirbúningurinn hefur
farið vaxandi og höfum við legið yfir ýmsum
heimasíðum til innblásturs fyrir skreytingar.
Dagbjört Lilja valdi litaþemað, sem verður
svart, hvítt og rósgyllt. Mér þykir sjálfri alveg
óskaplega gaman að halda veislur, undirbúa
og skreyta. Þar af leiðandi er ýmislegt til sem
notað verður, svo sem kertaluktir. Við mæðg-
ur höfum svo útbúið vasa og fleira úr gler-
flöskum og krukkum. Blómaskreytingarnar
verða í þemalitunum og annað skraut er mikið
endurnýtt, poppað upp með blómum úr garð-
inum hjá langömmu og því sem pantað verður
á netinu. Auk þess verða myndir af ferming-
arbarninu, blakboltinn hennar og gönguskíðin
í salnum. Í stað hefðbundinnar gestabókar
verður minningabók sem Dagbjört Lilja er að
undirbúa en við munum taka polaroidmyndir
af öllum gestum sem skrifa svo skemmtilegar
kveðjur til hennar í bókina. Við höfum gert
þetta áður og það er virkilega gaman að skoða
þessar bækur aftur síðar.
Varðandi veitingar þá eigum við góða frysti-
kistu og höfum getað unnið okkur aðeins í
haginn. Svo eru margir sem vilja gjarnan taka
þátt í að gera daginn hennar Dagbjartar Lilju
einstakan með því að leggja hönd á plóg,
þannig að segja má að fjölskyldan sameinist í
þessu skemmtilega verkefni,“ segir Brynja
Björg.
Kjóll frá Calvin Klein og Nike-skór
Dagbjört Lilja mun klæðast kjól sem móð-
ursystir hennar fermdist í fyrir sex árum.
„Segja má að sú hugmynd hafi sprottið upp
vegna þess hve meðvituð Dagbjört Lilja er um
nýtingu hluta og eftir stutt samtal þótti henni
nánast út í hött að við færum að kaupa dýran
kjól sem að líkindum er aðeins notaður þenn-
an eina dag. Amma hennar stakk í framhald-
inu upp á því að endurnýta kjól sem systir mín
fermdist í, ofsalega fallegur og klassískur kjóll
frá Calvin Klein, sem einmitt hefur aðeins
verið notaður einu sinni. Það sama var upp á
teningnum varðandi skóna, þannig að í stað
þess að velja hælaskó ætlar Dagbjört Lilja að
kaupa sér draumaskóna sína frá Nike, sem
verða notaðir áfram. Bróðir hennar fór sömu
leið þegar hann fermdist, þannig að notagildið
Spenntust að fá
að eiga daginn
með fjölskyldu
og vinum
Dagbjört Lilja Gunnarsdóttir fermist frá Akureyrarkirkju
í sumar. Fermingarstúlkan veit hvað hún vill og í veislunni
mun hún bjóða upp á samlokur og djús og klæðast sex
ára gömlum kjól sem móðursystir hennar fermdist í.
Kristborg Bóel Steindórsdóttir | boel76@gmail.com
Dagbjört Lilja Gunnarsdóttir
ásamt móður sinni, Brynju Björgu
Vilhjálmsdóttur og systur sinni,
Júlíönu Pollý Rós Gunnarsdóttur.
Dagbjört Lilja er hér í Calvin
Klein kjólnum sem frænka
hennar fermdist í fyrir nokkrum
árum. Hún verður í öðrum skóm
við kjólinn á fermingardaginn.
56 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022