Skessuhorn - 15.12.2021, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 20216
Óviðræðuhæfur
ökumaður
BORGARFJ.: Á þriðjudag í
síðustu viku gerðist það að tve-
ir bílar óku það nálægt hvor
öðrum þegar þeir mættust að
speglar þeirra rákust saman og
brotnuðu. Atvikið átti sér stað
síðdegis á þriðjudag í síðustu
viku. Óskað var eftir aðkomu
lögreglu en sá sem tilkynnti
um atvikið sagði hinn aðilann
óviðræðuhæfan. Þegar lögregla
kom á staðinn kom í ljós að sá
aðili var erlendur ferðamaður.
Enginn meiddist í óhappinu og
ekki urðu frekari eftirmálar af
því. -frg
Lögregla fundaði
með svæðisstjórn
AKRANES: Lögreglan á Vest-
urlandi fundaði í síðustu viku
með svæðisstjórn björgunar-
sveitanna á svæði 4 sem nær yfir
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu og
hefur aðsetur á Akranesi. Til
fundarins mættu formenn og
fulltrúar björgunarsveitanna og
lögreglustjórinn á Vesturlandi
með sínu fólki. Lögreglan fékk
kynningu á starfseminni og hin-
um ýmsu tækjum sem sveitirn-
ar hafa yfir að ráða. Þessir að-
ilar þurfa oft að starfa saman á
vettvangi og þarf lögregla oft
að stóla á sveitirnar. Var heim-
sóknin liður í að efla tengslin.
-frg
Féll úr stiga
VESTURLAND: Á miðviku-
dag voru lögregla og sjúkra-
lið kölluð að sumarbústað í
Eyrarskógi í Svínadal. Þar
hafði maður sem vann við ný-
byggingu fallið um þrjá metra
úr stiga. Maðurinn var nokkuð
lemstraður og var fluttur með
sjúkrabifreið á slysadeild. -frg
Grunaður um
ölvunarakstur
BORGARFJ.: Lögreglumenn
stöðvuðu för ökumanns á Vest-
urlandsvegi í Borgarfirði fyrir
of hraðan akstur. Við athugun
vaknaði grunur um akstur und-
ir áhrifum ávana- og fíkniefna.
Var ökumaðurinn handtekinn
og fór mál hans í hefðbundið
ferli. -frg
Tekinn á 143
kílómetra hraða
VESTURLAND: Ökumaður
var stöðvaður á 143 kílómetra
hraða á Vesturlandsvegi neð-
an við Ölver í hádeginu á mið-
vikudaginn í síðustu viku. Hann
náði sér í þrjá punkta og 150
þúsund króna sekt. -frg
Bílvelta
á Snæfellsnesi
SNÆFELLSN: Ökumaður á
leið vestur Snæfellsnesveg síð-
degis á föstudag í síðustu viku
lenti í að velta bíl sínum. Ök-
umaðurinn sem ekki hafði átt-
að sig á hálku á veginum. Hann
kenndi sér ekki eymsla eftir
veltuna. -frg
Næsta blað
á nýju ári
SKESSUHORN: Starfsfólk
Skessuhorns fer nú í nokkurra
daga jólafrí, en verður að störf-
um á skrifstofu milli jóla og
nýárs. Fyrsta tölublað á nýju ári
kemur út miðvikudaginn 5. jan-
úar. Þar verður m.a. lýst kjöri
Vestlendings ársins. -mm
Fjölskyldufaðir
datt
í lukkupottinn
VESTURLAND: Síðastliðinn
föstudag var dregið í Happ-
drætti Háskóla Íslands. Happ-
drættið hafði boðað að dreginn
yrði út stærsti vinningur í sögu
happdrættisins, 110 milljón-
ir króna. Það varð til að margir
freistuðu gæfunnar og keyptu
miða skömmu fyrir stóra út-
dráttinn. En sá heppni reyndist
einstaklingur sem spilað hef-
ur í happdrætti HHÍ í áratugi.
Hann er í tilkynningu frá HHÍ
sagður fjölskyldufaðir af Vest-
urlandi, en ekki fylgja nánari
upplýsingar um þann heppna,
honum til láns. -mm
Kosið 12. febrúar
SNÆFELLSNES: Samstarfs-
nefnd um sameiningu Eyja-
og Miklaholtshrepps og Snæ-
fellsbæjar hefur unnið greinar-
gerð um sameiningu sveitar-
félaganna. Með vísan til þeirrar
greiningar er það álit nefndar-
innar að fram skuli fara at-
kvæðagreiðsla meðal íbúa
sveitarfélaganna um samein-
ingu sveitarfélaganna í eitt. At-
kvæðagreiðsla um tillögu um
sameiningu sveitarfélaganna fer
fram laugardaginn 12. febrúar í
báðum sveitarfélögunum. -mm
Í síðustu viku afhentu fulltrúar úr
Kiwanisklúbbnum Þyrli á Akra-
nesi Mæðrastyrksnefnd Akraness
peningagjöf. Klúbburinn hefur í
áravís verið árlegur stuðningsað-
ili Mæðrastyrksnefndar. Jafnvel
þótt að félagsstarf Þyrils hafi ver-
ið með minnsta móti frá því kóvid
faraldurinn hófst, og því litlu ver-
ið safnað í gjafasjóð, náðu klúbbfé-
lagar að öngla saman 250 þúsund
krónum sem þeir færðu Mæðra-
styrksnefnd. Að sögn fulltrúa
Mæðrastyrksnefndar verður þess-
um fjármunum, ásamt öðru styrkj-
um og gjöfum, ráðstafað í jólaút-
hlutun Mæðrastyrksnefndar sem
fer fram á morgun, fimmtudaginn
16. desember.
Í mörg horn að líta
Skessuhorn ræddi stuttlega við
þær Maríu Ólafsdóttur og Sig-
ríði Helgu Einarsdóttur sem eru
í forsvari fyrir Mæðrastyrksnefnd
Akraness. Þær segja að umsókn-
ir skjólstæðinga þeirra séu 103
að þessu sinni, svipaður fjöldi og
í fyrra þegar 106 fengu úthlut-
að í jólaúthlutun nefndarinn-
ar. Þær segja fyrri hluta desember
mesta annatímann hjá nefndinni.
Þá þurfi m.a. að kalla inn umsókn-
ir og fara yfir hvort að viðkom-
andi eigi rétt á styrk. Umsækjend-
ur þurfa að framvísa búsetuvottorði
og afriti úr staðgreiðsluskrá. Þegar
svo liggur fyrir hversu margir eru
styrkhæfir hefst vinna við pantan-
ir á mat, kaup á inneignarkortum
í matvöruverslanir og fleira. Þær
María og Sigríður Helga segja að
margir, einstaklingar sem fyrirtæki,
hafi stutt nefndina að þessu sinni.
Langstærsti styrkurinn komi hins
vegar frá Kaupfélagi Skagfirðinga
sem sendi þeim fjölbreytt úrval
af mat. „Söfnunin hefur gengið
mjög vel núna. Eiginlega er maður
klökkur og hrærður yfir þeim sam-
hug sem KS er að sýna. Þeir gefa út
lista af mat sem við merkjum ein-
faldlega við á og þeir senda okk-
ur matvælin þann dag sem hent-
ar. Þetta gerði KS einnig í fyrra og
við tókum eftir því að margir skjól-
stæðingar okkar urðu hissa á rausn-
arskapnum. Bæði peningagjafir sem
Mæðrastyrksnefnd berast, aðrar
matargjafir og ýmis liðveisla gerir
okkur svo kleift að aðstoða þá sem
þurfa,“ segja María Ólafsdóttir og
Sigríður Helga Einarsdóttir. Með-
al stórra styrkja sem nefndin hefur
úr að spila má nefna eina milljón frá
Norðuráli, styrk frá ríkisstjórninni
og fjölmarga fleiri, meðal annars
kiwanisklúbbnum.
Fyrir þá sem vilja styrkja Mæðra-
styrksnefnd með fjárframlögum
er bankareikningur nefndarinnar:
0552-14-402048 og ke
mm
Þessa dagana er undirbúning-
ur í fullum gangi fyrir athafnir og
tónleika á aðventunni í Grundar-
firði. Staðan virðist því miður vera
sú sama og fyrir ári síðan þegar
athafnir og viðburðir voru sendar
út á samfélagsmiðlum svo fólk gæti
notið þeirra heima. Eftir covid-
bylgjuna sem herjaði á Grund-
firðinga síðustu vikur var tekin
ákvörðun um að taka aftur upp með
þessum hætti. Þegar fréttaritari leit
við í Grundarfjarðarkirkju í vik-
unni sem leið mættu honum fall-
egir hljómar þegar upptökur voru
í gangi fyrir eina aðventumessuna.
Þó svo að ástandið sé orðið töluvert
betra er þó aldrei of varlega farið.
tfk
Upptökur í kirkjunni
Mæðrastyrksnefnd berast gjafir
í aðdraganda jólaúthlutunar
Frá afhendingu peningagjafar
Kiwanisklúbbsins Þyrils. F.v. Ingimar
Hólm, Halldór Fr. Jónsson, María
Ólafsdóttir og Sigríður Helga Einars-
dóttir.