Bændablaðið - 24.03.2022, Qupperneq 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202224
Leikfélög framhaldsskólanna
víðs vegar um landið standa í
sýningum þessa dagana enda
stór þáttur félagslífs og án efa
mikilvægur hluti þess að læra að
standa fyrir framan fjölda manns
og láta til sín taka.
Eitt elsta leikfélag sem heimildir
eru til um er Herranótt, nú leikfélag
Menntaskólans í Reykjavík. Var það
stofnað árið 1787 og talið hið elsta
á Norðurlöndunum.
Upphaflega hóf Herranótt þó
tilvist sína í Skálholtsskóla er
skólapiltar hófu skólaárið á nokkurs
konar uppistandi þar sem gert var
grín að ræðum virðulegra presta
staðarins, en grín þetta hafði þó á
sér brag vikivakahátíða svokallaðra,
þar sem voru sett upp hin ýmsu
gervi og brugðu piltarnir sér í allra
kvikinda líki.
Við fjölgun framhaldsskóla í
landinu fjölgaði leikfélögum þeirra
að sama skapi og má segja að við
hvern einasta séu nú framkvæmd
kraftaverk á sviði á einn eða annan
hátt. Hér á síðunni er stiklað á stóru
og nokkur þeirra kynnt til leiks. Er
víst að á fjölum framhaldsskólanna
má sannarlega finna leikaraefni
framtíðarinnar.
Á móti straumnum
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Leikritið Á móti straumnum
fjallar um tvenn hjón sem ákveða
að leigja saman bát og fara í
skemmtisiglingu upp ána Orb. Fríið
fer þó ekki eins vel og vonir stóðu
til vegna ósættis hjónanna og smæð
bátsins. Ferðalagið tekur óvænta
stefnu þegar siðblindir sjóræningjar
hertaka bátinn.
Á endanum verða þau öll að velja
hvort þau eigi að sigla með eða á móti
straumnum. Síðasta sýning verður
föstudaginn 25. mars. (miðar tix.is)
Grease
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Föstudaginn 18. mars sl.
frumsýndi Leikfélag Keflavíkur
ungmennasöngleikinn Grease en
hann er settur upp í samstarfi við
Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og Vox Arena, leikfélag
NFS. Listrænir stjórnendur
voru allir þátttakendur í Fyrsta
kossinum en því sýningarferli lauk
19. febrúar og því byrjuðu æfingar
á Grease ekki af fullum krafti fyrr
en um miðjan febrúar.
Má því segja að síðustu vikur
hafi verið afar krefjandi fyrir
alla sem að sýningunni koma
en stjórnarmeðlimir Leikfélags
Keflavíkur eru þó mjög ánægðir
með samstarfið við leikfélag NFS.
Síðasta sýning verður laugardaginn
26. mars. (miðar tix.is)
Ekki um ykkur
Leikfélag Menntaskóla
Ísa fjarðar
Verkið fjallar um vinahóp sem
hittist úti á landi í jarðarför eins
æskufélaga þeirra – þó lítið sem
ekkert samband hafi verið síðan
á unglingsárunum. Að jarðarför
lokinni ákveða þau þó að skella sér
saman í sumarbústað til að rifja upp
gamla tíma en í verkinu er hoppað
á milli tveggja tímaskeiða þar sem
áhorfendur kynnast hópnum bæði í
fortíð og nútíð. Hver kyssti hvern,
hver var skotinn í hverjum og svo
framvegis. Sýningartímabilið stóð
yfir í rétt rúma viku, lauk núna
19. mars, en var leikendum ausið
mikið lof af þeim heppnu er á
horfðu.
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
√ Spéverkið Ef væri ég gullfiskur í höndum Leikfélags Reykholts
verður sýnt í Aratungu. Frumsýnt verður föstudaginn 25. mars en miða
má finna bæði á tix.is og við innganginn. Sýnt verður 27. og 30. mars, 1.,
2. og 3. apríl næstkomandi. Sýnt er kl. 20 nema á sunnudögum, þá kl. 17.
√ Kardimommubær Freyvangsleikhússins var frumsýndur
þann 4. mars nk. við frábærar undirtektir og fullt hús. Miða má finna
á Tix.is eða í síma 857-5598, en sýnt verður áfram næstu vikur.
√ Leikdeild Umf. Skallagríms frumsýndi söngleikinn Slá í gegn
á dögunum og sló svo sannarlega í gegn. Tíunda og allra síðasta sýning
er þó því miður nú í kvöld, fimmtudaginn 24. mars, klukkan 20
... en kannski hafa einhverjir heppnina með sér hvað varðar miðakaup.
Einnig er einhver möguleiki á frekari sýningum ef aðsókn er mikil. Sími
696-1544 / eða leikdeildskalla@gmail.com.
Hvað er í gangi?!
| S t r ú k t ú r e h f | w w w . s t r u k t u r . i s | s t r u k t u r @ s t r u k t u r . i s |
| B æ j a r f l ö t 9 | 1 1 2 R e y k j a v í k | S í m i : 5 8 8 6 6 4 0 |
Límtré-Timbureiningar
Stálgrind
Yleiningar
PIR
Steinull
Á fjölum framhaldsskólanna
Leikfélag Menntaskóla Ísafjarðar setti nýverið á svið leikverkið Ekki um ykkur en þar rifjar hópur gamalla vina upp
unglingsárin, ástir, vonir og vitleysisgang. Mynd / Ágúst Atlason
Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Vox Arena, leikfélag NFS, settu á svið söngleikinn fræga, Grease, í
samstarfi við Leikfélag Keflavíkur. Mynd / vefsíða BLÍ
Í verki Menntaskólans við Hamrahlíð sjást þau Oddný Þórarinsdóttir sem Fleur,
önnur sjóræningjanna, og Lúkas Nói Ólafsson í hlutverki kaupsýslumannsins
Alistair. Í þessari senu vill Fleur fá Alistair til að synda svolítið með sér en
sá síðarnefndi er ekki alveg á þeim buxunum. Mynd / Kristjana Stefáns.