Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 49 Nú er hafið kapphlaup að setja upp vindmyllugarða úti um allt land. Að þessu standa innlendir og erlendir fjárfestar. Enn er gerð atlaga að auðlindum landsins án þess að almenningur muni njóta góðs af arðinum sem felst í þeirri náttúruauðlind sem vindurinn er. Nú þegar hafa aðilar sölsað undir sig fiskveiðiauðlindina án þess að fullt gjald komi fyrir og eins má minna á svo til frí afnot fiskeldisfyrirtækja af fjörðum landsins. Arðurinn af vindorkuverum mun ekki enda hjá íbúum og sveitarfélögum í dreifbýli Íslands heldur að öllum líkindum á erlendum aflandsreikningum með bókhaldsbrellum. Allir þekkja hvernig byggðaþróun var háttað á Íslandi á seinni hluta tuttugustu aldar. Fólki fækkaði til muna í sveitum landsins og eins í sjávarplássum þar sem einstaklingar, fyrirtæki og sveitarfélög létu glepjast af skyndigróða og seldu frá sér kvóta með hörmulegum afleiðingum fyrir íbúa viðkomandi sjávarplássa. Í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli komst Ísland rækilega á blað erlendra ferðamanna. Skyndilega streymdu ferðamenn til Íslands sem aldrei fyrr. Ekki einasta komu ferðamenn til Íslands að sumri heldur líka að vetri. Og þá gerðist það merkilega að fólksflótti úr dreifbýlinu snérist við. Ungt fólk gat snúið aftur til æskustöðvanna og breytt búskap úr því að hugsa um dýr og huga þess í stað að ferðamönnum. Eða jafnvel sinnt bæði, búskap og ferðamönnum. Ferðaþjónustan var orðin að heilsársbúgrein. Með því að setja upp vindmyllugarða þá eyðileggst óspillt víðáttan En hvað var það sem heillaði ferða menn við Ísland? Það var og er (nánast) óspillt náttúra landsins. Jöklarnir, sandarnir, hálendi Íslands og svo það sem mjög margir ferðamenn hafa orð á, óspillt víðáttan. Með því að setja upp vindmyllu garða þá eyðileggst óspillt víðáttan fyrir utan þá staðreynd að arðurinn af téðum vindmyllugörðum mun ekki nýtast íbúum né heldur sveitarfélögum þar sem vindmyllugarðar yrðu settir upp. Ef af þessum vondu áformum verður mun draga úr straumi ferðafólks vegna þess að búið verður að spilla aðalaðdráttarafli ferðamanna til Íslands sem er óspillt náttúra. Hér skal því haldið fram að ferðaþjónustunni tókst það sem gervöllum ráðstöfunum íslenskra stjórnmála á tuttugustu öldinni tókst ekki, að snúa við fólksflóttanum frá dreifbýlinu til þéttbýlisins á SV-horninu. Minna má á Byggðastofnun, laxeldi, loðdýrarækt, endalausa styrki til alls kyns framkvæmda og svo mætti lengi telja. Að mati þess sem hér ritar á það að vera markmið að halda landinu í byggð eins og við getum. Og við eigum að leggja mikið á okkur til þess að svo verði. Óspillt náttúra er mikilvægasti þátturinn í því að laða að ferðamenn til Íslands. Dæmi um sveitarfélag þar sem fólksfækkun var svo mikil að sveitarfélagið var orðið skilgreint sem brothætt byggð, var Skaftárhreppur. Skaftárhreppur hefur notið góðs af fjölgun ferðamanna svo um munar. Því sætir það nokkurri furðu að til eru öfl í Skaftárhreppi sem berjast fyrir því að virkja bæði vind og vatn í hreppnum. Ef þessum sömu aðilum er annt um að búseta haldist í hreppnum ættu þeir að láta sig mjög varða óspillta náttúru í hreppnum sem og reyndar annars staðar á landinu. Ef náttúru Skaftárhrepps verður spillt með vatnsvirkjunum og/eða vindmyllugörðum mun það rýra mjög aðdráttarafl ferða manna og draga verulega úr atvinnu- möguleikum íbúa Skaftár hrepps. Og svo því sé haldið til haga þá vantar ekki orku á Íslandi, það vantar betra dreifikerfi til að hægt sé að miðla orku milli landshluta þegar svo ber undir. Ágætu íbúar í dreifbýli og sveitarstjórnir. Leyfum náttúru Íslands að vera óspilltri og skilum henni þannig til niðja okkar og einnig til þeirra sem leggja á sig á heimsækja Ísland til að njóta óspilltrar náttúru. Ingólfur Bruun ib@betrifjarskipti.is Höfundur er leiðsögumaður og framkvæmdastjóri Betri fjarskipta ehf. RÚLLUPLAST 2022 GRASFRÆ GRÆNFÓÐUR BYGG HAFRAR Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti Hvítt / Grænt 15.098 kr 15 Svart 14.915 kr 15 Rúlluplast Tenospin | 750mm x 25µm x 1500m Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti Hvítt - ÁN KASSA 16.653 kr 15 Rúlluplast Tenospin | 750mm x 25µm x 1700m Verð eru gefin upp án vsk og með fyrirvara um prentvillur Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti Hvítt - 1900 m 17.550 kr 15 Grænt - 2400 m - UPPSELT 21.777 kr 15 Rúlluplast Tenoplus | 750mm x 21µm x 1900m / 2400 m Undirplast, net og garn Stærð Listaverð án vsk. TrioBale Compressor undirplast 1400 x 0,020 x 1800 m 35.099 kr TrioBale Compressor undirplast 1400 x 0,017 x 2200 m 35.900 kr Westfalia net 123 x 3000 m 26.500 kr Westfalia net 130 x 3000 m 27.900 kr Cobra Miljö rúllugarn - 3.500 kr Fosshálsi 1, 110 Reykjavík - 575-6071 | Ormsvelli 4, 860 Hvolsvelli - 575-6099 BÚVÖRUR SS | www.buvorur.is SÁÐVARA SS 2022 Notaðu myndavélina á símanum til að skanna kóðann! SÁÐVÖRULISTI LESENDARÝNI Ákall til íbúa og sveitarstjórna í dreifbýli Íslands Ingólfur Bruun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.