Skessuhorn - 15.12.2021, Qupperneq 77
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 77
Omnis
Hárstúdió
Kirkjubrautarstóðið á 58,
Fasteignarsalan Hákot
Starfsmannafélag Elkem
Starfsmenn Brekkubæjarskóla
ÞÞÞ
Ónefnd falleg fjölskylda
Starfsmannafélag Akrasels
Starfsmannafélag Vallarsels
Sirrý, Guðmundur og fjölsk. frá Hóli
Skessuhorn
Allir sáttir ehf
Helgi, Eva og fjölsk.
Katla á Hárhúsi Kötlu
Margret Þóra, Runólfur og fjölsk.
Vésteinn Sveinsson
Júlía Björk Elfarsdóttir
Sæunn og Jóhann
Bjarki Þór, Þóra og fjölsk.
Áslaug og Skúli
Sigmundur G Sigurðsson
Valgerður Magnúsdóttir
Herdís og Siddi
Bílar og Dekk
Starfsmenn Garðasels
Guðríður Haraldsdóttir
AK Pípulagnir ehf
Guðrún Sonja Birgisdóttir
Contact Hárstofa
Jónína Rósa Halldórsdóttir
Bjarni Þór og Ásta
Rammar og Myndir
Stjáni og Sigurveig
Starfsfólk Grundaskóla
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
Takk fyrir stuðninginn á árinu
Á árinu 2021 hafa fjölmargir aðilar lagt til pening og aðstoð við söfnun í mínu nafni til hjálpar þeim sem
hjálpar er þurfi. Það þarf fólk eins og ykkur, fyrir fólk eins og mig. Auk eftirtalinna aðila eru fjölmargir
fastir hjálpendur í mínu hugsjónastarfi. Hjartans þakkir allir fyrir stuðninginn og góða strauma.
Kærleiks- og jólakveðja,
Amma Andrea
Jólastemming hjá fjölskyldunni. Jóhann ásamt Ayaka og dótturinni Hönnu.
helst Nagasaki en þar er mikið um
kaþó likka. Þetta er aðallega upp á
„showið.“
Karaoke í
lokuðum klefum
Næst er Jóhann spurður út í á
hvern hátt lífið í Japan er frá-
brugðið því að búa í Borgarnesi.
„Japan er náttúrulega svo stórt
á allan hátt. Maður var stundum
latur að labba þegar maður var að
alast upp í Borgarnesi og lét skutla
sér hvert sem maður fór. Hér
labba ég stundum marga klukku-
tíma á dag, bæði fyrir hreyfinguna
en líka vegna þess að það er bara
nóg að gera. Í Borgarnesi þekkja
allir alla en hér þekkir maður
eiginlega bara vinnufélagana og
nokkra vini.“
Hvað félagslíf varðar segir Jó-
hann: „Þetta hefur verið mjög
skrýtið í þessu Covid ástandi.
Maður hefur lítið farið út að hitta
vini eða vinnufélaga. Fyrir jólin í
fyrra var svolítið um zoom partý.
Það er rík hefð fyrir því að fara
út með vinnufélögunum í Japan.
Maður er talinn eitthvað skrýtinn
ef maður tekur ekki þátt í því. Hér
eru svokallaðir All you can drink
(drekktu eins og þú getur) stað-
ir út um allt. Ég hugsa að ef við
myndum reyna eitthvað svoleiðis á
Íslandi myndi hreinlega allt fara til
helvítis,“ segir hann og hlær hátt.
„Venjulega er byrjað á að fara á
svoleiðis stað og drukkið. Síðan er
haldið á annan stað sem er þá kall-
aður seinni drykkja. Síðan er yfir-
leitt endað á karaoke stað sem þarf
ekki endilega að vera bar heldur
getur það hreinlega verið lokaður
klefi einhvers staðar.“
Nýbúinn að
kaupa sér hús
Jólahald er með talsvert öðru sniði í
Japan en á Íslandi. „Jólin eru meira
svona fyrir fullorðið fólk sem er að
„deita“ en það eru samt alveg krakk-
ar sem vilja fá jólagjafir og þess hátt-
ar og það færist í vöxt. Það er allt
skreytt hér með jólaljósum en um
leið og 25. desember er liðinn hverf-
ur allt slíkt. Þá er byrjað að undirbúa
áramót Japana, Oshōgatsu.“ En hvað
með jólamatinn? „Það er KFC sem
er langvinsælast, lúxuskjúklingur frá
KFC auk þess sem búðir bjóða líka
upp á stóran kjúkling. Einnig borða
Japanir humar um jólin.“
Aðspurður segist Jóhann ekki
vera á leið heim til Íslands í bráð.
Þau hjónin eru nýbúin að kaupa
sér hús og eru að flytja inn í það.
Hann segir að það sé erfitt að
bera saman húsakaup á Íslandi og
í Japan. „Lengi vel voru stýrivext-
ir neikvæðir í Japan. Fyrstu fimm
árin eftir húsakaupin eru vext-
irnir 0,85 prósent. Ef það verð-
ur annað bankahrun þá er samt
sem áður þak á hversu háir vextir
mega verða. Hér eru engar sveifl-
ur og við vitum að vextir munu
ekki hækka,“ Það er svolítið ann-
ar raunveruleiki en við Íslendingar
þurfum að búa við.
frg / Ljósm. aðsendar.
Fjölskyldan úti að borða á All You Can Eat Sushi og Shabu-Shabu veitingastað. Jóhann, Ayaka og dóttirin Hanna.
Jóhann á sviði með leikurum i Edo Wonderland i Tochigi.