Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 21
Hlutfall raforku í heiminum
sem framleitt er með kolum
hefur aldrei verið hærra en
um þessar mundir. Það þýðir
að þau loftslagsmarkmið sem
sett hafa verið virðast eiga enn
lengra í land með að nást en ætla
mætti af umræðunni. Kolakynt
raforkuframleiðsla stendur fyrir
um 30% af losun koltvísýrings í
heiminum.
Gert var ráð fyrir að raforku
framleiðsla á heimsvísu úr kolum
hækkaði um 9% á árinu 2021,
samkvæmt skýrslu fjölríkja
stofnunarinnar Coal 2021 og staðsett
er í París. Raforka er ein helsta
uppspretta orku í iðnaði ríkja um
allan heim fyrir utan beinnar nýtingar
á kolum og olíu.
Tímaritið TIME fjallaði um málið
í lok desember síðastliðinn, en þá
var búist við að magn raforku sem
framleitt er úr kolum næði sögulegu
hámarki á síðasta ári. Eftirspurn eftir
raforku var einfaldlega meiri en hægt
var að sinna með öðrum hætti en að
nýta kol, olíu og gas í meira mæli
til raforkuframleiðslu samkvæmt
Alþjóðaorkumálastofnuninni (IEA).
Til að bæta gráu ofan á svart lokuðu
Þjóðverjar þrem kjarnorkuverum
í byrjun þessa árs án þess að geta
uppfyllt þá raforkuframleiðslu með
endurnýjanlegri orku. Það mun enn
auka á þennan vanda. Þjóðverjar
eru þegar komnir upp að vegg með
fjölgun vindrafstöðva vegna vaxandi
andstöðu við sjón og hljóðmengun
sem hlýst af risastórum vindmyllum
nærri byggð.
Ísland og Noregur
í algjörum sérflokki
Fróðlegt er að skoða þetta í
samanburði við tölur Eurostat um
framleiðslu Evrópuríkja á raforku
úr endurnýjanlegum orku lindum.
Þar kemur í ljós að Ísland og
Noregur eru einu Evrópuríkin sem
framleiða meira en sem nemur
heildar raforkunotkun landanna af
hreinni raforku úr endurnýjanlegum
orkulindum, eða yfir 100%. Það
þýðir að kolefnislosun þessara landa
vegna raforkuframleiðslu gerist ekki
lægri. ESB ríkin eru með að meðaltali
37,5%. Að vísu hafa á undanförnum
misserum komið í ljós hnökrar á
þessari raforkuframleiðslu á Íslandi
vegna andvaraleysis í áframhaldandi
uppbyggingu orku framleiðslu og
dreifikerfis.
Þrátt fyrir þessar staðreyndir
um raforkuframleiðslu ríkja er til
fólk sem fullyrðir að Íslendingar
séu mestu umhverfissóðar heims
í losun koltvísýrings og annarra
gróðurhúsalofttegunda. Þar hefur
verið reynt að blekkja losunartölur
ríkja til að þóknast umræðunni með
því að beita hausatöluútreikningi.
Eins er iðulega talað um losun
frá landnotkun, sem er utan sviga
í loftslagsmarkmiðum, rétt eins
og orku og iðnaðarmengunin í
Evrópu ásamt flugrekstri og fleiru
sem keyrt er áfram á kolum, olíu og
gasi. Skekkjan í þessari umræðu eins
og hún hefur oft verið matreidd hér
á landi er því í hrópandi ósamræmi
við veruleikann sem birtist í tölum
Eurostat og WindEurope.
ESB-ríkin eru langt frá því
að ná sínum markmiðum
Heildar uppsett afl í vindorku í
Evrópu er nú 236 GW samkvæmt
tölum WindEurope í Brussel.
Uppsett afl vindrafstöðva í Evrópu
jókst um 17,4 gígawött á árinu
2021, þar af 3,4 GW í sjó. Það er
um 18% aukning á milli ára. Af þessu
uppsetta afli vindorkuvera voru 11
GW innan landa Evrópusambandsins
(ESB27). Þetta var samt ekki
talið nóg aukning til að geta mætt
loftslagsmarkmiðum. Reyndar
segir á heimasíðu WindEurope að
uppsett afl í vindorku sé ekki einu
sinni helmingurinn af því sem til
þurfi að uppfylla loftslagsmarkmið
fyrir 2030 um að komast með
endurnýjanlega raforku upp í 40%
af heildarraforkuþörfinni. Þar eru
Noregur og Ísland þegar með yfir
100%.
Um 81% af nýjum vindorku
virkjunum sem reistar voru í
Evrópu á síðasta ári voru á landi.
Svíþjóð, Þýskaland og Tyrkland
byggðu flestar slíkar vindmyllur.
Bretland var hins vegar með mesta
heildarfjölda nýrra vindorkuvirkjana,
en flestar þeirra nýju vindorkuvera
eru á hafi úti.
Vindurinn óstöðug orkulind
Gallinn við þessa uppbyggingu
vindorkuvera í Evrópu er hversu
ótrygg orkan er. Þetta kom berlega í
ljós í fyrrasumar þegar ríkjandi var
mjög lítill vindur í Evrópu þannig að
raforkuframleiðsla vindorkuveranna
hrundi. Það ásamt ónógu innflæði af
gasi til raforkuframleiðslu í Evrópu
leiddi til orkuskorts og ört hækkandi
orkuverðs.
Vantar mikið á að nóg sé gert
í uppsetningu vindorkuvera
í Evrópu
WindEurope gerir ráð fyrir að
Evrópu ríkin í heild muni setja upp
116 GW af nýjum vindorkuverum
á tímabilinu 20222026, eða um 23
GW á ári. Þrír fjórðu þessara auknu
raforku munu koma frá vindmyllum
á landi. Gert er ráð fyrir að ESB27
muni byggja að meðaltali 18 GW
af nýjum vindorkuverum á árunum
202226. Þessi ríki þurfa hins vegar
að setja upp 32 GW í vindorku á ári
til að ná nýju markmiði ESB um 40%
endurnýjanlega orku.
Þýskaland getur í dag framleitt
allt að 45,3% af raforkuþörf sinni
með endurnýjanlegri orku, þ.e. ef
veður eru hagstæð. Önnur raforka
í landinu er að mestu framleidd
með kolum, olíu og gasi. Þýskaland
verður öflugasta vindorkuríki
Evrópu ef áætlanir ganga eftir næstu
fimm árin, um að auka uppsett afl
þar í vindorkuverum á landi um 19,7
GW og í hafinu um 5,4 GW. Önnur
öflug ríki með uppsetningu á nýjum
vindorkuverum á árunum 20222026
eru Bretland með 15 GW samtals,
Frakkland með 12 GW, Spánn með
10 GW og Svíþjóð með 7 GW.
Evrópa er ekki nálægt því
að ná sínum markmiðum
Þrátt fyrir árlega fjölgun í
uppsetningu á vindmyllum mun
Evrópu ekki takast að setja upp
nærri eins margar vindmyllur á
landi og álfan þarf til að ná orku og
loftslagsmarkmiðum sínum. Evrópa
þyrfti að setja upp 25 GW af nýjum
vindorkuverum á landi að meðaltali
á ári á tímabilinu 20222026 að mati
WindEurope. Svipuð mynd er fyrir
vindorku á sjó. Þrátt fyrir vaxandi
árlega uppsetningu mun Evrópa ekki
komast neitt nærri því að koma upp
eins miklu uppsettu afli í vindorku
á sjó og hún þarf til að ná orku og
loftslagsmarkmiðum sínum. Til þess
þyrfti Evrópa að setja meira en 8 GW
í uppsettu afli í vindmyllum úti í sjó
að meðaltali á ári á tímabilinu 2022
2026, segir á heimasíðu WindEurope.
Um 80% af orkuþörf heimila í
ESB er ekki endurnýjanleg
Þegar rætt er um kolefnislosun er
líka vert að hafa í huga hitunar og
kælikostnað heimila. Heildarorka til
heimila í Evrópusambandinu nemur
um 26,3% af heildarorkunotkun.
Inni í því er húshitun og kæling,
ásamt orku til eldunar, lýsingar
og annarrar tækjanotkunar Þar af
stendur endurnýjanleg orka og orka
frá sorporkustöðvum fyrir 20,1%
af orkuþörf heimila. Kol og timbur
standa fyrir 2,8% af orkuþörf heimila,
olía fyrir 11,8%, gas fyrir 32,1%,
fjarvarmi fyrir 8,5% og raforka fyrir
24,7%. Ef horft er til raforkunnar
einnar og sér er um 70% af henni
framleidd með jarðefnaeldsneyti.
Ísland sker sig líka úr varðandi
hitun húsnæðis
Þegar þessar tölur frá Evrópu eru
bornar saman við tölur Orkustofnunar
um íslenskan veruleika þá sést að
89,6% íbúðarhúsnæðis á Íslandi var
hitað með jarðvarmaorku. Þá var
6,8% húsnæðis hitað með rafmagni
og 3,4% með vatnshitara sem ýmist
var kyntur með raforku eða olíu.
Einungis 0,1% húsnæðis var kynnt
á annan hátt. Þetta er þveröfugt við
það sem þekkist í löndum ESB þar
sem um 80% húshitunar er fengin
með jarðefnaeldsneyti eða öðrum
óendurnýjanlegum orkugjöfum.
Nærri milljarður tonna CO2
ígilda puðrast út í loftið vegna
orkunotkunar í húsum í ESB
Á árinu 2019 nam losun gróðurhúsa
lofttegunda vegna raforkunotkunar í
húsnæði í ESB ríkjum samtals 533
milljón tonna CO2 ígildum. Þá nam
losun gróðurhúsalofttegunda vegna
notkunar jarðefnaeldsneytis í húsum
í ESB ríkjum 446,7 milljón tonna
CO2 ígildum 2019. Þá á eftir að ræða
losun vegna húsbygginganna sjálfra.
Þótt Norðmenn hafi sett fram
áform árið 2020 um að banna olíu
til húshitunar, þá hafa olía og timbur
verið ríkjandi orkumiðlar þar í landi
til húshitunar. Norðmenn búa ekki
við jarðhita eins og Íslendingar.
Þrátt fyrir þessi tölfræðigögn frá
evrópskum stofnunum er því enn
haldið fram hér á landi að Íslendingar
losi mest allra þjóða af CO2 ígildum
út í andrúmsloftið.
Stríð hefur neikvæð áhrif
Ljóst er að stríð í Úkraínu er þegar
farið að hafa veruleg neikvæð áhrif
varðandi losun gróðurhúsa loft
tegunda. Sprengjur og brennandi
hús skapa mikla mengun og
viðskipta höft koma til með að hafa
mikil áhrif á orkunotkun í Evrópu.
Forsætisráðherra Bretlands viðraði
þær skoðanir þriðjudaginn 16. mars
sl. að Bretland yrði að gera allt til að
losna við að kaupa orku af Rússum.
Var hann þá á leið til SádiArabíu
til viðræðna um olíu og gaskaup.
Kynnti hann jafnframt vangaveltur
um að setja á ný kraft í olíuleit við
strendur Bretlands. /HKr.
GÆÐI, ENDING
OG GOTT VERÐ
Urðarhvarfi 4 / Kópavogi / Sími 557 4848 / www.nitro.is
Eigum til CFMOTO
fjórhjól og buggybíla til
afhendingar strax.
Ísland og Noregur eru einu Evrópuríkin sem geta framleitt
yfir 100% af raforkuþörf sinni með endurnýjanlegri orku
– ESB-ríkin eru með 37,5% að meðaltali í endurnýjanlegri raforku og eiga langt í land með að ná markmiðum í loftslagsmálum
Samkvæmt tölum Eurostat eru Noregur og Ísland einu Evrópulöndin sem framleiða meira af raforku með
endurnýjanlegum orkugjöfum en heildarraforkunotkunin er í löndunum. ESB-ríkin eiga flest öll langt í land að ná
því marki og þar er raforkan sem upp á vantar framleidd með kolum, olíu, gasi og kjarnorku og kolefnislosun er í
takti við það.