Morgunblaðið - 11.03.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.03.2022, Qupperneq 4
Sigurður Þorri hefur nóg að gera. Það aftrar honum hins vegar ekki frá því að fara í góðar veislur. 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2022 WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR Fabrikkusmáréttir í fermingarveisluna HEITaR lundir Heitar kjúklingalundir (1 kg.) Bornar frammeð gráðostasósu og hotwings sósu. BBQ lundir BBQ kjúklingalundir (1 kg.) Bornar frammeð hvítlaukssósu og BBQ sósu. S igurður Þorri Gunnarsson eða Siggi Gunnars, fjölmiðlamaður og skemmtikraftur með meiru, er á því að fermingartímabilið sé ein- staklega skemmtilegt, enda aldr- ei hægt að fara í of margar góðar veislur yfir ævina. „Það er sama hvað er mikið að gera hjá mér, ég sleppi ekki góðum veislum. Ég er í mikilli törn í vinnunni núna, með tvo dag- lega þætti í útvarpinu á K100 ásamt því að stýra stöðinni. Svo er ég með bingóþætti mbl.is einu sinni í viku en það klárast núna um miðjan mars. Ég er farinn að renna hýru auga til frís sem ég er búinn að panta mér. Ég ætla í tvær vikur til Tenerife og ferðast einn, það er nokkuð sem mig langar að prófa og er spenntur fyrir. Það gengur vel í leik og starfi og ég er á fullu í líkams- rækt hjá frábærum einkaþjálfara og stunda sjósund af miklum móð nokkrum sinnum í viku.“ Fermdist í brakandi blíðu árið 2003 Sigurður fermdist hinn 8. júní 2003 í brakandi blíðu á Akueyri þar sem hann er fæddur og uppalinn. „Ég verð nú að viðurkenna að ég man mjög lítið eftir fermingunni, annað en að hún fór fram í Akureyrarkirkju, hvítu kyrtlarnir voru á sínum stað og eflaust trúarjátningin líka, sem ég verð einnig að viðurkenna að ég man ekki í dag!“ Sigurður man tölu- vert betur eftir veisl- unni. „Við héldum garðveislu enda var veðrið ekta sum- arveður á Akureyri, með logni, sól og hita. Mamma mín er einstök þegar veislur eru annars vegar. Hún gerir geggjaðar kökur og heita rétti og það var sko nóg í boði í fermingunni þar sem saman var komið fullt af frábæru fólki sem mér þykir vænt um. Einum veislugestanna, frænku minni frá Texas, datt í hug að ég ætti að opna gjafir og lesa af kortum meðan á veislunni stæði. Mér leist ekkert á það en gerði það svo og það var rosalega notaleg stund. Við sát- um saman, ég las upp kortin og tók utan af gjöfunum og þakkaði svo fólkinu beint fyr- ir. Þetta var virkilga góður dagur í minn- ingunni.“ Glaður að tíska fermingarbarna skuli hafa breyst í gegnum árin Sigurður er alltaf vel til fara og ber að margra mati af öðrum mönnum í klæða- burði. Hann er óviss um að sú hafi verið raunin á fermingardaginn hér um árið. „Jesús. Þarna var þjóðbúningurinn þeirra í 17 sem er enn vinsæll á herrum og það var sko leigður þjóðbúningur á mig. Mig minnir að þessi búningur hafi verið hannaður síðla á 10. áratugnum og hann ber þess sterk merki. Það voru allir í þessu þá og algengt að menn giftu sig eða fermdust í þessu dressi, í vesti með tölunum og með hvítt slifsi. Maður sér þennan búning sjaldan í dag, enda eldist hann kannski ekki vel, en það er gaman að eiga svona fína tískumynd af sér frá þessum tíma.“ Var góð tónlist eða skemmtiatriði í ferm- ingunni? „Tónlist hefur alltaf skipt mig mjög miklu máli. Ég var því búinn að gera laga- lista og brenna hann á disk sem síðan „mallaði“ undir í hátalara sem ég hafði sér- staklega tengt við míkrófón, sem ég ætlaði að tala í þegar ég byði fólk velkomið. Svo var ég svo feiminn að ég hætti við það!“ Er enn þá að nota fermingargjöfina Það fallegasta sem Sigurður fékk í ferm- ingargjöf var hljómborð sem foreldrar hans gáfu honum. „Ég glamraði á það í mörg ár og á það enn.“ Hvað getur þú sagt okkur frá fermingar- myndatökunni? „Það var Finnbogi Marinósson ljósmynd- ari sem tók myndirnar en hann hefur tekið myndir af ófáum rokksveitum. Því var smá rokksveitarstemning á myndunum.“ Áttu gott ráð fyrir þá sem eru að fermast í dag? „Já, að njóta dagsins með fólki sem þeim þykir vænt um og gott að vera í kringum.“ Til að veislan verði skemmtileg er Sig- urður á því að boðslistinn skipti mestu máli. „Ég mæli með að bjóða þeim sem þig langar virkilega að bjóða og hafa í kringum þig. Með góðu fólki, í góðum anda er allt skemmtilegra.“ Það ættu allir að fermast eins og þeir vilja Sigurður var vinmargur sem barn og margt skemmtilegt brallað á fermingartím- anum. „Við vinirnir vorum mikið í útilegum og í því að tjalda í görðum hver annars á sumr- in á þessum árum. Mig minnir einmitt að við höfum gist saman í tjaldi í einhverjum garði nóttina fyrir ferminguna.“ Ástæður þess að við fermumst geta verið misjafnar að hans mati. „Við ættum því ekkert að vera að velta fyrir okkur hvernig næsti maður gerir þetta og á hvaða forsendum. Eins vil ég segja við þá sem eru í vafa um hvort þeir eigi að fermast að hafa ekki áhyggjur af því að vera öðruvísi en aðrir. Gerðu þetta bara nákvæmlega eins og þú vilt hafa þetta. Þig þarf raunverulega að langa til að fermast og að halda veislu til þess að njóta þess.“ Glaður að fermingartískan hefur breystmeð árunum Sigurður Þorri Gunnarsson er á því að hver og einn eigi að hafa ferminguna eftir sínu höfði. Hann klæddist ís- lenska hátíðabúningnum sem var vinsæll þegar hann fermdist. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sigurður Þorri Gunnarsson elskar góðan fatnað og gleðst með ferm- ingarbörnum í dag að ekki skuli vera í tísku lengur að vera í þjóðbúningi eins og þegar hann fermdist á sínum tíma. Glæsilegur var hann þó! Sigurður ásamt bróður sín- um, Daníel. Eins og sjá má voru bræðurnir í stíl í ferm- ingu þess fyrrnefnda.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.