Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 45
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
FRISTADS er ný vinnufatalína hjá
Dynjanda. Fallegur og vandaður
fatnaður sem hentar íslenskum
aðstæðum afar vel.
Kíktu í vefverslun okkar dynjandi.is
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STÍUGRINDUR
1,23m og 1,84m
VANTAR ÞIG
VINNUFÉLAGA?
Njarðarbraut 1
260 Reykjanesbæ
Sími: 421 4037
netfang: lyfta@lyfta.is
www.lyfta.is
421 4037
Lyfta er umboðsaðili á Íslandi fyrir Snorkel og Smartlift
• Skæralyftur
• Spjótlyftur
• Skotbómulyftarar
• Sogskálalyftur
Við höfum til leigu og sölu
Karólínu Elísabetardóttur
í Hvammshlíð voru veitt
Hvatningarverðlaun Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar fyrir árið
2021 vegna ódrepandi áhuga,
tengingar við erlenda vísindamenn
og hvatningar til umfangsmikillar
sýnatöku til að greina og finna
verndandi arfgerð gegn riðusmiti í
íslensku sauðkindinni. Verðlaunin
voru veitt á aðalfundi BSE en
Karólína komst ekki en var tengd
með fjarfundarbúnaði.
Bóndinn, sem kallar sig Karólínu
í Hvammshlíð, er þýsk að uppruna,
fædd vorið 1970 og bar í sínu
fæðingarlandi nafnið Caroline
Mende.
Karólína kom fyrst til Íslands
1989 og fékk strax á tilfinninguna að
„þetta væri sitt land“. Það var þó ekki
fyrr en nokkru síðar sem hún keypti
sitt eigið land, fyrst í Hegranesinu
og síðan árið 2015 eignaðist hún
Hvammshlíð, sem hafði verið í
eyði í 127 ár, eða frá árinu 1888.
„Það verður að segjast eins og er að
þá töldu margir að ekki væri alveg
í lagi með Karólínu. Hvammshlíð
er þar sem Þverárfjallsvegur liggur
sem hæst milli Skagafjarðar og
Húnavatnssýslu.
Þar á hún sitt fjall og sína á
og í stað ljósa á nágrannabæjum
hefur hún stjörnurnar og er undir
norðurljósum. Þar hefur hún komið
upp aðstöðu fyrir sig og sína,“ segir
í umsögn BSE vegna verðlaunanna.
Hvammshlíðarostur nýjasta
búgreinin
Bústofninn er tæpar 60 kindur, 3
hross og hundar. Sumir þekkja til
Karólínu vegna dagatala sem hún
hefur gefið út með margvíslegum
upplýsingum um íslenska þjóðhætti.
Dagatalsútgáfan stóð t.d. undir
kaupum á dráttarvél í Hvammshlíð.
Nýjasta búgreinin hjá Karólínu
er ostagerð, „Hvammshlíðarostur“,
þar sem lögð er áhersla á að nota
engin íblöndunarefni sem eru
íslensk og kryddin á ostinum úr
náttúrunni. Osturinn lenti þó í því
að sitja aðeins á hakanum þegar
önnur verkefni sóttu á.
Magnaður áhugi
Haustið 2020 fór Fagráð í
sauðfjárrækt að velta fyrir sér
hvort nýjar leiðir væru mögulegar
í baráttu við riðuveikina og þar
á meðal hvort mögulegt væri að
flytja inn erfðaefni til að byggja
upp verndandi afbrigði gegn
riðuveiki í okkar fjárstofni. Á það
leist Karólínu ekki og hvatti mjög
til þess að leitað væri betur að
verndandi arfgerð innanlands.
Að sögn Eyþórs Einarssonar,
ráðunautar í sauðfjárrækt hjá RML,
var áhugi Karólínu magnaður og
mjög hjálplegur við að komast í
samband við vísindamenn í öðrum
löndum til að leggja grunn að
sem faglegustum rannsóknum á
arfgerðum og hvort möguleiki væri
á að finna verndandi arfgerðasæti
íslenska sauðfjárstofnsins.
Nú hefur komið í ljóst að þetta
efni er farið að finnast. /MÞÞ
Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar:
Karólína í Hvammshlíð hlaut
hvatningarverðlaun
Verðlaunagripurinn í ár er eftir
Guðrúnu Á. Steingrímsdóttur en að
auki fylgdu með 200 þúsund krónur.
Karólína í Hvammshlíð fær Hvatningarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar
fyrir árið 2021 vegna ódrepandi áhuga, tengingar við erlenda vísindamenn
og hvatningar til umfangsmikillar sýnatöku til að greina og finna verndandi
arfgerð gegn riðusmiti í íslensku sauðkindinni. Mynd/ Aðsend