Bændablaðið - 24.03.2022, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. mars 202240
Endursölumarkaður á notuðum
fatnaði í bland við framleiðslu
hraðtísku hefur aukist gífurlega
á síðastliðnum árum og segja
spámenn vefsíðunnar thredup.
com að markaður endursölu muni
tvöfaldast á næstu fimm árum.
Hingað til lands eru í dag um
það bil 5000 tonn af notuðum
fatnaði flutt inn árlega, en einnig
hafa landsmenn verið duglegir við
að panta ódýran tískufatnað yfir
netið. Þótt margir vilji halda að
með slíkum kaupum sé bæði verið
að gera náttúrunni og pyngjunni
greiða, þá er slíkt ekki alltaf raunin
og fleiri mættu vera meðvitaðri um.
Í Atacama-eyðimörk Chile má
nú, því miður, sjá hauga fatnaðar
sem fluttur hefur verið inn til
landsins frá Asíu, Evrópu og
Bandaríkjunum en margir vilja
meina að mikil neysluhyggja ríki í
þessu ríkasta landi Suður Ameríku.
Ástæða innflutningsins er auðvitað
sú að áætlað hafði verið að selja
fatnaðinn, svokallaðan „second
hand“ – eða þegar notaðan – bæði
í Chile og í öðrum ríkjum Suður-
Ameríku, en eftirspurnin því
miður ekki haldist í hendur við
innflutninginn.
Telja yfirvöld Chile að árlega
endi þúsundir tonna af innfluttum
fatnaði á landsvæði eyðimerkurinnar
og má nærri geta að hafi skelfilegar
afleiðingar fyrir umhverfið og
nærsamfélagið í heild.
Koltvísýringseitruð
paradís ferðamannsins
Hafnarborgin Iquique er 1.800
km norður frá höfuðborg Chile,
við sjóinn á jaðri Atacama
eyðimerkurinnar. Þangað eru flutt
í kringum 60 þúsund tonn af fatnaði
ár hvert, en vel yfir helmingur
innflutningsins, tæp 40.000 tonn,
endar sem uppfylling landsvæða í
nærliggjandi bæjum.
Ein stærsta landfylling veraldar er
í hundrað þúsund íbúa nærliggjandi
bænum Alto Hospicio, en
borgarstjóri hans, Patricio Ferreira,
segir að honum reiknist til að
einungis séu um 15% seld af
innfluttum fatnaði á meðan 85%
endar sem ólöglegur úrgangur.
Líftími úrgangs á borð við
fatnað getur verið allt að 200 ár
– auk þess sem við niðurbrot
komast óæskileg efni, til dæmis
úr gerviefnum á borð við pólýester,
í jarðveginn.
Vegna þess hve lítið er um lausnir
til að taka á málunum hafa haugar
fatnaðar gjarnan verið brenndir,
og valdið þá mikilli sótmengun í
kjölfarið, samkvæmt yfirmönnum
umhverfismála á staðnum, en um
ræðir mikið eldhaf á hverju ári.
Nokkuð er um að fólk búi í
návígi við þennan kirkjugarð
hraðtískunnar, og andar þá að
sér hættulegum lofttegundum
er myndast bæði við brennslu
gerviefna auk þess að verða
fyrir skaða af völdum elds vegna
almennrar reykeitrunar.
Skaði af völdum reyks kemur
til með ertingu í öndunarvegi
vegna sóts og eitrunar af völdum
kolmonoxíð, eða lofttegunda eins
og blásýru, og nærri má geta að slíkt
er ekki gefandi til lengdar.
Erfitt að finna
afdráttarlausa lausn
Af ríkjum Suður-Ameríku flytur
Chile inn hvað mest af notuðum
fatnaði, en magn hans hefur aukist
gríðarlega síðastliðna áratugi vegna
þess hve hraðtíska svokölluð hefur
náð mikilli fótfestu víðs vegar um
heiminn.
Hagsmuna er þó að gæta á
báða bóga, bæði fataframleiðenda
og svo þeirra er búa við mengun
hraðtískukirkjugarðanna. Þess má
geta að fatnað má finna í miklum
mæli á urðunarstöðum úti um
allan heim, en erfitt er að finna
afdráttarlausa lausn sem hægt er að
laga að aðstæðum beggja hópa.Þeir
sem standa að innflutningi þurfa
að vera meðvitaðir er kemur að
umhverfisáhrifunum – þeir sem
flytja inn fötin ættu að gæta þess
að velja færri og vandaðri flíkur,
og þeir sem selja þau inn í landið
sömuleiðis.
Framleiðendur hraðtísku
þyrftu svo að hafa hug á því að
framleiðslan fari ekki gjörsamlega
fram úr eftirspurn eins og hefur því
miður afar oft verið raunin.
Í Chile voru nú nýverið sett lög
sem gera innflytjendur fatnaðar
ábyrga fyrir úrgangi af völdum
eigin innflutnings, en með þeim
er vonast til þess að lát verði á
mengun eins og nú á sér stað.
Eins og staðan er núna má þó
gera sér í hugarlund að ekki séu
nægileg úrræði í boði til þess
að hægt sé að hafa yfirsýn yfir
mengun úrgangs.
Ólöglegur flutningur fatnaðar
á leynilega sorphauga eru víðar
en mætti ætla og eykst frekar í
fatahrúgurnar heldur en hitt – á
meðan verið er að leita lausna. /SP
Atacama eyðimörk Chile:
Hraðtískukirkjugarður eyðimerkurinnar
Borgin Iquique í norðurhluta Chile á strandsléttu meðfram jaðri Atacama-eyðimerkurinnar.
Útsýni frá Alto Hospicio-borg. Mynd / Wikipedia
Önnur og dekkri hlið sömu eyðimerkur. Mynd / frá myndbandi
UTAN ÚR HEIMI
Framtíðarstörf og
sumarafleysing
Við leitum að 2 starfsmönnum í framtíðarstörf til að bæta við
í Lely teymið góða og 1 starfsmann í afleysingar í sumar
Framtíðarstörf
Sölumaður í verslun okkar í Reykjavík
• Bakgrunnur í landbúnaði/sveit - nauðsynlegur
• Grunnþekking á vélum og varahlutum - nauðsynleg
• Enskukunnátta - nauðsynleg
• Góð tölvukunnátta og internetnotkun - mikill kostur
• Vinnutími er frá 8-17 mánudaga til fimmtudaga og 8-16 á föstudögum
Lely þjónustumaður á Norðurlandi, 50-100% starf
• Við bætum við Lely þjónustumanni nr. 7 vegna mikillar sölu á Lely tækjum
• Við leitum hér að tæknimenntuðum starfsmanni: rafvirkja, bifvélavirkja, rafeindavirkja
(margskonar grunnar sem henta vel í þetta starf)
• Enskukunnátta - nauðsynleg
• Bakgrunnur í landbúnaði - nauðsynlegur
• Vinnutími 8-17 mánudaga til föstudaga, í 100% starfi
Sumarafleysingarstarf
Starfsmaður í sumarafleysingar í bókhaldi, tolla- og innflutningsmálum í Reykjavík
• Tímabil lágmark í júní og júlí (gæti byrjað um 15. maí og verið til 15. ágúst)
• Skrifstofustarf við mismunandi verkefni yfir sumarið, mikil fjölbreytni
• Góð þekking á Excel - nauðsynleg
• Þekking á bókhaldskerfum, Axapta eða Navision - mjög mikill kostur
Áhugasamir sendi ferilskrá á Stefán Braga Bjarnason, framkvæmdarstjóra - stefan@lci.is
En einnig er hægt að fá frekari upplýsingar um störfin með því að senda spurningar á sama netfang.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Vonast er til að lát verði á þeirri mengun sem fataiðnaðurinn stendur fyrir.
Skiptar skoðanir eru á því hvort kenna eigi þeim sem töglin hafa og hagldirnar
í fataiðnaði um þörfina fyrir hraðtísku eða því viðhorfi margra sem hvað
mest áberandi eru á samfélagsmiðlum um að klæðast helst engu tvisvar.
Áreiti slíkra miðla gagnvart neytendum eykst ár hvert, bæði duldar og ekki.