Skessuhorn - 15.12.2021, Qupperneq 54
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 202154
Kveðjur úr héraði
Jólakveðja frá Snæfellsnesi
Samfélagið verður
eins gott og
við gerum það
Heil og sæl!
Jólin nálgast. Við erum búin að fara
á Rökkurró í Hofsstaðaskógi þar
sem foreldrafélög skólanna hérna
sunnan megin á Snæfellsnesi, í sam-
vinnu við Sagnaseið, buðu nem-
endum upp á leiki, söng og sögur.
Sagnaseiður, félag um sögumiðlun,
bíður árlega upp á sögufylgd vítt og
breitt um Snæfellsnes og eru við-
burðir vel sóttir.
Líkt og í fyrra þá er árið 2021 ár
aðlögunar- og þrautseigju. Sam-
félagið hefur þurft að finna nýjar
leiðir fyrir fólk til að vera saman,
til að tengjast og til að taka þátt. Á
Snæfellsnesi búum við svo vel að
hér er hátt þjónustustig og hér ríkir
samhugur meðal fólks. Jólahátíðin
er fyrir okkur flest tími samveru og
upplyftingar.
Gefum tíma, sem við erum flest
sammála um að sé eitt það mikil-
vægasta sem við eigum. Búum til
góðar minningar. Hvetjum hvert
annað til útivistar og að njóta
þeirra menningarviðburða sem
óhætt er að boða til miðað við gild-
andi smitvarnir í heimsfaraldri.
Hvað varðar jólaundirbúninginn
á þessum bæ þá eru jólabréfin raf-
ræn núna og við búum til greni-
og hyasintuskreytingar. Lyktin er
alveg nauðsynleg á jólunum. Við
erum töluvert dekruð, erum boð-
in í skötu og fáum árlega sent frá
stórfjölskyldunni rauðrófusalat,
ostakex, smákökur og heimagerð-
ar skreytingar. Við erum venju-
lega til skiptis með foreldrum mín-
um og tengdaforeldrum á aðfanga-
dagskvöld. Stórfjölskyldan sker og
steikir saman laufabrauð og við
setjum hvít hátíðarrúmföt á vel
viðraðar sængur fyrir aðfangadags-
kvöld. Reynum að vera mikið með
fjölskyldunni en líka að hafa tíma
til að lesa og spila. Sumt breyt-
ist auðvitað og við búum til nýj-
ar hefðir saman, t.d. reynum við
að fara í selafjöru á Þorláksmessu,
veit eiginlega ekki af hverju, en eft-
ir vel heppnaða ferð var ákveðið að
þetta væri árleg hefð. Milli jóla og
nýárs er mikið félagslíf í sveitinni
okkar. Við reynum bara að njóta
undirbúningsins og jólanna. Á
gamlársdag stökkvum við niður
af stólum inn í nýja árið. Eins er
mjög mikilvægt að hlaupa í kring
um húsið, bæði á gamlársdag og
þrettándanum og kalla; „komi þeir
sem koma vilja, veri þeir sem vera
vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og
mínum að meinalausu.“ Ég horfi
þá sérstaklega á Staðastaðakirkju,
Húsahól þar sem huldufólkið býr
á okkar jörð og Snæfellsjökul þar
sem Bárður Snæfellsás og hugsan-
lega fleiri halda til.
Sumir finna jólin
í fjárhúsunum
Það er mikilvægt að heyra góðar
fréttir og finna að við erum „saman
í liði.“ Það er margt að þróast í
rétta átt og við eigum þekkingu
og mannauð til að takast á við við-
fangsefnin þó að þau séu oft stór
og erfið. Ef við erum svo heppin að
eiga í samskiptum við annað fólk,
sérstaklega börn, á aðventu og jól-
um, ættum við að gefa okkur tíma
fyrir jákvæðar umræður.
Það er margt að breytast. Það
hriktir í gömlum stoðum, sum
viðmið hafa algerlega breyst. Við
búum nú í fjölmenningarsamfélagi
mitt í fjórðu iðnbyltingunni. Þetta
þýðir t.d. að hér í Staðarsveit búum
við nú við bestu nettengingu sem
völ er á. Þar sem innviðir eru góð-
ir (í viðbót við góðan grunnskóla er
t.d. kominn leikskóli í sveitina) get-
um við tekið á móti nýjum íbúum
og skapað fjölbreytt atvinnutæki-
færi. Á sunnanverðu Snæfellsnesi
er bara dreifbýli og við finnum vel
hvernig samfélagið verður eins gott
og við gerum það. Það er margt
sem vert er að þakka fyrir eins og
fjölbreytt félagslíf og náttúrufegurð
sem dregur fólk til sín. Það er full
ástæða til að trúa á Ísland, landið
og fólkið sem hér býr. Vera þakklát
fyrir lýðræðið, orkuna, tungumálið,
sögurnar og margt fleira.
Með bestu óskum um gleðileg
jól, góð og farsæl komandi ár,
Ragnhildur Sigurðardóttir,
Álftavatni
Á síðasta ári tóku íbúar Borgar-
byggðar sig saman og hrintu af stað
verkefni sem bar heitið Samhugur í
Borgarbyggð. Tilgangur þess er að
veita aðstoð á þessum erfiðu tímum
í kringum jólahátíðina. Verkefnið
hefur verið endurvakið í ár og líkt
og á síðasta ári er tekið á móti jóla-
gjöfum, gjafabréfum og matarpökk-
um auk þess sem jólasveinar geta
einnig fengið aðstoð við skógjafir.
Þeir sem vilja leggja sitt af mörk-
um geta farið með gjafir og gjafa-
kort á skrifstofu Kaupfélags Borg-
firðinga. Einnig er tekið á móti
gjafapappír og kortum. Einstak-
lingar þurfa ekki að pakka inn gjöf-
unum en æskilegt er að merkja við-
eigandi aldur viðtakanda.
Nánari upplýsingar má finna á
Facebooksíðu verkefnisins, Sam-
hugur í Borgarbyggð. Þá er bent á
að þeir einstaklingar sem vilja sækja
um styrk geta sent póst á netfangið
samhugur@samhugur.is
vaks/ Ljósm. mm
Rúmenska listakonan Larisa Crun-
teanu hefur síðustu vikur dval-
ið í Grundarfirði í samvinnu við
Artak350 sem rekur gestavinnu-
stofu í bænum. Dvöl henn-
ar er hluti af menningarverk-
efni í Rúmeníu sem er í samstarfi
við Artak350. Larisa sýndi svo af-
rakstur vinnunnar sunnudaginn
12. desember í Bæringsstofu, bíó-
sal Sögumiðstöðvarinnar.
Larisa vinnur með myndbands-
verk, flutning og hljóðsöfn. Með
verkum sínum skapar hún sam-
hengi þar sem staðreyndir og
minningar eru endurvaktar. Mörg
verka hennar endurspegla hug-
myndir sem liggja að baki hluta
og sagna. Verk hennar flakka milli
raunveruleikans og skáldskapar í
endalausu samtali við áhorfandann
og spila á óljósum mörkum milli
myndbandslistar, kvikmyndagerð-
ar og heimildamyndagerðar.
„Ég er fædd og uppalin í Rúm-
eníu og er frá litlum bæ í fjöllun-
um sem er ekki ósvipaður þess-
um,“ segir Larisa í stuttu spjalli
við fréttaritara. „Eftir mennta-
skóla flutti ég til Búkarest þar
sem ég lærði BA í fjölmiðlafræði,
MA í pólitískum samskiptum,
MA í ljósmyndun og hreyfimynd-
um og svo PhD í sjónrænni list og
ég er að vonast til að gefa út bók
á næsta ári,“ bætir hún við. Hún
hefur haldið sýningar víðs vegar
um heiminn á virtum stofnun-
um eins og National Museum of
Contemporary Art í Búkarest,
SAVVY í Berlín, Zacheta Project
Room í Varsjá svo eitthvað sé
nefnt.
„Ég fékk boð um að koma til
Grundarfjarðar í gegnum Artak
og mér leist strax vel á þá hug-
mynd. Þetta var einstakt tækifæri
til að prófa eitthvað nýtt og koma
á þennan einstaka stað sem Ísland
er. Hér er landslagið svo magnað
og framandi.“
Sýningin í Grundarfirði er henn-
ar fyrsta sýning á Íslandi. Hún naut
góðrar aðstoðar frá Lúðvík Karls-
syni og Salbjörgu Nóadóttur við
uppsetningu sýningarinnar. Það
er alveg magnað að vakna upp á
hverjum degi með þessa póstkorta-
mynd af fjöllunum hérna í kring,“
segir hún en væri alveg til í að hafa
aðeins fleiri klukkutíma með dags-
birtu. Á meðfylgjandi mynd eru
þau Lúðvík Karlsson eða Liston,
Þóra Karlsdóttir eigandi Artak350
og Larisa Crunteanu sem er hér
lengst til hægri.
tfk
Samhugur í Borgarbyggð
Skemmtileg listsýning
í Sögumiðstöðinni