Skessuhorn - 15.12.2021, Page 46
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202146
Kveðjur úr héraði
Árið 2021 er árið sem maður hélt
að covid væri búið og við gætum
ferðast saman, farið í okkar árlegu
utanlandsferð en það var ekki raun-
in, heldur vorum við bara heima og
nutum þess. Sumarið var ekki nógu
gott fyrir bændur. Fyrri heyskap-
ur gekk vel en seinni heyskapur var
ekki búinn fyrr en í október sem er
rúmum mánuði seinna en í venju-
legu árferði. Við fórum í útilegu,
samt bara eina og vonandi verða
þær fleiri næsta sumar.
Í ár eru komin 21 ár síðan ég
byrjaði að búa og halda jólin með
minni fjölskyldu. Við höfum skap-
að okkar eigin hefðir. Sem dæmi
skreytum við jólatréð mun fyrr en
gert var þegar ég var barn, þá var
alltaf allt skreytt á Þorláksmessu
og átti hvert skraut sinn stað. Á að-
ventunni var allt þrifið hátt og lágt
og átti hver og einn í fjölskyldunni
sína skúffu og sinn skáp til að þrífa.
Í dag er það ekki eitthvað sem við
fjölskyldan eyðum tíma í aðallega
vegna þess að ég skil ekki hvers
vegna fólk nýtir svartasta skamm-
degið til að þrífa. Það gerðist ein
jólin að ég og maðurinn minn vor-
um að vinna svo mikið að ekki gafst
tími til að þrífa nægilega fyrir jólin
en þegar litið er til baka voru það
bara með þeim betri jólum sem við
höfum átt saman. Jólin þau koma
alltaf aftur sama hvort það sé þrifið
eða ekki og finnst mér núna í seinni
tíð tíminn afskaplega fljótur að líða.
Það er ein hefð sem ég held samt
í og er sú hefð að ég strauja alltaf
sængurverin okkar á Þorláksmessu,
annars eru það bara perlur sem ég
strauja. Dætur mínar eru duglegar
að baka fyrir jólin eða reyndar allt
árið þannig að ég ver ekki mikl-
um tíma í jólabakstur. Hins vegar
eru hnetusmjörskökur uppáhalds
smákökurnar mína og ómissandi
hluti jólanna og ég nýt þess að baka
þær á meðan dæturnar sjá um allan
annan bakstur. Jólin eiga að vera
tími fjölskyldunnar og ætlum við
að eyða jólunum í rólegheitum og
njóta þess að vera saman.
Eftir að við urðum bændur hefur
stressið yfir því að vera tilbúin með
allt klukkan 18:00 á aðfangadag
minnkað þar sem við þurfum að
fara í fjós og finnst mér það vera
mjög gott að vera ekkert að stressa
sig.
Ég vil óska ykkur öllum til sjávar
og sveita gleðilegra jóla og farsæld-
ar á komandi ári.
Jólakveðja,
Helga Jóna Björgvinsdóttir,
Eystra-Miðfelli
Jólakveðja úr Stykkishólmi
Breiðafjörður og
útikennsla
Það er gamall og góður siður að senda jólabréf, en
þau voru fyrr á dögum hugsuð sem nokkurs konar ít-
arefni með jólakveðjum. Í jólabréfum voru, auk þess
að senda kveðju til heimilisfólks, sagðar fréttir úr
sveitinni.
Skessuhorn leitaði nú sem fyrr til tíu valinkunnra
kvenna víðsvegar af Vesturlandi og voru þær beðn-
ar að senda lesendum jólabréf úr sínu heimahéraði.
Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Efnistök voru
gefin frjáls og því kennir nú sem fyrr fjölbreytni í
þessum vinalega og góða sið.
mm/ Umsjón: Gunnhildur Lind
Jólakveðja úr Hvalfjarðarsveit
Jólin eru tími
fjölskyldunnar
Jólin að koma – enn og aftur. Ótrú-
legt hversu hratt tíminn flýgur hjá
en samt er maður alltaf jafn ung-
ur – kannski það sé orðið í anda!
Það er ekki gott að segja en alla-
vega er ég farin að temja mér það
að meta tímann og stundirnar bet-
ur. Desembermánuður hefur ein-
kennst svolítið af hálfgerðu kapp-
hlaupi við að mæta á ótal viðburði
tengda börnunum, vinnunni og fé-
lagslífinu; að klára öll „skylduverk“
jólanna. Þessi skylduverk voru far-
in að dreifa óþarflega úr sér; allir
verða að skreppa á jólatónleika, fara
á jólahlaðborð, baka, þrífa, skreyta
hátt sem lágt, kaupa inn allt sem
alla langar í um hátíðirnar og finna
hinar fullkomnu gjafir fyrir hvern
og einn og svona má lengi telja.
Tilfinningin var sú að í öll „box-
in“ skyldi haka á kostnað geðheilsu
móðurinnar.
Nú vill ég frekar hægja á og fljóta
rólega með. Ég hef ýtt ýmsum
jólahefðum út og sest nú niður í að-
draganda jólanna með börnunum
mínum og fer yfir það hvað þeim
þyki mikilvægt að gera fyrir þessi
jól. Sumt náum við að framkvæma,
annað bíður bara fram að næstu
jólum – eða þarnæstu! Með þess-
um breyttu áherslum er ég farin
að njóta jólanna mun betur og eiga
fleiri gæðastundir úti í náttúrunni.
Ég hef alltaf verið mjög tengd nátt-
úrunni og Breiðafirði en sú tenging
hefur orðið sterkari með árunum.
Nú nýt ég þeirra forréttinda að
fá að titla mig útikennara Grunn-
skólans í Stykkishólmi. Þessum
áhuga mínum fæ ég að deila með
nemendum 1.-4. bekkjar þar sem
ég kenni alla föstudaga einum bekk
úti í þrjár samfelldar klukkustund-
ir. Það er svo dásamleg tilfinn-
ing að koma gangandi í skólann á
föstudagsmorgnum og þá bíður
mín spenntur hópur barna við inn-
ganginn, alveg sama hvernig veðr-
ið er. Allir með heitan drykk og
gott nesti í litlum bakpoka og oft
eru höfuð- eða vasaljósin með í
för. Við höldum af stað út í óviss-
una, niður í fjöru að rannsaka lífrík-
ið eða kíkjum eftir selum, förum á
hafnarsvæðið til að sjá betur eyjarn-
ar sem tengjast þjóðsögunum okk-
ar, í Hólmgarðinn eða upp í skóg að
vinna í trjáskýlunum okkar og fóðra
smáfuglana. Stundum þarf að saga
niður tré, skoða laufblöð, læra nýja
leiki, safna eldivið, búa til fjallate
eða skoða veðurathugunarstöðina
svo eitthvað sé nefnt. Ótrúlega dýr-
mætar stundir þar sem við tökumst
í sameiningu á við óvæntar uppá-
komur, bætum við orðaforðann og
lærum að þekkja umhverfið okkar.
Með hverri ferð eykst úthaldið og
við upplifum sigra.
Utan vinnunnar á sjórinn hug
minn að miklu leyti; ég hef unun af
því að sigla um Breiðafjörðinn sem
og að synda í honum. Hér í Hólm-
inum höfum við nýlega stofn-
að formlegt félag utan um þá iðju,
Flæði, sjósundsfélag Stykkishólms.
Síðastliðið sumar fengum við
heimsókn frá Rjúkandi fargufu sem
er viðarkynt saunabað í hjólhýsi.
Eftir þessa geggjuðu upplifun, að
fara úr sjó í gufu og aftur í sjó und-
ir stjórn Gúsfrúarinnar sem á far-
gufuna urðum við alveg sjúk(ar) í að
setja upp saunabað hjá okkur. Við
höfum nú sótt um styrki og meðal
annars fengið væna styrki frá Upp-
byggingarsjóði Vesturlands, Stykk-
ishólmsbæ og fleiri fjársterkum að-
ilum. Það er því með mikilli gleði
sem við erum að ráðast í það verk
að setja upp saunabað við aðstöðu
okkar í Móvík í landi Stykkishólms-
bæjar og hlökkum til að taka á móti
sem flestum í sauna og sjóbað.
Með þessum gleðifréttum vil ég
þakka fyrir mig og óska ykkur öll-
um huggulegra jólastunda í desem-
ber.
Jólaknús í hús
Ásdís Árnadóttir, Stykkishólmi