Skessuhorn - 15.12.2021, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202112
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Akraneskaupstaður yfir jól og áramót
Athugið að opnunartími er hefðbundinn fyrir utan eftirfarandi daga:
Akranesviti
24.-26. desember
Lokað
31. desember til 1. janúar
Lokað
Bæjarskrifstofa
24.-26. desember
Lokað
31. desember
Lokað
Bókasafn Akraness
24.-25. desember
Lokað
31. desember - 1. janúar
Lokað
Íþróttamiðstöðin
og Jaðarsbakkalaug
23. desember
06:00-18:00
24. desember
08:00-11:00
25.-26. desember
Lokað
31. desember
08:00-11:00
1. janúar
Lokað
Bjarnalaug
Lokað frá 19. desember til
og með 3. janúar 2022.
Íþróttahús Vesturgötu
23. desember
07:00-15:00
24.-26. desember
Lokað
31. desember-2. janúar
Lokað
Guðlaug
24.-26. desember
Lokað
31. desember
Lokað
1. janúar
Lokað
Fóru undarlega
leið á Skessuhorn
VESTURLAND: Neyðar-
línu barst tilkynning síðdegis
á laugardag um að fólk á leið á
Skessuhorn valdi til þess undar-
lega leið. Það voru bændur sem
áhyggjufullir létu vita af ferð-
um fólksins enda vont veður
framundan. Ekki spurðist þó
af neinum vandræðum göngu-
fólksins en gott að vita að bænd-
ur fylgist vel með og beri hag
göngufólks fyrir brjósti. -frg
Viðurkenndi að
hafa reykt kannabis
VESTURLAND: Lögreglu-
menn í umferðareftirliti stöðv-
uðu ökumann aðfararnótt
laugardags. Viðurkenndi ök-
umaður að hafa reykt kanna-
bis kvöldið áður. Hann svaraði
neikvætt á fíkniefnaprófi. Hins
vegar kom í ljós að hann var
ekki með gild ökuréttindi og fær
því sekt í samræmi við það. -frg
Fíkniefnaakstur
AKRANES: Lögreglumenn í
umferðareftirliti stöðvuðu öku-
mann á Akrafjallsvegi á sunnu-
daginn. Reyndist ökumaður
hafa ekið undir áhrifum ávana-
og fíkniefna. Hann var handtek-
inn og fór mál hans hefðbundna
leið. -frg
Ók yfir skólalóð
AKRANES: Síðdegis á sunnu-
dag barst lögreglu tilkynning
um glæfralegt aksturslag öku-
manns á lóð Brekkubæjarskóla.
Börn sem voru að leik á lóðinni
voru talin í mikilli hættu vegna
akstursins. Lögregla hafði upp á
ökumanni sem sagðist gera sér
grein fyrir því að ekki ætti að
aka bílum á skólalóðum. Sak-
ir ungs aldurs ökumanns var
haft samband við foreldra öku-
mannsins. -frg
Tilkynnt um
ölvunarakstur frá
Baldri
STYKKISHÓLMUR: Á
sunnudagskvöld barst lögreglu
tilkynning um ölvaðan öku-
mann sem ekið hefði frá Breiða-
fjarðarferjunni Baldri. Lög-
reglumenn stöðvuðu ökumann-
inn. Ökumaðurinn viðurkenndi
að hafa drukkið einn bjór en
blés þó undir viðmiðunarmörk-
um um áfengismagn. Honum
var gerð grein fyrir því að ekki
mætti aka eftir neyslu áfengis.
Hann lofaði að aka ekki meira
það kvöldið. -frg
Keyrði á strætó
sem hafnaði
utan vegar
VESTURLAND: Á mánudag
var hvítum smábíl ekið utan í
strætó á Snæfellsnesvegi með
þeim afleiðingum að strætóinn
hafnaði utan vegar. Enginn slas-
aðist í óhappinu. Smábíllinn var
ekið í vestur frá Borgarnesi og
var ekki fundinn þegar blaðið
fór í prentun. -frg
Síðastliðinn miðvikudag undir-
rituðu 13 fyrirtæki og stofnan-
ir viljayfirlýsingu um stofnun Líf-
tæknismiðju á Breið nýsköpunar-
setri á Akranesi. Þeir sem standa
að stofnuninni eru í stafrófsröð:
Akraborg ehf.,, Algó ehf., Breið
þróunarfélag ses., Brim hf., Efna-
greining ehf., Háskóli Íslands,
Landbúnaðarháskóli Íslands, Lok-
inhamrar ehf., Norðanfiskur ehf.,
Norður ehf., Orkídea ses., Sedna
biopack ehf. og Vignir G. Jónsson
hf. Lýsa þessir aðilar yfir vilja sín-
um til að eiga samstarf um og að
styðja við að í Breið nýsköpunar-
setri verði stofnuð líftæknismiðja.
Markmið með uppbyggingu líf-
tæknismiðju er að skapa samvinnu-
rými þar sem frumkvöðlar, stofn-
anir og fyrirtæki, sem stunda rann-
sóknir úr lífmassa, geti haft að-
stöðu til rannsókna og þróunar á
uppskölunaraðferðum.
„Mikilvægt er að geta tekið
grunnrannsóknir yfir á hagnýt-
ingarstig. Svo slíkt sé hægt þarf
oft að prófa aðferðir með dýrum
og plássfrekum tækjum sem þurfa
sérhæfða aðstöðu. Þetta er mörg-
um, sem stunda grunnrannsókn-
ir, ofviða þar sem þeir hafa hvorki
aðstöðu né fjármagn til að halda
rannsóknum áfram. Með tilkomu
líftæknismiðju geta allir, sem þess
óska, fengið aðgang að samvinnu-
rýminu til lengri eða styttri tíma
til þess að þróa hugmyndir sína
áfram við góðar aðstæður og með
nauðsynlegum tækjabúnaði,“ segir
í tilkynningu.
Markmiðið er að stofnuð verði
kvik og aðlaðandi aðstaða fyr-
ir frumkvöðla á sviði líftækni.
„Byggð verður upp líftæknismiðja,
aðstaða sem býður upp á lifandi
starfsemi í rými sem er sérútbúið
fyrir það rannsóknar- og þróunar-
starf sem færi fram á sviði lífmassa.
Aðgengi að grunntækjum verður
til staðar og aðstaða fyrir sérhæfð
tæki verður til staðar á ákveðnum
tímum. „Stutt verður við rann-
sóknir á lífmassa og tengdum ver-
kefnum með sköpun nýrrar þekk-
ingar og hagnýtingar hennar sem
er lykill að lífsgæðum og auðugu
mannlífi til framtíðar. Áhersla á
rannsóknir á hafinu og nýsköp-
un hefur aldrei verið mikilvægari.
Miklar umhverfisbreytingar eiga
sér stað í heiminum í dag og er
áríðandi að efla grunnrannsóknir
til að ná þeim yfir á hagnýtingar-
stig. Líftæknissmiðjan á Breið
mun auka möguleika frumkvöðla í
þeirri vegferð,“ segir í tilkynningu
frá stofnaðilum.
mm
Viljayfirlýsing um stofnun Líftæknismiðju á Breið
Fulltrúar þeirra 13 samstarfsaðila sem standa að stofnun Líftæknismiðju á Breið. Ljósm. aðsend.
Um miðja síðustu viku hófst
vinna við reisingu á fyrstu sperr-
um nýrrar björgunarmiðstöðv-
ar Brákar við Fitja í Borgarnesi.
Nú er draumur björgunarsveitar-
fólks að náist að loka hluta af hús-
inu fyrir jól þannig að sala flug-
elda milli jóla og nýárs geti farið
þar fram. „En við erum samt búin
að tryggja okkur húsnæði annars-
staðar ef það tekst ekki,“ segir
Einar G Pálsson stjórnarmaður í
Brák í samtali við Skessuhorn.
Nýja húsið verður um 760 fer-
metrar að stærð, en þar verður
m.a. fundasalur, búningaaðstaða,
búnaðargeymsla og tækjasalur.
Auk þess verður þar skrifstofa
sem hægt verður að nota sem að-
stöðu fyrir aðgerðastjórn í stærri
björgunaraðgerðum. Húsið er
reist með límtréssperrum og klætt
yleiningum frá Límtré Vírneti.
Áætlanir björgunarsveitarmanna
eru að byggingu hússins og frá-
gangi ljúki síðar í vetur. Einar
segir að búið sé að tryggja láns-
fjármögnun vegna byggingarinn-
ar en stærsti óvissuþáttur í verk-
efninu er vissulega sala á gömlu
björgunarmiðstöðinni í Brákarey.
Hún er nú auglýst til sölu fyrir 66
milljónir.
Minnt er á söfnunarreikn-
ing Brákar fyrir húsbygginguna.
Hann er: 0326-22-2220, kt.
570177-0369.
mm/ Ljósm. Jakob Guðmundsson
Sperrur nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar að rísa