Skessuhorn - 15.12.2021, Blaðsíða 42
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202142
Fréttaannáll ársins 2021 í máli og myndum
Slökkviliðsmenn voru útskrifaðir
Slökkviliðsmenn voru útskrifaðir úr fullnaðarnámi hjá
Slökkviliði Borgarbyggðar í júní. Er þetta í fyrsta skipti í
sögu slökkviliðsins sem slökkviliðsmenn eru útskrifaðir eft-
ir að hafa setið námskeiðin hjá liðinu sjálfu en fyrir um ári
fékkst sú viðurkenning hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun
að Slökkvilið Borgarbyggðar annaðist sjálft fræðslu auk bók-
og verklegrar kennslu á námskeiðum fyrir sína liðsmenn. Alls
voru þetta 23 nemendur sem útskrifuðust með það nám á
bakinu. Í haust var auglýst eftir áhugasömum umsækjendum í
störf hjá slökkviliðinu. Á fjórða tug mætti á kynningarfund og
á þriðja tug stóðst inntökupróf og er nú í þjálfun. Ánægjulegt
að hluti hópsins eru konur.
Valgerður
Bæjarlistamaður Akraness
Á þjóðhátíðardaginn var tilkynnt að Valgerður Jónsdóttir
tónlistarkona hefði hlotið titilinn Bæjarlistamaður Akraness
2021.
Góð grásleppuvertíð
Grásleppuvertíðin var mjög góð í ár og mokveiddist á Breiða-
firði alla vertíðina. Hugrún DA-1 sem gerð var út frá Skarðs-
stöð á Skarðsströnd í Dölum var aflahæsti grásleppubáturinn
þetta árið. Það eru feðgarnir Gísli Baldursson og Baldur Þórir
Gíslason, ásamt Quentin Monner, sem skipa áhöfn Hugrún-
ar. Vertíðinni lauk miðvikudaginn 24. júní og var heildarafli
Hugrúnar DA-1 um 115 tonn eftir vertíðina.
Fyrsta skipið til að leggjast
að nýju bryggjunni
Fimmtudaginn 1. júlí lagðist skemmtiferðaskipið Le Dumont
D Urville að nýju bryggjunni í Grundarfirði og var það fyrsta
skipið sem lagðist þar að. Nýja bryggjan hefur verið mik-
ið notuð síðan, en fjöldi stórra togara sem eiga heimahafn-
ir annarsstaðar á landinu hafa landað afla í Grundarfirði nú á
haustmánuðum.
Þakkaði þríeykinu
Handverksmaðurinn og hönnuðurinn Svavar Garðarsson í
Búðardal kom fyrir fallegri blómaskreytingu á áberandi stað í
heimabæ sínum í sumar. Þar var þeim Þórólfi, Ölmu, Víði og
öllum hinum, þakkað framlag sitt fyrir að standa í stafni í bar-
áttunni við Covid-19.
Sóley valin íbúi ársins
á Reykhólum
Á Reykhóladögum í
sumar var Sóley Vil-
hjálmsdóttir í Króks-
fjarðarnesi valin íbúi
ársins í Reykhólahreppi.
„Sóley hefur alla tíð ver-
ið dugleg og drífandi í
ýmis konar félagsstarfi.
Hún vann um árabil í
útibúi Landsbankans í Króksfjarðarnesi, síðast sem útibús-
stjóri, allt þar til útibúið var lagt niður. Þjónusta hennar við
viðskiptavini útibúsins var einstaklega góð og ævinlega hugs-
að í lausnum þegar úrlausnarefni bar að höndum,“ var sagt í
umsögn um Sóleyju.
Legsteinahúsinu bjargað
á ögurstundu
Á árinu var reynt að ná sáttum í deilu um Legsteinahús á
Húsafelli en það mál á sér langa sögu sem Skessuhorn hef-
ur ítarlega fjallað um síðustu ár. Í ágúst virtist útilokað að sátt
myndi nást í deilunni og ákveðið var að rífa húsið fimmtu-
daginn 12. ágúst. Þegar sá dagur rann upp var búið að gera
allt klár til að hefja niðurrif þegar málsaðilar voru boðaðir til
fundar þar sem átti að gera lokatilraun til að ná sáttum. Lauk
fundinum loks með samningsdrögum og var niðurrifi frestað
í hálftíma í senn frá klukkan 14 þar til málinu lauk farsæl-
lega með undirritun samnings um klukkan 16. Legsteinahús-
ið stendur því enn og mun standa um ókomin ár.
Stefán Gísli varð Íslandsmeistari
Stefán Gísli Örlygsson, úr Skotfélagið Akraness, varð Íslands-
meistari í karlaflokki á Íslandsmeistaramótinu í leirdúfuskot-
fimi, sem fram fór á velli skotíþróttafélags Suðurlands við
Þorlákshöfn í ágúst.
Grafa sökk í mýri
Grafa sökk í mýri á Mýrunum í lok ágústmánaðar. Unnið var
við að plægja niður ljósleiðara í Kolviðarsundi, sem er mýr-
lendi í landi Miðhúsa í Álftaneshreppi. 24 tonna grafa fylgdi
í kjölfar jarðýtu sem plægt hafði niður strenginn og var hlut-
verk gröfumannsins að lagfæra plógfarið. Ekki vildi betur til
en svo að grafan sökk hratt svo aðeins bóman stóð upp úr
jörðinni. Fengin var aðstoð; mannskapur og öflugar gröfur
frá Borgarverki í Borgarnesi og Þrótti á Akranesi til að freista
þess að ná gröfunni upp. Tókst að lokum að hálfpartinn velta
henni upp á þurrt og koma upp á dráttarvagn, talsvert laskaðri.
Ívar dómari ársins
Ívar Orri Kristjánsson var valinn dómari ársins af leikmönn-
um Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Ívar Orri er fædd-
ur í Dölunum og bjó þar til níu ára aldurs en flutti þá í Borg-
arnes og var þar í tæp ellefu ár. Síðan flutti hann á Skagann
um tvítugt og býr þar enn.
Skessuhorn festi kaup á dróna
Skessuhorn festi kaup á dróna í septembermánuði en tækið
er ætlað til nota við fréttamyndatökur af húsum, höfnum og
ýmsu öðru. Er þetta kærkomin viðbót við tækjakost Skessu-
horns og í viku hverri hafa blaðamenn síðan getað nýtt mynd-
ir sem teknar hafa verið úr meiri hæð en áður var kostur.
KG Fiskverkun keypti Valafell
KG Fiskverkun ehf. í Rifi keypti á haustmánuðum allt hluta-
fé í fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækinu Valafelli ehf. í Ólafs-
vík. Valafell ehf. er rótgróið útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki
í Snæfellsbæ sem rekur sögu sína allt til ársins 1961. KG Fisk-
verkun ehf. er öflugt útgerðarfélag, sem gerir út skipið Tjald
SH 270 með heimahöfn í Rifi. Þá rekur félagið einnig fisk-
vinnslu í Snæfellsbæ.