Bændablaðið - 24.03.2022, Qupperneq 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 2022 49
Nú er hafið kapphlaup að setja
upp vindmyllugarða úti um allt
land. Að þessu standa innlendir
og erlendir fjárfestar. Enn er gerð
atlaga að auðlindum landsins án
þess að almenningur muni njóta
góðs af arðinum sem felst í þeirri
náttúruauðlind sem vindurinn er.
Nú þegar hafa aðilar sölsað
undir sig fiskveiðiauðlindina án
þess að fullt gjald komi fyrir og
eins má minna á svo til frí afnot
fiskeldisfyrirtækja af fjörðum
landsins.
Arðurinn af vindorkuverum
mun ekki enda hjá íbúum og
sveitarfélögum í dreifbýli Íslands
heldur að öllum líkindum á
erlendum aflandsreikningum með
bókhaldsbrellum.
Allir þekkja hvernig byggðaþróun
var háttað á Íslandi á seinni hluta
tuttugustu aldar. Fólki fækkaði til
muna í sveitum landsins og eins í
sjávarplássum þar sem einstaklingar,
fyrirtæki og sveitarfélög létu glepjast
af skyndigróða og seldu frá sér kvóta
með hörmulegum afleiðingum fyrir
íbúa viðkomandi sjávarplássa.
Í kjölfar gossins í Eyjafjallajökli
komst Ísland rækilega á blað
erlendra ferðamanna. Skyndilega
streymdu ferðamenn til Íslands
sem aldrei fyrr. Ekki einasta komu
ferðamenn til Íslands að sumri
heldur líka að vetri. Og þá gerðist
það merkilega að fólksflótti úr
dreifbýlinu snérist við. Ungt fólk
gat snúið aftur til æskustöðvanna og
breytt búskap úr því að hugsa um dýr
og huga þess í stað að ferðamönnum.
Eða jafnvel sinnt bæði, búskap og
ferðamönnum. Ferðaþjónustan var
orðin að heilsársbúgrein.
Með því að setja upp
vindmyllugarða þá eyðileggst
óspillt víðáttan
En hvað var það sem heillaði
ferða menn við Ísland? Það var
og er (nánast) óspillt náttúra
landsins. Jöklarnir, sandarnir,
hálendi Íslands og svo það sem
mjög margir ferðamenn hafa orð
á, óspillt víðáttan. Með því að setja
upp vindmyllu garða þá eyðileggst
óspillt víðáttan fyrir utan þá
staðreynd að arðurinn af téðum
vindmyllugörðum mun ekki nýtast
íbúum né heldur sveitarfélögum þar
sem vindmyllugarðar yrðu settir
upp. Ef af þessum vondu áformum
verður mun draga úr straumi
ferðafólks vegna þess að búið
verður að spilla aðalaðdráttarafli
ferðamanna til Íslands sem er óspillt
náttúra.
Hér skal því haldið fram
að ferðaþjónustunni tókst það
sem gervöllum ráðstöfunum
íslenskra stjórnmála á tuttugustu
öldinni tókst ekki, að snúa við
fólksflóttanum frá dreifbýlinu til
þéttbýlisins á SV-horninu. Minna
má á Byggðastofnun, laxeldi,
loðdýrarækt, endalausa styrki til
alls kyns framkvæmda og svo mætti
lengi telja. Að mati þess sem hér
ritar á það að vera markmið að halda
landinu í byggð eins og við getum.
Og við eigum að leggja mikið á
okkur til þess að svo verði. Óspillt
náttúra er mikilvægasti þátturinn í
því að laða að ferðamenn til Íslands.
Dæmi um sveitarfélag þar
sem fólksfækkun var svo mikil
að sveitarfélagið var orðið
skilgreint sem brothætt byggð, var
Skaftárhreppur. Skaftárhreppur
hefur notið góðs af fjölgun
ferðamanna svo um munar. Því
sætir það nokkurri furðu að til eru
öfl í Skaftárhreppi sem berjast
fyrir því að virkja bæði vind og
vatn í hreppnum. Ef þessum sömu
aðilum er annt um að búseta haldist í
hreppnum ættu þeir að láta sig mjög
varða óspillta náttúru í hreppnum
sem og reyndar annars staðar á
landinu. Ef náttúru Skaftárhrepps
verður spillt með vatnsvirkjunum
og/eða vindmyllugörðum mun það
rýra mjög aðdráttarafl ferða manna
og draga verulega úr atvinnu-
möguleikum íbúa Skaftár hrepps.
Og svo því sé haldið til haga
þá vantar ekki orku á Íslandi, það
vantar betra dreifikerfi til að hægt
sé að miðla orku milli landshluta
þegar svo ber undir.
Ágætu íbúar í dreifbýli og
sveitarstjórnir. Leyfum náttúru
Íslands að vera óspilltri og skilum
henni þannig til niðja okkar og
einnig til þeirra sem leggja á sig
á heimsækja Ísland til að njóta
óspilltrar náttúru.
Ingólfur Bruun
ib@betrifjarskipti.is
Höfundur er leiðsögumaður
og framkvæmdastjóri Betri
fjarskipta ehf.
RÚLLUPLAST 2022
GRASFRÆ
GRÆNFÓÐUR
BYGG
HAFRAR
Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti
Hvítt / Grænt 15.098 kr 15
Svart 14.915 kr 15
Rúlluplast Tenospin | 750mm x 25µm x 1500m
Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti
Hvítt - ÁN KASSA 16.653 kr 15
Rúlluplast Tenospin | 750mm x 25µm x 1700m
Verð eru gefin upp án vsk og með fyrirvara um prentvillur
Litur Listaverð án vsk. Magn á bretti
Hvítt - 1900 m 17.550 kr 15
Grænt - 2400 m - UPPSELT 21.777 kr 15
Rúlluplast Tenoplus | 750mm x 21µm x 1900m / 2400 m
Undirplast, net og garn Stærð Listaverð án vsk.
TrioBale Compressor undirplast 1400 x 0,020 x 1800 m 35.099 kr
TrioBale Compressor undirplast 1400 x 0,017 x 2200 m 35.900 kr
Westfalia net 123 x 3000 m 26.500 kr
Westfalia net 130 x 3000 m 27.900 kr
Cobra Miljö rúllugarn - 3.500 kr
Fosshálsi 1, 110 Reykjavík - 575-6071 | Ormsvelli 4, 860 Hvolsvelli - 575-6099
BÚVÖRUR SS | www.buvorur.is
SÁÐVARA SS 2022
Notaðu myndavélina
á símanum til að
skanna kóðann!
SÁÐVÖRULISTI
LESENDARÝNI
Ákall til íbúa og sveitarstjórna í dreifbýli Íslands
Ingólfur Bruun.