Skessuhorn - 15.12.2021, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202114
Velkomin í sund!
Opnunartími Íþróttamannvirkja Borgarbyggðar um jól og áramót 2021
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
23. des. Þorláksmessa opið 06:00-18:00
24. des. Aðfangadagur jóla opið 08:00-12:00
25. des. Jóladagur LOKAÐ
26. des. Annar í jólum LOKAÐ
31. des. Gamlársdagur opið 08:00-12:00
1. jan. 2022 LOKAÐ
Íþróttamiðstöðin á Kleppjárnsreykjum
23. des. Þorláksmessa LOKAÐ
24. des. Aðfangadagur LOKAÐ
25. des. Jóladagur LOKAÐ
26. des. Annar í jólum LOKAÐ
31. des. Gamlársdagur LOKAÐ
1. jan. 2022 LOKAÐ
Íþróttamiðstöðin á Varmalandi
LOKAÐ
N1 Þjónustustöð í Borgarnesi opn-
aði í síðustu viku tvo nýja staði inni
í versluninni, Ísey skyrbar og Djú-
sí. N1 bauð viðskiptavinum sín-
um í heimsókn á miðvikudaginn til
að leyfa þeim að gæða sér á hinum
ýmsu réttum sem þessir staðir bjóða
upp á. Hjá Ísey skyrbar er hægt að
fá allskonar heilsusafa og skyrrétti
og Djúsí er með mikið úrval af safa
og samlokum. Þetta er annar stað-
urinn sem N1 opnar á landsbyggð-
inni með þessu sniði en fyrir þrem-
ur vikum var opnað í Hveragerði og
líklegt að fleiri staðir fylgi í kjölfarið.
N1 í Borgarnesi opnaði Ísey skyrbar og Djúsí frá Blackbox
Að sögn Magnúsar Fjeldsted,
rekstrarstjóra N1 í Borgarnesi, var
ætlunin að opna þessa staði í vor en
mikil seinkun hafi orðið vegna ým-
issa þátta. Kórónufaraldurinn hef-
ur mikil áhrif á allt hvað varðar út-
lönd, allt gengur miklu hægar fyrir
sig og erfitt að eiga við það. Allur
tölvubúnaðurinn í kæli- og frysti-
einingarnar kom ekki á tilætluð-
um tíma og þá voru mikil vandræði
með gáma og þess háttar.
Magnús segir einnig að þessar
nýju tvær einingar séu frábær við-
bót við það sem fyrir er, eins og
rétt dagsins í hádeginu, pizzur og
annan skyndibita. Þá segir hann að
starfsfólki fjölgi talsvert með opn-
un þessara staða, alls væri búið að
þjálfa átta starfsmenn í þessi nýju
störf og gert ráð fyrir að næsta
sumar verði 16-18 starfsmenn að
vinna á þessum tveimur stöðum.
Það þýðir að alls verða starfsmenn
stöðvarinnar orðnir um 60 næsta
sumar og það stefni í að N1 í Borg-
arnesi verði einn stærsti vinnustað-
urinn á svæðinu. vaks