Morgunblaðið - 11.03.2022, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022
Fermist þú
ham-borgaralega?
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
PANTAÐU ÞÍNA VEISLU ÁWWW.FABRIKKAN.IS
25 borgarar á hverjum bakka!
7 gómsætar tegundir í boði!
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Winkel Jónasdóttir Blaðamenn Elínrós Líndal elinros@mbl.is Kristborg Bóel Steindórsdóttir
boel76@gmail.com Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Þ
að getur verið hið mesta skemmtiefni að fá fólk til að rifja
upp eigin fermingu og aðdraganda hennar því flestir muna
þennan dag eins og hann hafi gerst í gær. Hvort sem það er
vegna eigin klæðaburðar eða veisluhalda sem fóru úr bönd-
unum.
Fermingarundirbúningur minn var að sjálfsögðu tekinn al-
varlega. Við lásum Líf með Jesú upp til agna og gerðum kristileg verk-
efni. Hápunktur fermingarfræðslunnar var foreldralaus ferð í kirkju út á
land með gistiplássi. Ég man reyndar ekki nákvæmlega hvernig líf með
Jesú var pródúserað í þeirri ferð því orkan fór meira í að skiptast á
munnvatni við fermingarbræður og æfa sig í loftfimleikum.
Til þess að koma í veg fyrir kynin væru of mikið að hittast var strákum
komið fyrir öðrum megin á ganginum og stelpum hinum megin. Þegar
allir áttu að vera komnir í koju á kvöldin átti ekki að vera hægt að rápa á
milli herbergja. Fermingarbræður og -systur með rýmisgreind áttuðu sig
þó á því að fyrir ofan hvert herbergi var gluggi sem hægt var að opna.
Þegar búið var að opna gluggann upp á gátt var hægt að læðast yfir
þakið og fara yfir gluggana hinum megin á ganginum. Þetta var að sjálf-
sögðu gert og er í raun mesta mildi að enginn hafi slasast því það var
svo hátt upp í gluggann og það þurfti mikinn kjark til að framkvæma
þetta. Allt var þetta þess virði og þegar fermingarsystkinin komu til baka
úr ferðinni voru þau útlærð í kristilegum fræðum og gott betur.
Þegar kom að fermingunni sjálfri var lögð rík áhersla á það að útgang-
urinn væri ekki sjoppulegur. Því urðu svartar sléttflauelsstuttbuxur fyrir
valinu sem amma mín saumaði á mig og hvít skyrta með svo stórum
kraga að hæglega hefði verið hægt að fljúga á milli landshluta á krag-
anum einum saman. Við þessa klassísku múnderingu var boðið upp á
nælonsokkabuxur, flatbotna skó úr 17 og slöngulokka. Þeir voru hann-
aðir af hárgreiðslunemanum í næsta húsi. Allt var
þetta ógurlega fínt nema fermingarbarnið fyllti
helst til of vel út í fermingarfötin. Fermingar-
barnið hafði gætt þess vel að missa ekki úr
máltíð fram að fermingu og náttúrulega
langt fram á fullorðinsár. Það var ekki búið
að finna upp púlsmæla og hot fitness og
því var þemað svolítið eins og lítill feitur
engill á skýi hefði verið settur í slétt-
flauelsbuxur. Það eina sem hefði get-
að toppað þetta er ef fermingar-
barnið hefði látið brúnkusprauta sig
fyrir stóra daginn og fengið förðun
hjá stóru systur hennar Lillu, en um það
má lesa hér í blaðinu!
Líf með Jesú
MartaMaría
Winkel Jónasdóttir
1 Hverjir eiga að vera á gestalistanum? Þú þarft að
byrja á því að átta þig á hvað þú ætlar að bjóða
mörgum og hvar línan liggur. Á að bjóða nánustu fjöl-
skyldu og vinum eða fara út í stærra vina- og fjöl-
skyldumengi?
2 Hvar á veislan að vera? Þegar þú ert búin/n að
gera gestalistann er auðveldara að átta sig á því
hvort þú þarft að leigja Laugardalshöllina eða hafa
veisluna heima í þriggja herbergja íbúðinni.
3 Veitingar? Þegar þú ert búin/n að ákveða stað-
setningu þá þarf að skipuleggja hvað á að bjóða
upp á í veislunni. Ef þú ætlar að hafa pinnamat í
veislunni en hefur ekki hugmynd um hversu mikið af
mat þú þarft þá er ágætt að hafa í huga að yfirleitt
er gert ráð fyrir um það bil 11 bitum á mann.
4 Hvað áttu mikla peninga? Það skiptir máli að
gera kostnaðaráætlun svo veisluhöldin fari
ekki úr böndunum. Þegar þú gerir kostnaðar-
áætlun skaltu taka allan kostnað saman, ekki
bara stærstu póstana. Allar ferðirnar í búðina á
síðustu stundu geta talið hraustlega og sett
strik í reikninginn ef ekki er gert ráð fyrir slík-
um kostnaði.
5 Hvernig verður útlitið? Vill fermingar-
barnið hafa litaþema? Ef svo er þá þarf að
undirbúa það í tíma og hafa í huga að ef veisl-
an er í sal þá þarf svolítið mikið skraut. Lif-
andi blóm eru alltaf falleg í veislum og fal-
legt að setja þau í gamlar sultukrukkur eða
gosflöskur.
6 Boðskort? Hér áður fyrr var oft
mikið lagt í boðskortið en í dag er al-
gengast að fólk bjóði í veislur í gegnum
félagsmiðla eins og Facebook. Þá
skiptir máli að allar upplýsingar
séu skýrar, hvar veislan sé
og klukkan hvað. Eins
skiptir máli að velja
fallega mynd af
fermingarbarninu. Í
aðdraganda veislunnar
Ljósmynd/Colourbox
atriði til að hafa
bak við eyrað
Það getur valdið fólki töluverðum kvíða þegar fermingarveisla er fram
undan. Hvernig á að skipuleggja veisluna? Á hverju á að byrja og á hverju
á að enda? Hér eru nokkur góð ráð fyrir þá sem eru að undirbúa fermingu.
MartaMaríaWinkel Jónasdóttir mm@mbl.is
8
er svo hægt að peppa mannskapinn upp með
myndböndum af fermingarbarninu eða bara
góðum og glötuðum lögum af YouTube.
7 Í hverju á fermingarbarnið að vera?
Margir myndu segja að fatnaður og hár-
greiðsla ættu að vera efst á lista en málið er
að það þýðir ekkert að kaupa fermingarföt
ár fram í tímann því börn á þessum aldri
geta stækkað á ógnarhraða. Á veirutímum
lentu sumir foreldrar í því að börnin þeirra
voru löngu vaxin upp úr fötunum þegar
kom að fermingunni og auglýstu sumar
verslanir það sérstaklega að hægt væri
að skipta of litlum fermingarfötum.
8 Myndataka Þótt allir og amma
þeirra séu orðnir ljósmyndarar með
tilkomu snjallsímanna þá jafnast ekkert
á við fallegar ljósmyndatökur sem
framkvæmdar eru af fagmönn-
um. Þótt myndataka kosti
peninga og geti verið
vesen þá er hún al-
gerlega þess virði
þegar fram í sækir.