Bændablaðið - 12.05.2022, Page 12
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202212
FRÉTTIR
Innviðaráðherra:
Úthlutar 35 milljónum
til fjarvinnustöðva
Sigurður Ingi Jóhannsson innviða
ráðherra hefur úthlutað styrk
j um að fjárhæð 35 milljónum
króna til fjögurra verkefna vegna
fjarvinnslustöðva.
Frá árinu 2018 hefur samgöngu
og sveitarstjórnarráðherra veitt
átta verkefnastyrki vegna fjar
vinnslu stöðva, á grundvelli
stefnumótandi byggðaáætlunar
fyrir árin 20182024.
Markmiðið með framlögum er
annars vegar að koma opinberum
gögnum á stafrænt form og hins
vegar að fjölga atvinnutækifærum
á landsbyggðinni. Alls hefur verið
úthlutað 133,6 milljónum króna
fyrir árin 2018-2020 til sjö verkefna.
Háskóli Íslands, rannsóknasetur
á Ströndum hlaut styrk að upphæð
tæplega 11 milljónir vegna verkefnis
sem heitir Persónulegar heimildir:
Myndir og minningar og snýst um
að flokka ljósmyndir frá Ströndum,
gamlar dagbækur á landsvísu og
viðtöl úr Vesturheimi og nýrri viðtöl
tekin á Ströndum.
Þjóðskjalasafn Íslands fékk styrk
að upphæð um 16,5 milljónir króna
vegna skráningar sjómannatala.
Ráða á í tvö störf á Bakkafirði og
Raufarhöfn. Koma á opinberum
gögnum á stafrænt form og gera þau
aðgengileg fyrir almenning. Um er
að ræða innslátt sóknarmanntala
sem varðveitt eru í frumritum
í Þjóðskjalasafni í leitarbæran
gagn agrunn. Sóknarmanntölin
eru frumheimildir um líf og störf
Íslendinga frá 18.-20. öld.
Þjóðminjasafnið hlaut einnig
styrk að upphæð 4 milljónir króna
til að vinna að fjarvinnsluverkefni
við Menningarmiðstöð Þingey inga
á Húsavík.Verkefnið felur í sér að
tengja og nýskrá upplýs ingar um
ljósmyndir sem varð veittar eru
á Þjóðminjasafni í menningar-
sögulega gagnasafnið Sarp og
gera ljós myndirnar aðgengilegar
almenningi.
Um er að ræða fjórtán þúsund
ljósmyndir og tilheyrandi lýsigögn.
Þá fékk Sýslumaðurinn í Vest-
manna eyjum tæplega 3,6 millj-
ónir króna til að vinna að átaks-
verkefni við skönnun skjala safns
sýslumannsembættisins. Ráða á í
hálft stöðugildi í eitt ár eða heilt
stöðugildi í hálft ár. /MÞÞ
Brothættar byggðir:
Tvö ný sveitarfélög taka þátt
Tvö ný byggðalög eru um þessar
mundir að hefja þátttöku í byggða
þróunar verk efninu Brothættar
byggð ir í samstarfi við Byggða
stofnun, lands hluta sam tök og
heima aðila, en þetta eru Stöðvar
fjörður og Dalabyggð.
Verkefnið á Stöðvarfirði er komið
af stað og var haldið íbúaþing þar
fyrstu helgina í mars. Valborg Ösp
Warén hefur verið
ráðin verkefnisstjóri.
Vinna við verk efnið
í Dalabyggð er einnig
hafin en þar verð ur
íbúaþing haldið um
komandi helgi.
/MÞÞBúðardalur. Mynd / HKr.
Stöðvarfjörður. Mynd / HKr.
Skútustaðahreppur:
Uppbygging hringrásarhag-
kerfis Mývatnssveitar
Fyrir nokkru var undirrituð
samstarfsyfirlýsing á milli Skútu
staða hrepps og Plast Garðars ehf.
um samstarf við upp byggingu
hringrásarhagkerfis Mývatns
sveitar og tækifæri til að draga
úr umhverfisáhrifum af matvæla
framleiðslu svæðisins.
Í þróun er verkefni með það að
markmiði að minnka plastnotkun
í landbúnaði með „Hey!rúlla“,
margnota heyrúllupokum sem
framleiddir verða í Skútustaðahreppi.
Verkefnið er enn á þróunarstigi og
stefnir Skútustaðahreppur á að fá
prufupoka fyrir sumarið 2022.
„Uppbygging hringrásar-
hagkerfisins byggir í sinni einföldustu
mynd á að nýta auðlindir svæðisins
sem allra best og m.a. að flytja sem
allra minnst inn á svæðið. Sem
allra mest sé endurunnið og annað
í þeim dúr,“ segir Helgi Héðinsson
sveitarstjóri. /MHH
Sveinn Margeirsson (t.v.) frá NÍN (Nýsköpun í norðri) og Garðar Finnsson
frumkvöðull handsala hér samstarfsyfirlýsinguna. Mynd / Skútustaðahreppur
Rauðisandur í Patreks fjarðar prestakalli:
Fjórtán ára meðhjálpari
í Saurbæjarkirkju
Tryggvi Sveinn Eyjólfsson er
yngsti meðhjálpari landsins því
hann er aðeins 14 ára gamall.
Hann býr á Patreksfirði en þjónar
sem meðhjálpari í Saurbæjar kirkju
á Rauðasandi í Patreks fjarðar-
prestakalli hjá sr. Kristjáni Arasyni
sóknarpresti.
Faðir Tryggva Sveins og afi voru
líka meðhjálparar á Rauðasandi og er
Tryggvi Sveinn því þriðji ættliður og
sá yngsti er tekur við keflinu. Þá var
móðurafi hans prestur í Stafholti í
Borgarfirði, sr. Brynjólfur Gíslason.
/MHH
Meðhjálparinn ungi, Tryggvi Sveinn, ásamt sr. Kristjáni Arasyni sóknarpresti. Mynd / Margrét Brynjólfsdóttir
Heilbrigðisstofnunin á Blönduósi:
Góðar gjafir frá Hollvinum
Hollvinasamtök Heilbrigðis stofn
un arinnar á Blönduósi færðu
Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Blönduósi veglegar gjafir nýverið.
Um er að ræða þrjá hnakkastóla,
hægindastól, þrjú útvarpstæki,
mynda vél, hitabakstra og rafrænt
píluspjald til notkunar á sjúkra-
deildum. Andvirði gjafanna er ríflega
440 þúsund krónur.
„Það er von Hollvinasamtakanna
að búnaðurinn komi að góðum notum
fyrir skjólstæðinga stofnunarinnar,“
segir á vef HSN. /MÞÞ
Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir, formaður Hollvinasamtakanna, afhendir
Helgu Margréti Jóhannesdóttur, yfirhjúkrunarfræðingi HSN á Blönduósi,
gjafirnar. Með á myndinni eru einnig Sigríður Stefánsdóttir, Guðmundur
Finnbogason og Kári Kárason, sem sitja í stjórn Hollvinasamtakanna, ásamt
Sigurbjörgu Helgu Birgisdóttur, deildarstjóra sjúkradeildar.