Skessuhorn - 15.12.2021, Page 73
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 73
Við sendum okkar bestu óskir um gleðilega
jólahátíð og þökkum árið sem er að líða
mila.is
tónlist ef hún er falleg og elska til
dæmis klassíska tónlist og kántrí og
jafnvel popptónlist ef hún er falleg.
Ég vil tónlist sem lætur mér líða vel
og ég get slakað á þegar ég hlusta,“
svarar hún.
Valentina hlustar líka mikið á ís-
lenska tónlist og þykir þjóðlögin
sérstaklega falleg. „Bygging þeirra
er mjög falleg og sérstök og ég
elska þau. Krummi svaf í klettagjá
er til dæmis alveg einstaklega fall-
egt lag,“ segir Valentina en bætir
því við að hún hlusti líka á íslenska
popptónlist. „Popptónlist er svip-
uð alls staðar og það eru alveg til
skemmtileg íslensk popplög,“ seg-
ir hún og brosir. En hver er hennar
uppáhalds íslenska hljómsveit eða
söngvari? „Það er góð spurning. Ég
veit ekki alveg hver er uppáhalds,
kannski Baggalútur. Þeir eru flott-
ir og aðeins öðruvísi,“ svarar hún.
Fékk tvo aðra tónlistar-
kennara frá Rússlandi
til Ólafsvíkur
Eftir að hafa kennt í fimm ár við
Tónlistarskóla Snæfellsbæjar tók
Valentina við starfi skólastjóra, árið
2007, þegar Jóhann Baldursson fyrr-
um skólastjóri flutti til Reykjavíkur.
„Það hefur verið dásamlegt að fá að
stýra þessum skóla. Þetta er mjög
góður skóli þó ég segi sjálf frá,“ seg-
ir hún og hlær. „En við erum líka
heppin að vera með bæjarstjóra og
sveitarstjórn sem hafa alltaf stutt vel
við skólann. Við fáum alltaf grænt
ljós með allar okkar tillögur og við
erum mjög heppin með það.“ Auk
Valentinu eru þrír aðrir kennarar í
skólanum; Nanna Þórðardóttir og
hjónin Evgeny Makeev og Elena
Makeeva sem koma frá Rússlandi.
„Þau koma úr sama háskóla og ég,
en við kynntumst þar. Þegar ég kom
hingað fyrst vantaði fleiri kennara,
sérstaklega til að kenna á blásturs-
hljóðfæri. Jói skólastjóri bað mig að
heyra í vinafólki mínu og sjá hvort
þau væru ekki tilbúin að koma. Það
er erfitt að fá kennara hingað úr
Reykjavík. Ég hringdi í þessi hjón,
en hann er blásturshljóðfæraleik-
ari. Þau sögðu strax nei og vildu alls
ekki koma á svona lítinn stað. Hann
fékk vinnu í Noregi og hugsaði um
að fara þangað með fjölskylduna. Jói
bað mig að reyna aftur og þá sam-
þykktu þau að prófa að koma. Síðan
eru liðin 16 ár og þau vilja ekki fara
héðan aftur,“ segir Valentina.
Skóli fyrir alla
Tónlistarskóli Snæfellsbæjar var
stofnaður árið 2003 þegar Tónlist-
arskóli Ólafsvíkur og Tónlistarskóli
Neshrepps utan Ennis voru sam-
einaðir í einn skóla. Í skólanum er
boðið upp á fjölbreytta tónlistar-
kennslu og mikil áhersla lögð á að
mæta þörfum og óskum nemenda
sé þess kostur. „Skólinn er opinn
fyrir alla en börn eru þó í forgangi,“
segir Valentina og bætir við að þann
tíma sem hún hefur verið að kenna
í Ólafsvík hafi alltaf verið mikill
áhugi á tónlistarnámi. „Það skipt-
ir engu máli hversu mikla hæfileika
fólk hefur, það eru allir velkomn-
ir. Sumir hafa mikinn áhuga og
hæfileika og æfa mikið en aðrir eru
bara hjá okkur til að hafa gaman og
það er í góðu lagi,“ segir Valentina.
Í skólanum er boðið upp á nám á öll
helstu hljóðfæri og söngkennslu en
einnig er deild fyrir fullorðna nem-
endur.
Elskar að vinna
með börnunum
Spurð hvort hún sé mikið að vinna
í tónlist utan kennslu segist Val-
entina lítið hafa gefið sér tíma
til þess en að hún stefni á að gera
meira af því í framtíðinni. „Það er
alltaf svo mikið að gera í skólan-
um og svo taka nemendur okkar og
kennarar þátt í menningarlífi bæj-
arins, halda tónleika og spila í guðs-
þjónustum í kirkjunum. Það er því
alltaf alveg nóg að gera hjá mér en
ég elska líka vinnuna mína. Þér
þykir alltaf skemmtilegt að vinna
með börnunum og þau eru mitt líf.
Börnin eru framtíðin okkar og það
er alltaf jafn dásamlegt að tala við
þau, fá að kenna þeim og ekki síður
að læra af þeim. Börn í dag eru svo
dugleg og vita svo margt, oft mik-
ið meira en við sjálf. Þau eru líka
svo skapandi og það er ekkert betra
en að fá að upplifa það,“ segir hún
og bætir við að þegar tími gefst til
elskar hún að setjast niður og semja
tónlist. „Ég gaf út bókina „Létt lög
fyrir píanó 1. hefti“ og það er ann-
að hefti á leiðinni. Ég hef líka gert
leikrit og samið mörg lög. Ég er
fyrst og fremst tónskáld.“
Gaman að tala um
tónlist við Íslendinga
„Þegar ég hlusta á fallega tónlist er
allt svo fallegt og mig langar bara
að vera góð og elska allt. Það skipt-
ir engu máli hvernig veðrið er eða
hvort það sé myrkur eða sól, lífið
verður svo fallegt og bjart þegar
ég hlusta á fallega tónlist og mig
langar bara að lifa og njóta,“ segir
Valentina og brosir. Hún segir líka
mikinn kost við Ísland vera hversu
fróðir Íslendingar eru um tónlist.
„Þegar ég bjó í Rússlandi fann mað-
ur vel fyrir mun á því hversu mikið
fólk vissi um tónlist eftir menntun.
Fólk hér veit rosalega margt um
tónlist, þekkir lög, hljómsveitir,
höfunda og slíkt. Maðurinn minn
er til dæmis ekki tónlistarmaður en
hann veit margt sem ég veit ekki.
Hann man til dæmis eftir tónlist úr
bíómyndum en það eru ekkert all-
ir sem taka jafn vel eftir tónlistinni
í kringum sig eins og Íslendingar
gera. Tónlistin er alls staðar og
skiptir svo miklu máli og það er
rosalega gaman að tala um tónlist
við Íslendinga,“ segir Valentina.
En áður en við kveðjum Valentinu
spyr blaðamaður hana um jólin?
„Ég elska jólin en ég held íslensk
jól með fjölskyldunni minni og við
borðum íslenskan jólamat,“ svarar
Valentina og brosir.
arg
Valentina Kay byrjaði í tónlistarnámi fimm ára gömul og byrjaði þá að læra á takkaharmonikku og píanó.