Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202224 Leikfélög framhaldsskólanna víðs vegar um landið standa í sýningum þessa dagana enda stór þáttur félagslífs og án efa mikilvægur hluti þess að læra að standa fyrir framan fjölda manns og láta til sín taka. Eitt elsta leikfélag sem heimildir eru til um er Herranótt, nú leikfélag Menntaskólans í Reykjavík. Var það stofnað árið 1787 og talið hið elsta á Norðurlöndunum. Upphaflega hóf Herranótt þó tilvist sína í Skálholtsskóla er skólapiltar hófu skólaárið á nokkurs konar uppistandi þar sem gert var grín að ræðum virðulegra presta staðarins, en grín þetta hafði þó á sér brag vikivakahátíða svokallaðra, þar sem voru sett upp hin ýmsu gervi og brugðu piltarnir sér í allra kvikinda líki. Við fjölgun framhaldsskóla í landinu fjölgaði leikfélögum þeirra að sama skapi og má segja að við hvern einasta séu nú framkvæmd kraftaverk á sviði á einn eða annan hátt. Hér á síðunni er stiklað á stóru og nokkur þeirra kynnt til leiks. Er víst að á fjölum framhaldsskólanna má sannarlega finna leikaraefni framtíðarinnar. Á móti straumnum Menntaskólinn við Hamrahlíð Leikritið Á móti straumnum fjallar um tvenn hjón sem ákveða að leigja saman bát og fara í skemmtisiglingu upp ána Orb. Fríið fer þó ekki eins vel og vonir stóðu til vegna ósættis hjónanna og smæð bátsins. Ferðalagið tekur óvænta stefnu þegar siðblindir sjóræningjar hertaka bátinn. Á endanum verða þau öll að velja hvort þau eigi að sigla með eða á móti straumnum. Síðasta sýning verður föstudaginn 25. mars. (miðar tix.is) Grease Fjölbrautaskóli Suðurnesja Föstudaginn 18. mars sl. frumsýndi Leikfélag Keflavíkur ungmennasöngleikinn Grease en hann er settur upp í samstarfi við Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Vox Arena, leikfélag NFS. Listrænir stjórnendur voru allir þátttakendur í Fyrsta kossinum en því sýningarferli lauk 19. febrúar og því byrjuðu æfingar á Grease ekki af fullum krafti fyrr en um miðjan febrúar. Má því segja að síðustu vikur hafi verið afar krefjandi fyrir alla sem að sýningunni koma en stjórnarmeðlimir Leikfélags Keflavíkur eru þó mjög ánægðir með samstarfið við leikfélag NFS. Síðasta sýning verður laugardaginn 26. mars. (miðar tix.is) Ekki um ykkur Leikfélag Menntaskóla Ísa fjarðar Verkið fjallar um vinahóp sem hittist úti á landi í jarðarför eins æskufélaga þeirra – þó lítið sem ekkert samband hafi verið síðan á unglingsárunum. Að jarðarför lokinni ákveða þau þó að skella sér saman í sumarbústað til að rifja upp gamla tíma en í verkinu er hoppað á milli tveggja tímaskeiða þar sem áhorfendur kynnast hópnum bæði í fortíð og nútíð. Hver kyssti hvern, hver var skotinn í hverjum og svo framvegis. Sýningartímabilið stóð yfir í rétt rúma viku, lauk núna 19. mars, en var leikendum ausið mikið lof af þeim heppnu er á horfðu. ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI √ Spéverkið Ef væri ég gullfiskur í höndum Leikfélags Reykholts verður sýnt í Aratungu. Frumsýnt verður föstudaginn 25. mars en miða má finna bæði á tix.is og við innganginn. Sýnt verður 27. og 30. mars, 1., 2. og 3. apríl næstkomandi. Sýnt er kl. 20 nema á sunnudögum, þá kl. 17. √ Kardimommubær Freyvangsleikhússins var frumsýndur þann 4. mars nk. við frábærar undirtektir og fullt hús. Miða má finna á Tix.is eða í síma 857-5598, en sýnt verður áfram næstu vikur. √ Leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi söngleikinn Slá í gegn á dögunum og sló svo sannarlega í gegn. Tíunda og allra síðasta sýning er þó því miður nú í kvöld, fimmtudaginn 24. mars, klukkan 20 ... en kannski hafa einhverjir heppnina með sér hvað varðar miðakaup. Einnig er einhver möguleiki á frekari sýningum ef aðsókn er mikil. Sími 696-1544 / eða leikdeildskalla@gmail.com. Hvað er í gangi?! | S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s | | B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 | Límtré-Timbureiningar Stálgrind Yleiningar PIR Steinull Á fjölum framhaldsskólanna Leikfélag Menntaskóla Ísafjarðar setti nýverið á svið leikverkið Ekki um ykkur en þar rifjar hópur gamalla vina upp unglingsárin, ástir, vonir og vitleysisgang. Mynd / Ágúst Atlason Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Vox Arena, leikfélag NFS, settu á svið söngleikinn fræga, Grease, í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur. Mynd / vefsíða BLÍ Í verki Menntaskólans við Hamrahlíð sjást þau Oddný Þórarinsdóttir sem Fleur, önnur sjóræningjanna, og Lúkas Nói Ólafsson í hlutverki kaupsýslumannsins Alistair. Í þessari senu vill Fleur fá Alistair til að synda svolítið með sér en sá síðarnefndi er ekki alveg á þeim buxunum. Mynd / Kristjana Stefáns.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.