Skessuhorn - 15.12.2021, Síða 83
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2021 83
www.gamafelagid.is s. 577 5757Quality
Management
Environmental
Management
ISO
9001
ISO
14001
Equal pay
management
system
ÍST
85:2012
EMS 542753FM 577752 EQ 670312
Íslenska gámafélagið óskar viðskiptavinum sínum
og landsmönnum öllum gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári. Við þökkum samstarfið
á liðnu ári og hvetjum Íslendinga áfram til stórra
afreka í endurvinnslumálum.
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
Guðrún á vinnustofunni þar sem eldri borgarar í Snæfellsbæ vinna ýmislegt handverk með gler og leir.
og bændagistingu,“ segir Guðrún.
Ferðaþjónustuna rak fjölskyldan í
18 ár en þau hættu rétt fyrir banka-
hrun. „Við vorum á þeim tíma sem
lítið var um ferðaþjónustu hér á
landi og má því segja að við höfum
verið brautryðjendur,“ segir Guð-
rún.
Hleðsluverkefni
Bárð Snæfellsás hafa allir séð sem
lagt hafa leið sína á Arnarstapa eft-
ir 1985 en það voru pabbi Guð-
rúnar, systkini hans og afkomend-
ur sem létu reisa Bárð til minningar
um ömmu og afa Guðrúnar. „Það
er gaman að geta sagt að maður
hafi átt þátt í þessu verkefni,“ seg-
ir hún og brosir. Árið 2014 hrinti
Guðrún af stað átaksverkefni um
endurhleðslu gömlu Ólafsvíkur-
réttar. „Ég hef nú samt ekki séð
um að hlaða réttina sjálf en feng-
ið til þess gott fólk,“ segir Guðrún
og hlær. Hún hefur þurft að leggja
mikla vinnu og tíma í þetta verk-
efni sem nú sér loks fyrir endann á
en áætluð verklok eru næsta sum-
ar ef vel gengur en annars sumarið
2023. Mikil vinna fór í undirbúning
áður en sjálfar endurbæturnar gátu
hafist og tók hann um tvö ár. Það
þurfti að sækja um leyfi til Minja-
verndar og svo þurfti að sækja um
styrki. Guðrún Bergmann var fyrsti
styrktaraðili verkefnisins og fylgdu
margir í kjölfarið. „Ég er afskap-
lega þakklát öllum þeim sem hafa
styrkt þetta verkefni með pening
eða vinnu. Það eru rosalega margir
sem hafa lagt hönd á plóg í þessu
verkefni en svona samfélagsleg
verk efni verða ekki til öðruvísi en
með slíkri samvinnu,“ segir Guð-
rún. En af hverju ákvað hún að ráð-
ast í þetta verkefni? „Ég veit það nú
ekki. Réttin sást orðið varla fyrir
gróðri og mér þótti leiðinlegt að sjá
hana bara hverfa. Einhver þurfti að
byrja á þessu og af hverju ætti það
ekki að vera ég?“
Virk í starfi
eldri borgara
Guðrún hefur verið svo lánsöm
að fá að eldast og er nú búin að
ná þeim áfanga að vera komin í
hóp eldri borgara. Hún er virk-
ur þátttakandi í starfi eldri borg-
ara í Snæfellsbæ og segir að þar
sé alltaf nóg um að vera. „Það er
stíf dagskrá hjá okkur;“ segir hún
brosandi. Í Snæfellsbæ hittast
eldri borgarar oft yfir vikuna og
gera eitthvað saman; spila boccia,
fara í sund, pútta, fara í fitness,
sinna ýmsu handverki, dansa línu-
dans og margt fleira. Aðspurð seg-
ir Guðrún fólk almennt vera dug-
legt að mæta og taka þátt í félags-
starfinu. „Sumir koma líka bara til
að fá sér kaffi með okkur, spjalla
og fá smá selskap,“ segir hún og
bætir við að það sé líka í góðu lagi.
Spurð hvernig handverki hún hafi
mest gaman að segist hún helst
vinna með gler og leir. „Ég hef
alltaf haft gaman að handverki og
lærði ung að sauma út. En mér
þótti þetta allt svo skemmtilegt
og heillandi. Því miður sér mað-
ur ekki oft í dag krakka heillast af
svona hlutum og ég er hrædd um
að það sé því símarnir stela öllum
tímanum og á það ekki bara við
um börnin,“ segir hún.
Góð aðstaða fyrir
eldri borgara
Við stöndum upp frá eldhús-
borðinu og förum saman út þar
sem Guðrún sýnir blaðamanni
aðstöðu eldri borgara í Ólafsvík.
Það er ekki langt að fara því fyrsti
áfangastaður er í næsta húsi við hús
Guðrúnar en þar er saumaaðstað-
an. „Hér var áður apótek og þess
vegna er svona góð lýsing,“ segir
Guðrún þegar hún kveikir ljósin
og herbergið lýsist allt upp. „Það
er mjög hentugt að hafa svona góð
ljós í saumastofu,“ bætir hún við.
Við göngum næst yfir í næstu götu
þar sem annars vegar er aðstaða
fyrir gler- og leirvinnslu og hins
vegar trésmíðaverkstæði. Aðspurð
segist Guðrún lítið vera að prófa
vélarnar á trésmíðaverkstæðinu en
í glerinu og leirnum er hún öllum
hnútum kunnug. Hún sýnir blaða-
manni allskonar falleg listaverk
sem fylla hillurnar á vinnustofunni
en þar eru kertastjakar, styttur og
ýmislegt annað úr leir eða gleri.
„Það er gott að vera eldri borg-
ari í Ólafsvík, þar sem svona rosa-
lega vel er haldið utan um okkur
og við fáum svona góða aðstöðu til
að vinna í,“ segir Guðrún ánægð
að lokum.
arg
Kertahús úr leir sem Guðrún bjó til.