Skessuhorn - 15.12.2021, Qupperneq 26
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202126
Máltækið „þá mega jólin koma fyrir mér“
er oft viðhaft þegar dregur nær jólum.
Hvað er það sem fólki finnst að verði
að vera hluti af jólaundirbúningnum og
jólunum sjálfum? Hvaða hefðir og venj-
ur finnst fólki ómissandi en það getur ver-
ið bæði persónubundið og eitthvað sem
fjölskyldurnar gera saman? Við heyrðum
í nokkrum Vestlendingum og spurðum;
hvað er nauðsynlegt að gera í aðdraganda
jóla?
Anna Sólrún
Kolbeinsdóttir, Borgarnesi
Rifur á jólapökkunum
„Jólin mega koma þegar heimilisfólk er ný-
baðað og komið í sitt fínasta púss. Krakkarn-
ir um það bil að missa vitið af spenningi, búin
að krumpa alla pakka og jafnvel gera örlitl-
ar rifur hér og þar – rétt aðeins til að kíkja.
Ilmurinn úr eldhúsinu er svo að æra bragð-
laukana úr tilhlökkun og vel valin jólalög eru
spiluð með sósusmökkuninni. Þá mega jólin
koma fyrir mér.“
Íris Gunnarsdóttir, Borgarnesi
Upplifir jólin í gegnum
dæturnar
„Jólin mega koma þegar húsið er skreytt og
árlegi sörubaksturinn er búinn hjá tengda-
mömmu. Annars elska ég desember, að upp-
lifa jólin í gegnum stelpurnar mínar þrjár er
það allra besta.“
Jón Arnar Sigurþórsson,
Borgarnesi
Desember
skemmtilegasti
mánuðurinn
„Hef alltaf verið mikið jólabarn og finnst
desember skemmtilegasti mánuðurinn.
Jólabaksturinn, jólaljósin, jólatónlist og
skemmtilegar hefðir með fjölskyldu og vinum
halda mér í jólaskapi allan desember. En jóla
hátíðin byrjar af alvöru fyrir mér þegar við
fjölskyldan göngum til kirkju á aðfangadag.“
Kristján J. Pétursson,
Borgarnesi
Jólakveðjur á Rás 1
„Þegar búið er að sjóða skötuna og síðan
hangikjötið, setja allt hreint og nýtt á rúmin
og þegar jólakveðjurnar á Rás 1 eru lesnar á
Þorláksmessu og búið er að kveikja á kertum
á leiðum hjá látnum ástvinum á aðfangadegi
jóla, þá mega jólin koma fyrir mér.“
Hugrún
Björt Hermannsdóttir,
Hvanneyri
Þegar grauturinn
er reddý
„Þegar ég var yngri þá gerði mamma alltaf
jólagraut með karamellu sósu, þegar hann
var tilbúinn þá vissi ég að jólin væru kom-
in. Ennþá daginn í dag held ég upp á það og
geri minn eigin graut eftir hennar uppskrift.
Þegar grauturinn er reddý þá mega jólin
koma.“
Eyþór Óli Frímannsson,
Akranesi
Þegar ég finn lykt af
rjúpunni í ofninum
„Sem elsta barn og jafnframt skilnaðarbarn
hafa jólin einkennst af jólaspretthlaupi á
yngri árum á milli jólaboða. Hins vegar eft-
ir að við stofnuðum sjálf fjölskyldu þá höf-
um við reynt að vera með lítil kósý jól heima
við án spretthlaups. Jólaskreytingar, pipar-
kökuhús, hreyfidagatal og jólabíómyndir er
góður undirbúningur svo halda megi jólin
með góðri samvisku. Þegar ég finn svo lykt af
rjúpunni í ofninum hellist yfir mig jólaandinn
af fullum þunga. Eftir að hafa eytt jólum í
Svíþjóð hjá litlu systur, þá höfum við reynt að
hafa jólamatinn um þrjú leytið á aðfangadag
eins og Svíarnir gera. Það hentar mun bet-
ur fyrir smáfólkið. Umfram allt að muna að
þessi hátíð er fyrir unga fólkið og að hitta sitt
uppáhaldsfólk. Þá getur þetta ekki klikkað.“
Sunna Rós Þorsteinsdóttir,
Akranesi
Best að vera með
fjölskyldunni yfir
góðum mat
„Ég er svo mikill mínimalisti svo ég skreyti
alls ekki mikið en jólin hefjast hjá mér í
seinna lagi því ég er alltaf á síðasta snúningi
með allt eins og venjan er í góðri jólamynd.
Það sem ég elska við jólin er hinn árlegi Ris a
la mande grautur sem mamma gerir og hver
fær möndluna hverju sinni. Best er þó að vera
með fjölskyldunni yfir góðum mat og kannski
góð jólamynd að kvöldi til! Flóknara þarf
þetta ekki að vera og gleðileg jól.“
Gerður Yrja Ólafsdóttir,
Hvalfjarðarsveit
Upplifi ánægjuna á ný
gegnum börnin
„Jólin koma víst alltaf á réttum tíma, hvort
sem við erum tilbúin eða ekki. Mín stemning
í desember er oftast að eiga sem mest eftir að
gera og helst á síðustu stundu. Týna svo ein-
hverju og þurfa að kaupa það aftur. Gleyma
að senda eitthvað út á land og redda því svo
á milli jóla- og nýárs. Jólaljósin fá þó að fara
upp sem fyrst heima hjá okkur og mikið af
þeim, þau lísa svo mikið upp skammdegið og
fyrir mér mættu þau loga út janúar og febr-
úar. Ein jólalegasta minningin mín frá Akra-
nesi þegar ég var lítil var að taka rúnt með
fjölskyldunni og skoða jólaljósin í bænum og
nú geri ég það með mínum börnum. Mestu
skiptir er að njóta þessa tíma, ég elska allan
jólaundirbúning og lærði það alveg upp á
nýtt við að verða móðir sjálf hvað þetta er
skemmtilegur tími með börnunum, baka
saman, sækja tré út í skóg, fá í skóinn, opna
dagatölin alla morgna, vaka lengur, allt þetta
verður gaman á ný í gegnum blessuð börnin.“
Jóna Björk Ragnarsdóttir,
Grundarfirði
Jólahús á bakkanum
„Fyrir nokkrum árum þegar barnabörn-
in fóru að koma ákváðum við hjónin að búa
til góðar minningar um jólahús á bakkan-
um. Við eigum lítinn kofa á lóðinni sem við
skreytum eftir árstíðum. Í nóvember byrj-
um við að skreyta í anda jólanna með skrauti
úr ýmsum áttum. Frá tengdamóður minni,
mæðrum tengdadætra og hlutum sem okk-
ur hefur áskotnast í gegnum tíðina. Svo erum
við afskaplega heppin að hafa góð sambönd
við jólasveinana úr Helgrindum. Þeir koma
við hjá okkur á leið til byggða á aðventunni
með litla pakka. Við kveikjum varðeld fyrir
stóru krakkana sem grilla sykurpúða og heitt
kakó fyrir þá sem það vilja. Þetta hefur stækk-
að ár frá ári og þykir okkur vænt um að heyra
að þetta sé hluti af jólahefð fólks úr bænum.
Eftir þetta þá mega jólin koma fyrir mér.“
Nadine Elisabeth Walter,
Stykkishólmi
Elskar malt og appelsín
„Eftir meira en 20 ár á Íslandi get ég ekki
hugsað mér að geta ekki blandað íslenskum
og þýskum hefðum saman. Í minni fjölskyldu
byrjum við jólin með skötu á Þorláksmes-
su, reyndar borðum við hana ekki heima, við
förum frekar eitthvað annað til að sleppa við
lyktina. Ég hef haldið í mína þýsku hefð að
byrja aðfangadag með því að taka inn jóla-
tréð, það verður að vera lifandi þar sem við
vorum alltaf með svoleiðis þegar ég var barn
og við skreytum ALLTAF tréð á aðfanga-
dagsmorgun. Svo er síðasti jólaundirbún-
ingurinn að byrja að elda og keyra út jólakort
eftir íslenskri hefð. Klukkan 18 eru svo jólin
komin. Það sem ég sakna mest frá Þýskalandi
er hátíðleg messa fyrir klukkan 18 þannig að
við reynum að hafa notalega samverustund
áður en klukkan slær sex. Jólamaturinn hef-
ur verið mismunandi, hamborgarhryggur eða
kalkúnn. Á jóladag get ég ekki hugsað mér
að vera án hangikjöts, kartaflna, uppstúfs og
malt og appelsíns. Það eina sem ég sleppi,
hvort sem þið trúið því eða ekki, þá eru það
ORA græna baunir, þetta eru jólin fyrir mér.“
„Þá mega jólin koma fyrir mér“